Frjáls verslun - 01.03.1989, Qupperneq 40
Tölvuháskóli Verzlunarskóla íslands
Einstakt tölvuumhverfi
tölvum í gegnum fjarvinnslu. Á sama hátt
er hægt að fá aðgang að AIX vélinni (sjá
mynd).
Til frekari skýringar má lýsa netinu
þannig að hluti notenda getur verið að
vinna að verkefnum undir DOS, hluti að
verkefnum undir OS/2 og hluti notenda
80-386 vél sem keyrir A1X/PS2 (IBM - tengdur AS/400 og AIX. Það sem er
CJNIX) inn á tókanetið. áhugavert við þetta er að þama gefst
Þorvarður Elíasson, skólastjóri TVÍ og GunnarM. Hansson, forstjóri IBM á íslandi,
standa hér við AS/400 tölvusamstæðu skólans.
Á síðastliðnu hálfu ári hefur Tölvuhá-
skóli Verzlunarskóla íslands unnið að
uppsetningu á tölvubúnaði frá IBM sem
um margt er einstakur og skipar skólan-
um í hóp þeirra sem fremst standa í upp-
lýsingavæðingu hérlendis. Meðal þess
sem hér um ræðir má nefna:
■ Fyrsta OS/2 nærnetið á íslandi.
■ Fyrsta AS/400 vélin sem tengist á
tókanet.
■ Fyrsta uppsetning á ALX/PS2 (IBM-
GNIX á PS/2).
Eitt öflugasta íslenska
einkatölvunetið
Tölvuvæðing TVÍ hófst í ágúst sl. með
því að sett var upp hjá skólanum eitt
öflugasta einkatölvunet sem til er hér á
landi. Gm er að ræða 21 IBM PS/2 gerð
80-386 vélar sem tengdar eru IBM tóka-
neti. Hver vél er með 4MB innra minni og
70MB seguldiski. „Server" vélin keyrir
OS/2 EE 1.1 stýrikerfið en hægt er að
velja um það hvort aðrar vélar keyra
OS/2 EE 1.1 eða DOS eftir því sem viö á.
í desember keypti síðan Verzlunar-
skólinn AS/400-B30 vél með 12MB
minni og 1.2GB diskarými og var hún
tengd inn á netið.
Nýlega var svo lokið við að tengja PS/2
Miklir tengingamöguleikar
Nemendum tölvuháskólans gefst nú
með þessum búnaði kostur á að keyra á
sömu PS/2 vélinni OS/2 EE 1.1 með
„presentation manager" gluggakerfinu
eða DOS stýrikerfið. Þá geta notendur
samhliða notað netið til þess að tengjast,
á mjög einfaldan hátt, AS/400 vélinni og
þannig unnið við hana eða tengst öðrum
notendum kostur á að vinna í fjórum
mismunandi stýrikerfum, DOS, OS/2,
AIX og OS/400 í einu allt á sama netinu.
Tvíþætt markmið
Markmið Tölvuháskóla Verzlunar-
skóla íslands með þessu tölvukerfi var
aðallega tvíþætt. Annars vegar að setja
upp tölvuumhverfi sem gera má ráð fyrir
að flest stærstu íslensku viðskiptafyrir-
tækin verði með í framtíðinni. Hins vegar
er markmiðið að setja upp búnað sem
gagnast getur nemendum sem best við
lausn verkefna á sem flestum sviðum
tölvufræða. Fyrir valinu varð eins og fyrr
segir AS/400 fjölnotendavél og PS/2
einkatölvur og hugbúnaðurinn OS/2 og
OS/400. Sérstaklega var í þessu sam-
bandi litið til IBM-SAA hönnunarramm-
ans. Samhliða notkun AS/400 vélarinnar
við kennslu í TVÍ og VÍ verður hún notuð
fyrir skrifstofu skólans.
Þetta tölvuumhverfi Verzlunarskólans
hefur vakið svo mikla athygli, bæði innan
menntakerfisins og í atvinnulífinu að þeir
hjá „Versló" eiga fullt f fangi með að
mæta óskum um heimsóknir til að
skoða tölvukerfið.
Það leikur ekki á því vafi að með þess-
um búnaði styrkir TVl mjög stöðu sína til
kennslu í tölvufræðum. Nemendur
kynnast flestu því nýjasta sem ætla má
að verði í notkun hjá íslenskum fyrirtækj-
um á næstu árum og um leið er þeim
sköpuð einstök vinnuaðstaða.
Tölvuháskóli V.í.
IBM-PS/2-80
IBM-AIX OS/2
(UNIX) „server"
AS/400-B30
m
IBM TOKANET
20 stk. PS/2-80
Með OS/2EE1.1
DOS. 3.3
Yfiriitsmynd af tölvuumhverfi T.V.Í.
40