Frjáls verslun - 01.03.1989, Síða 39
IBM Innskot — f fyrsta tölublaði Innskotsins 1989 tökum við stutt viðtöl við tvo
AS/400 notendur þar sem þeir segja frá reynslu sinni af AS/400 tölvunni. Einnig
ijöllum við um áhugaverðar nýjungar fyrir fyrrnefndar tölvur. Við förum í heimsókn í
Tölvuháskóla Verzlunarskóla íslands og skýrum frá auknu samstarfi við Gísia J.
Johnsen sf. og Skrifstofuvélar hf. Á bls. 3 kynnum við nýja IBM þjónustumöguleika
sem koma til með að hafa mikil áhrif á tölvuvæðingu fyrirtækja.
Fyrstu kynni af IBM AS/400
Halldór Friðgeirsson forstjóri Þróunar hf.:
skeið hafa verið haldin fyrir flesta sér-
fræðinga fyrirtækisins eða alls um 16
manns. Það er samdóma álit allra starfs-
manna að þarna sé á ferðinni mjög góð
tölva með mikla möguleika. Sérstaklega
„Fyrstu kynni mín af IBM AS/400
tölvunni voru þegar hún var kynnt
seinnihluta júní 1988. Kynningin hafði
þau áhrif á mig að þarna væri um tíma-
mót að ræða, ekki eingöngu hjá IBM
heldur í tölvuheiminum. IBM var enn á
ný að setja nýja staðla og í þetta sinn
fyrir tölvur af svokallaðri millistærð, þ.e.
fyrir 5-500 skjái,“ segir Halldór Frið-
geirsson, forstjóri Þróunar hf.
Mokkrir af athyglisverðustu eiginleik-
um AS/400 tölvunnar telur Halldór vera
eftirfarandi:
— Eitt og sama stýrikerfi fyrir tölvur sem
þjóna frá 5-500 skjám og er þægi-
legra í notkun en áður hefur tíðkast.
— lnnbyggt gagnagrunnskerfi, vensla-
grunnur fylgir tölvunni.
— Heilsteypt skrifstofukerfi fyrir tölvuna
kostar iítið.
— Alíslenskað skrifstofukerfi fylgir.
— Modemtenging við gangabanka IBM
á íslandi og erlendis.
— Sjálfsnám fylgir tölvunni. Það er mjög
gagnlegt fyrir byrjendur og í sumum
tilvikum einnig fyrir þá sem lengra
eru komnir.
„Við erum komnir yfir alla byrjunar-
örðugleika og erum mjög ánægðir með
AS/400 tölvuna okkar,“ sagði Jóhann
Björnsson, forstjóri hjá Ábyrgð hf., í við-
tali við Innskot.
Tryggingarfélagið Ábyrgð hf„ sem er
dótturfyrirtæki Ansvar í Svíþjóð, var eitt af
fyrstu fyrirtækjunum til að taka í notkun
AS/400 hérlendis. Þeir voru áður með
stóra S/36 tölvu (5360) og skiptu yfir í
minnstu útgáfuna af AS/400 (B10).
„Til að byrja með var ákveðið vanda-
mál með svartímann en eftir að búið var
að stækka minni vélarinnar í 8MB og
stilla hana lagaðist það. Núna er svartím-
inn svipaður og hann var á S/36 tölvunni
í beinlínuvinnslum en snöggtum betri í
— Fullkomnir möguleikar fyrir tengingu
við aðrar IBM tölvur ekki síst PS/PC-
tölvur. Tenging við þær er einkar ein-
föld í notkun.
— Lægri verð á viðhaldssamningum en
hefur þekkst hingað til.
— Mjög hagstæð verð á tölvunum ekki
síst á minnstu tegundunum.
— Tölvan er tæknilega mjög fullkomin
og má þar nefna 48 bita vistfang
(addressing) með einu allsherjar
sýndarminni (single level storage) og
hlutlæga gagnameðhöndlun (object
oriented).
Bylting í hugbúnaðargerð
Þróun hf. gerði samstarfssamning við
IBM á íslandi 25. nóvember 1988 og
keypti AS/400-B30 tölvu sem kom til
fýrirtækisins um miðjan janúar s.l. „Við
höfum því haft tölvuna í tæplega 2 mán-
uði og höfum notað þá til að læra á hana.
Tveir menn eru þar í fararbroddi en nám-
Sú ákvörðun Þróunar hf. að ganga til
samstarfs við IBM á íslandi á sl. ári
vakti að vonum mikla athygli. Ekki
einungis sökum þess að Þróun hf. er
eitt stærsta hugbúnaðarhús lands-
ins heldur og vegna þess að fyrirtæk-
ið hafði verið einn aðalsamstarfsaðili
Hewlett Packard og Kristján Ó.
Skagfjörð.
var mikil hrifning sérfræðinga Þróunar
hf. eftir námskeið á SYNON/2 - hönnun-
arumhverfinu á AS/400. Það er sam-
dóma álit að AS/400 með SYNON/2
hugbúnaði þýði byltingu í hugbúnaðar-
gerð og setji nýja staðla í þróun hugbún-
aðar hér á landi,“ sagði Halldór Friðgeirs-
son.
Ný kynslóð tölvukerfa
Þróun hf. stefnir að þvf að setja á mark-
að nýja kynslóð staðlaðra BIRKI-tölvu-
kerfa á AS/400-tölvuna. Áætlað er að
fyrstu kerfin verði tilbúin síðar á þessu ári.
Þróun hf. mun jafnframt nýta kosti
AS/400 og SYNON/2 fyrir sérhönnun á
tölvukerfum.
N0TENDUR
HAFA 0RÐIÐ
„Ánægðir með AS/400“
- segir Jóhann Björnsson, forstjóri Ábyrgðar hf.
samtíma runuvinnslum. Það tók um eina
viku að yfirfæra öll S/36 forritin yfir á
AS/400 og það gekk snurðulaust fyrir
sig,“ sagði Jóhann.
Hann sagði að Ábyrgð hf. væri með 22
beintengd jaðartæki og sem tryggingar-
félag væru það með nokkuð flókna
vinnslu. Ansvar í Svíþjóð og ýmis dóttur-
fyrirtæki þess á Norðurlöndunum eru
með IBM-tölvur og mörg þeirra hefðu
keypt AS/400 á undanförnum mánuð-
um.
„Sú framtíðarsýn að geta tengst al-
þjóða tölvuneti ÍBM til að komast í sam-
band við umheiminn er mjög spennandi
og kemur til með að auðvelda öll erlend
samskipti okkar í framtíðinni," sagði Jó-
hann að lokum.
39