Frjáls verslun - 01.03.1989, Síða 47
Eysteinn Helgason:
Það eru allt of margir fundir haldnir hér
á landi miðað við það sem gerist í
Bandaríkjunum.
reynslu eru fundir þess vegna ekki
ofnotað form eða vettvangur til þess
slappa af. Hins vegar hafa ansi margir
það viðhorf til stjómenda sem sitja
mikið á fundum að „þeir geri barasta
ekki neitt því þeir séu alltaf á fund-
um.“
GAMAN AÐ KOMA Á FUNDI í REYKJAVÍK
Einn viðmælenda Frjálsrar versl-
unar sem ekki vildi láta nafns síns
getið sagðist hafa kynnst því í gegn-
um störf sín hversu auðvelt það væri
að fá menn utan af landi til þess að
koma á fundi sem haldnir væru í
Reykjavík. „Mönnum finnst gaman að
komast úr fásinninu í iðandi mannh'f
borgarinnar. Fundirnir sjálfir eru þá
ef til vill bara aukaatriði ferðarinnar og
jafnvel hafa mennirnir Ktinn áhuga á
fundarefninu. En þeir nota ferðina til
þess að sinna ýmsum einkamálum í
borginni, búa á góðu hóteli og oftast
án þess að þurfa að borga fyrir það og
fá auk þess frí úr vinnu. Það sama má
segja um utanlandsferðir íslendinga
vegna funda eða ráðstefna. í þessar
ferðir fer ótrúlega mikill kostnaður og
tími. Fundirnir sjálfir taka kannski
ekki nema nokkrar klukkustundir en
ferðin í heild nokkra daga. Það læðist
að manni sá grunur að í þessum tilfell-
Þorvaldur Guðmundsson:
Því færri fundir þeim mun betra.
um séu fundir notaðir til þess að
sækja afslöppun og skemmtan á fjar-
lægum stað svipað og þegar memi
utan af landi koma til Reykjavíkur á
ráðstefnur eða fundi.“
MARKVISSARA í ÚTLÖNDUM
Eysteinn Helgason núverandi
framkvæmdastjóri Plastprents hefur
eins og flestum er kunnugt starfað í
Bandaríkjunum sem framkvæmda-
stjóri Icelandic Seafood Corporation
og getur því frætt lesendur um það
hvort fundir séu eitthvað öðruvísi er-
lendis. „Það eru allt of margir fundir
haldnir hér á landi miðað við það sem
gert er til dæmis í Bandaríkjunum. Ég
held að fjarlægðir skipti miklu máli í
þessu sambandi. Hér er nálægðin svo
mikil og menn eiga mjög auðvelt með
að skreppa á fund. Erlendis eru fjar-
lægðir svo miklar að menn reyna að
afgreiða málin á annan hátt. Menn
nota símann, tölvuna eða telefax í
samskiptum sínum við fólk. En burt-
séð frá spurningunni um fjarlægðir
held ég að íslenskir fundir, hvort sem
þeir eru haldnir innan eða utan fyrir-
tækja, séu almennt of langir, ómark-
vissir, illa undirbúnir og þeim illa
stjórnað. Þar af leiðandi er ekki við
miklum árangri að búast. í Banda-
Stefán Friðfinnsson:
Bestu fundirnir eru þeir sem aðeins
einn er viðstaddur, það sparar
verulegan tíma.
ríkjunum eru fundir almennt miklu
betur skipulagðir og fundargerðin
stutt og hnitmiðuð. Hér á landi þyrfti
að gera mikið átak til þess að laga
fundaformið," sagði Eysteinn.
Þorvaldur Guðmundsson, þekkt-
astur sem Þorvaldur í Sfld og fisk og
einn ríkasti maður landsins, er sagður
lítt hrifinn af fundum og löngum funda-
setum og segir sjálfur; „Því færri
fundir þeim mun betra.“ Hins vegar
telur hann að fundir geti verið mjög
gagnlegir og nauðsynlegt sé fyrir
fyrirtæki að halda stundum innri
fundi. „Það er mikilvægt að fulltrúar
hinna ýmsu sviða innan fyrirtækja
hittist og tali saman. Hægri höndin
verður að vita hvað sú vinstri er að
aðhafast og einnig geta slíkar viðræð-
ur leitt til hagræðingar í rekstri.
Auðvitað eru orð til alls fyrst og til
dæmis eru fundir hjá Norðurlandaráði
að mínu mati mjög gagnlegir þótt
margir segi þá árangurslausa og
óþarfa. Bæði fyrirtæki og þjóðlönd
þurfa að hittast og skiptast á skoðun-
um en verða að gæta hófs í þeim efn-
um sem öðrum,“ sagði Þorvaldur.
OF MARGIR VONDIR FUNDIR
„Fundir eru í sjálfu sér hvorki góðir
né vondir en hins vegar má segja að of
47