Frjáls verslun - 01.03.1989, Side 18
FORSÍÐUGREIN
þáttinn og auðséð að
verkefni Þjóðhags-
stofnunar má sem best
fela Seðlabankanum.
Það væri í samræmi
við það sem ég hef lagt
áherslu á: Að efla
bankann sem sjálf-
stæðan ráðgjafa ríkis-
stjórnarinnar í fjármál-
um,“ sagði Eyjólfur
Konráð ennfremur.
Fleiri hafa tekið
undir þessi sjónarmið
og bent á að hvers
konar skýrslugerð á
vegum hins opinbera
sé komin út í hreinar
öfgar en menn hefur
hins vegar greint á um
hvaða stofnanir eigi að
renna inn í hverjar og
með hvaða öðrum
hætti skuli hamlað
gegn ágangi „möppu-
dýranna" eins og Vil-
mundur heitinn Gylfa-
son komst að orði.
Eyjólfur Konráð Jónsson:
Seðlabankinn á fyrst og fremst
að vera sjálfstæður ráðgjafi
ríkisstjórnarinnar í fjármálum.
styrkja," sagði Eyjólf-
ur Konráð.
Frá því Seðlabank-
inn hóf starfsemi sína
hefur stjómsýsla
landsins tekið miklum
breytingum. Fjöl-
margar stofnanir hafa
risið og aðrar vaxið er
gegna sömu eða svip-
uðum hlutverkum og
Seðlabankinn. Sér-
staklega er þar um að
ræða hvers konar hag-
ræn málefni og benda
margir á að í Þjóðhags-
stofnun sé verið að
fást við sömu verkefni
að hluta og unnið er að
í Seðlabankanum. Þá
hafa ráðuneyti aukið
umfjöllun um hag-
fræðileg málefni og
sama er að segja um
viðskiptabankana.
Fyrir nokkmm ár-
um var samþykkt til-
laga á Alþingi um
breytingar á rekstri
Þjóðhagsstofnunar og
var það mál margra þingmanna að réttast
væri að leggja starfsemina alfarið niður.
Það sem í raun gerðist var að stofnunin
flutti í Seðlabankahúsið en hefur enn sem
fyrr sjálfstæðan rekstur og eigin stjóm.
„Hér er auðvitað enn eitt dæmið um
það hvemig ríkiskerfið vinnur sama verk-
HÚS FYRIR EIGIÐ FÉ
Oft hefur byggingarsaga Seðlabankans
verið rifjuð upp enda munu áratugir liðnir
frá því fyrst var farið að huga að nýbygg-
ingu fyrir stofnunina. Flestir vom á því
máli að í fyrra húsnæði hafi verið þröngt
um bankann enda augljóst óhagræði af því
að reka eitt fyrirtæki á 6-8 stöðum eins og
„Málið snýst auðvitað ekki
um að reka Jóhannes Nordal,
fjarri því. Það snýst um Seðla-
bankann sem stofnun og að
hlutverk bankans eigi að vera
þrengra og stjórnunin betri en
raun ber vitni. Þar eiga aðeins
að sitja hæfustu menn á sviði
efnahagsmála til skamms tíma
í senn. Æviráðning bankastjór-
anna er út af fyrir sig brot á
grundvallarreglum í stjórn-
sýslu. Þegar svo bætist við
pólitísk ráðning bankastjóra
Seðlabankans, eins og gerst
hefur um langa tíð verður út-
koman hreint glapræði“, sagði
Jón Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra, en hann hef-
ur um árabil gagnrýnt stjórn-
endur Seðlabankans harðlega í
opinberri umræðu.
„Mitt mat er það að bankinn sé kom-
inn langt út fyrir verksvið sitt og þar er
ekki aðeins við stjómendur hans að sak-
ast heldur ríkisstjómir í landinu. Seðla-
bankinn er vörsluaðili ótal sjóða og því
viðskiptabanki að hluta en það getur
aldrei samrýmst verksviði hans sem
óháður eftirlits- og ráðgjafaraðili. Þá
samrýmist það ekki heldur hlutverki
hans sem banki bankanna.
Það er stefna stjómenda bankans að
hann skuli vera ríki í ríkinu. Aðalsmerki
seðlabanka víða um heim er að vera lítt
áberandi og forðast að fara út fyrir verk-
svið sitt. Dæmi um hliðarspor hins ís-
lenska Seðlabanka er höllin við Amar-
hól. Bankastjórarnir hafa blásið á gagn-
rýni af þeim sökum og svarað með hroka
að þeir séu að byggja fyrir eigið fé. Sér
er nú hver vitleysan.“
Jón Baldvin kemur víða við í gagnrýni
sinni og nefnir nokkur dæmi sem hann
telur vera afglöp stjórnenda bankans í
viðamiklum málum:
„Á undanfömum ámm hafa orðið þýð-
ingarmiklar breytingar á íslenskum fjár-
magnsmarkaði. Hlutverk bankaeftirlits
Seðlabankans á að vera að fylgjast með
öllum slíkum hræringum og koma ráð-
gjöf til stjórnvalda, er tryggja öryggi al-
mennings. I þessari byltingu spruttu upp
fjármögnunarleigur án þess að settar
væru nokkrar reglur um starfsemi
þeirra.
Gegnum þessi fyrirtæki streymdi er-
lent lánsfé inn í landið og lánsfjáráætlun
Stimplagerð, öll prentim.
Nú er tíminn til að færa úr
nafnnúmerum í kenni-
tölu. Tökum að okkur alla
prentun og höfum aug-
lýsingavöru í þúsundatali,
merkta þér. Sjón er sögu
ríkari. Stimplar, nafn-
spjöld, límmiðar, bréfs-
efni, umslög o.fL Athug-
aðu okkar lága verð.
Textamerkingar.
Hamraborg 1, sími 641101.
;!
"-‘imtvSffmrnT'
18