Frjáls verslun - 01.03.1989, Page 59
TÆKNI
OFT ER í HOLTI HEYRANDI NÆR:
HLERANIR - ERU ÞÆR
STUNDADAR HÉR?
Greinarhöfundur Arnþór
Þórdarson er
rafmagnsverkfrædingur frá
Háskóla íslands og starfar hjá
tæknideild Félags íslenskra
iðnrekenda.
Ýmsar vísbendingar eru um
að hleranir séu við lýði hér á
landi. I íslenskum lögum er slíkt
athæfi stranglega bannað og
aðeins í mjög mikilvægum til-
vikum er lögreglu heimilt að
hlera síma manna og þá aðeins
að dómari hafi heimilað slíkt.
Tæknin er fyrir hendi, tækin er
auðvelt að fá. Erlendis eru hald-
in námskeið um hleranir og
varnir gegn þeim. Frjáls verslun
kynnti sér þessi mál nánar.
ÖRYGGIER ÁFÁTT HÉRLENDIS
Nefnd á vegum ríkisins hefur nú
um nokkurt skeið fjallað um innra ör-
yggi íslenska ríkisins og þá einnig ör-
yggi helstu ráðamanna þjóðarinnar.
Þetta er mjög tímabært og það má
með ýmsum rökum halda því fram að
hér á landi séu vissir þættir á sviði
öryggismála einstaklinga, fyrirtækja
og ekki síst ríkisins ekki í samræmi
við aðstæður.
Þegar leiðtogar Bandaríkjanna og
Sovétríkjanna komu hér til fundar
haustið 1986 urðu landsmenn vitni að
mestu öryggisráðstöfunum hér á
landi frá stríðslokum. Þótti mörgum
nóg um og margir áttu eríitt með að
ímynda sér þá ógnun hér í fásinninu
sem útheimti þvílíkt og annað eins.
íslendingum er í fersku minni er
tveir erlendir skemmdarvargar komu
til landsins og unnu spjöll í Hvalstöð-
inni, sökktu tveimur hvalveiðiskipum
við bryggju í Reykjavík og hurfu síðan
úr landi án þess að nokkuð fengist að
gert.
Stjórnendur ýmissa fyrirtækja hér-
lendis hafa gripið til þess ráðs að hafa
húsakynni fyrirtækjanna læst en af-
henda starfsmönnum þeirra sérstök
aðgangskort og hafa síðan strangt
eftirlit með öllum gestum. Þetta er
gert í öryggisskyni. Fyrir skömmu
var haft eftir forstjóra fyrirtækis, sem
hefur haft slíkt öryggiskerfi í nokkur
ár, að menn hefðu í byrjun verið treg-
ir til að skilja mikilvægi þess að
tryggja öryggi starfseminnar og gest-
ir gjaman brosað að tiltækinu.
í febrúar á þessu ári var það í frétt-
um að einkasímtal tveggja íslenskra
ráðherra hefði óvænt heyrst í þriðja
símanum og ekki fundist nein skýring
á þessum samslætti í símakerfmu.
Aðeins tveimur vikum síðar vaknaði
grunur um að sími tiltekins blaða-
manns í Reykjavík væri hleraður. Það
atvikaðist svo að ljós tók að loga á litlu
aðvörunartæki sem blaðamaðurinn
hafði tengt við síma sinn og gaf þar
með til kynna að verið væri að hlera
símann. Sérfræðingar Pósts og síma
rannsökuðu í þessu tilviki símakerfið í
húsi blaðamannsins en fundu ekkert
athugavert.
Samtöl í farsímum og fjarskipti
lögreglu má hlusta á í sérstökum við-
tækjum með breitt tíðnisvið og leitara
sem finnur þær bylgjur sem eru í
notkun hverju sinni. Tæki þessi (svo-
nefndir „Skannar") eru víða til og hafa
þá verið keypt erlendis því að sala á
þeim er ekki leyfð hér. Póstur og sími
hefur lýst því yfir að innan tíðar verði
boðið upp á brenglunarbúnað fyrir
farsímanotendur þannig að ekki verði
lengur hægt að hlera þau símtöl sem
fara í gegnum farsímakerfið.
59