Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1989, Page 60

Frjáls verslun - 01.03.1989, Page 60
TflEKNI REFSIVERT ATHÆFI Nútímatækni gerir kleift að hlera nánast hvaða fjarskipti sem er, þ.e.a.s. venjulega síma, farsíma, tal- stöðvar, póstfax og telex. Jafnvel vinnslu í tölvum og sendingar milli tölva er hægt að hlera og þýða. Það er auðvitað algerlega bannað samkvæmt íslenskum lögum að hnýs- ast á þennan hátt í einkamál annarra og líklegt að tekið sé afar hart á lög- brotum af þessu tagi fyrir dómstól- um. I íslenskum lögum varðar slíkt athæfi fjársektum eða allt að eins árs varðhaldi. Sé nútímarafeindatækni beitt eru menn álíka berskjaldaðir eins og þeir voru þegar gamla sveitasímakerfið var og hét. Þá voru margir símnot- endur sem notuðu sömu símalínu og gat þá hver sem var tekið upp tólið og hlustað (legið á línunni) á samtal ein- hverra tveggja aðila sem voru að tala saman. Ef menn vildu koma leynileg- um upplýsingum áleiðis þá varð að notast við einhvers konar dulmál. KEYPT GEGNUM PÓSTVERSLANIR Starfsemi á sviði rafeindanjósna er nú orðin blómleg atvinnugrein erlend- is. Frjáls verslun hefur undir höndum Pöntunarlisti fyrir hlerunarbúnað. ítarlega vörulista frá þýskri póst- verslun sem býður til sölu úrval af hvers kyns tækjum og búnaði til hler- unar - og til þess að finna hlerunar- búnað svo koma megi í veg fyrir hler- anir. Lítum sem snöggvast í vörulist- ann. SÍMIHLERAÐUR Til þess að hlera símtöl er hægt að kaupa örsmáan FM-sendi sem komið er fyrir í tengidós fyrir símtækið eða annars staðar þar sem hægt er að komast að símaleiðslunni. Þessi sendir er á stærð við sykurmola og vegur aðeins 4 grömm. Hann fær orku frá símakerfinu og þarfnast ekki rafhlaða. Þegar síminn er notaður þá nemur sendirinn samtalið og sendir út á fýrirfram valinni FM-tíðni. Þessi tíðni er þá valin innan þess sviðs sem venjuleg útvarpstæki ráða við (88 til HO MHz). Sendirinn dregur allt að 500 metra og innan þeirrar fjarlægð- ar, t.d. í bíl eða öðru húsi, má þá hlýða á símtalið í venjulegu FM-útvarps- tæki. Verðið er 500 mörk. HUÓÐNEMI í BLÓMAVASANUM! Til þess að hlera símtöl manna í tilteknu herbergi býðst lítill FM- sendir (á stærð við sykurmola) með innbyggðan hljóðnema og rafhlöðu. Þennan búnað þarf síðan að fela í her- berginu t.d. festa með kennara- tyggjói undir borðplötu, gluggasyllu eða einhveiju álíka. Búnaðurinn nem- ur síðan allt talað mál í herberginu og sendir þráðlaust út á fyrirfram stilltri bylgjulengd. í góðu útvarpstæki má síðan hlýða á sendinguna í nokkur hundruð metra fjarlægð. Hljóðnem- BAY JAC’OBSEN heilsudýnan og koddinn hafa fengiö frábærar viðtökur um allan heim. Dýnan lagar sig eftir þunga líkamans. Dýnan nuddar líkamann á meðan þú sefur. BAY JACOBSEN RUMIÐ hf Grensásvegi 12 Sími: 678840 60

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.