Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1989, Qupperneq 21

Frjáls verslun - 01.03.1989, Qupperneq 21
ráðgjöf séu sérfræðingar Þjóðhagsstofn- unar og Seðlabanka að fást við svipuð verkefni og starfsmenn Hagstofu og hinna ýmsu ráðuneyta. Hvað hefur Jó- hannes Nordal um þetta að segja? „Hvað hagskýrslugerðina varðar tel ég ekki vera um tvíverknað að ræða. Verkaskipting milli þessara aðila er glögg því við sinnum fyrst og fremst frumskýrslugerð á sviði þjóðmála s.s. um stöðu eriendra skulda, um ástand og horfur í rekstri þjóðarbúsins o.s.frv. Annar meginþáttur í starfi hagdeild- anna eru spár og undirbúningur að stefnu og ráðgjöf fyrir írkisstjóm. Þar má segja að verkefni okkar og Þjóðhags- stofnunar skarist að einhverju leyti en um leið verður að teljast hollt að fleiri en einn aðili leggi fram álit í efnahagsmál- um. Þá gefst ríkisstjórn kostur á að bera saman hinar ýmsu tillögur og eins og allir vita sjá augu betur en auga.“ Seðlabankinn hefúr m.a. sætt gagn- rýni fyrir það að auk ráðgjafarhlutverks síns hafi bankinn með höndum margvís- lega stjórn á rekstri viðskiptabankanna og hún geti ekki samrýmst hugmyndum manna um aukið frjálsræði á fjár- magnsmarkaði. Jóhannes Nordal er ekki sammála þessari gagnrýni og segir m.a.: „Menn verða að athuga að bindiskylda á banka og sparisjóði er hagstjómar- tæki. Seðlabankinn getur einn stofnana í landinu sinnt því verkefni því eitt megin- hlutverk hans er að vera uppspretta peninga í landinu. Bankanum ber því skylda til að hafa áhrif á framboð peninga í umferð og reglumar um bindiskyldu em eitt af tækjunum til að hafa þar áhrif á. Við verðum að muna að Seðlabankinn er banki bankanna í iandinu og því ber honum að hafa eftirlit með rekstri þeirra að einhverju leyti.“ Jóhannes víkur að lokum að gagnrýni þingmanna og ráöherra og bendir á að á sama tíma og sumir þeirra ráðist að bankanum með órökstuddum fullyrðing- um aukist verkefni starfsmanna bankans jafnt og þétt, en þau séu fólgin í hvers konar uppiýsingaöflun fyrir þessa sömu aðila. „Við sinnum í auknum mæli hvers konar kvabbi frá stjómmálamönnum og ég vil taka skýrt fram að við kveinkum okkur ekki undan þeirri vinnu. Okkur er m.a. ætlað að veita þingmönnum upp- lýsingar og teljum að hún sé eitt besta tillegg til efnahagsumræðunnar í land- inu, sem við eigum völ á,“ sagði Jóhann- es að lokum. áður var. En um það hvort réttlætanlegt hafi verið að reisa 13000 fermetra bákn við ekki verið verða og Amarhól hafa menn munu líklega seint sammála. Stefán Þórarinsson forstöðumaður rekstrarsviðs Seð- labankans upplýsti okkur um að húsið væri nákvæmlega 13.263 fermetrar að grunnfleti. Byggingin skiptist í aðalhús, sem er fimm hæðir frá Amarhóli séð en sex hæðir miðað við Skúlagötu að norðanverðu. Við aðalbyggingu tengist svo lágbygging sem er 2-3 hæðir. Kjallari er undir allri byggingunni og þar em m.a. 80 bflastæði (Kolaport), vélasalur fyrir loftræstingu, geymslur, aðstaða fyrir starfsfólk og loks fjárgeymslur. A jarðhæð er afgreiðsla fyrir peninga- stofnanir, vinnusalir fyrir mynt- og seðla- talningu, fjárhirslur auk þess sem Reikni- stofa bankanna hefur um helming hæðar- innar á leigu. Nýtir sú stofnun um 30% af byggingunni í heild. A 1. hæð er aðalinngangur frá Amar- hóli, afgreiðslusalir, mötuneyti, gjaldeyr- iseftirlit og skrifstofur Ríkisábyrgðarsjóðs auk þess sem Reiknistofan er íhluta þessa húsnæðis. A 2., 4. og 5. hæð em skrif- stofur hinna ýmsu deilda bankans en á 3. hæð em Þjóðhagsstofnun og Iðnþróunar- sjóður til húsa. Staðfest hefur verið að kostnaður við þessa miklu byggingu, sem reis á tiltölu- lega skömmum tíma, hafi verið um 1700 milljónir króna á núverandi verðlagi og er þá tekinn inn kostnaður varðandi ýmis tæki og búnað, m.a. vegna öryggisráð- stafana sem auðvitað era hinar öflugustu í slíku húsi. Hver fermetri í Seðlabankabyggingunni hefur því kostað um 130.000 krónur og það verður að teljast alldýr bygging miðað við það sem gerist og gengur um skrif- stofuhúsnæði. Það skal þó undirstrikað að kostnaður hefur ráðist af því að mjög var vandað til byggingarinnar auk þess sem inni í þessum tölum er ýmiss konar dýr búnaður. Til dæmis þurfti að vanda mjög til byggingar fjárhirslna bankans þar sem gullið okkar allra er geymt neðan við sjáv- armál. Sérstakar fjái’veitingar úr ríkissjóði komu ekki til þessarar byggingar því bank- inn var reistur fyrir eigið fé og hafa margir nefnt þá skýringu sem gott dæmi þess að Seðlabankinn væri í raun ríki í ríkinu. 141STÖÐUGILDI í SEÐLABANKA Og þá er það mannskapurinn. Þar hafa Þeir sem gagnrýna Seðlabankann benda á að hann sé í veigamiklum atriðum kominn langt út fyrir verksvið sitt. ýmsar tölur verið í umræðunni en sam- kvæmt gögnum bankans sjálfs vom um síðustu áramót taldir 153 starfsmenn í Seðlabanka Islands eða 141 stöðugildi. Flest stöðug- ildi em í hagfræði- og peningamáladeildum eða 25, í banka- og gjaldeyriseftirliti vom 22.5 stöðugildi og 22 í aðalbókhaldi, rekstrardeild, tölvudeild og safnadeild. Þá vom 20 stöð- ugildi í afgreiðsludeild og fjárhirslum, 19.5 í þjónustustörfum ýmiss konar, m.a. mötuneyti og húsvörslu og 17 stöðugildi em í alþjóðadeild, erlendum viðskiptum, lögfræðideild og á skrifstofu bankastjóm- ar. Loks vom talin vera 9 gildi í sjóðadeild og 6 í endurskoðunardeild bankans. Sam- tals 141 stöðugildi eins og áður sagði. En hefur starfsmannafjöldi Seðlabank- ans aukist mikið frá því hann varð sjálf- stæð stofnun fyrir tæplega 30 ámm? Auð- vitað er slflct mat afstætt en við athugun kemur fram að hlutfallslega hefur stöðu- gildum fjölgað minna í Seðlabankanum á þessu tímabili heldur en í ýmsum öðrum ríkisstofnunum, t.d. ríkisbönkum, ýmsum sjálfstæðum ríkisfyrirtækjum og sumum ráðuneytum. Lítum nánar á. Arið 1961 vom stöðugildi við bankann MINOLTA LJÓSRITUNARVÉLAR NETTAR, LITLAR 0G LÉTTAR D-10 Lítil, einföld og því traust. Fyrirtak á skrifboröiö! Sú ódýrasta á markaðnum. og D-100 Japönsk snilldarhönnun, þýsk ending nákvæmni. Lágt verö og rekstarkostnaður. MINOLTA EP50 5 lita prentun ef vill, innsetning einstakra arka, hágæðaprentun og hagkvæmni í rekstri. iKJARAN Síðumúla 14,108 Reykjavík, S 83022 21
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.