Frjáls verslun - 01.03.1989, Síða 67
lagðir séu metnir rétt m.t.t. krónu og
aura.
Við höfum þegar sagt að fjárfesting
í upplýsingavæðingu sé langtíma
verkefni, þ.e. fjárfesting á sér stað
jafnt og þétt. Ef við tökum ekki tillit til
þessa er hætt við að boð seljenda séu
í reynd ekki samanburðarhæf.
Mín skoðun er sú að í það minnsta
við allar stærri ákvarðanir varðandi
tölvukaup fari fram 3-5 ára fjárfest-
ingargreining á kostunum, sem miði
að því að gegnumlýsa ólík tilboð. Við
köllum þetta fjárfestingu á eignar-
haldstíma, sem er sá tími, 3-5 ár, sem
búnaðurinn skilar sínu hagræna gildi
(economic value).
Við greiningu af þessu tagi koma
stórmerkilegir hlutir í ljós og ýmsar
ályktanir verða dregnar bæði almenn-
ar og sem snerta einstaka tölvufram-
leiðendur. Til að sýna fram á hvað átt
er við geri ég nú grein fyrir yfirgrips-
mikilli skýrslu Sierra - hópsins um
kostnað af eignarhaldi af tölvuvæð-
ingu til 5 ára.
SIERRA-hópurinn í Arisona fram-
kvæmdi könnun bæði 1987 og 1988 á
bandaríska tölvumarkaðnum sem
kölluð er COST OF OWNERSHIP, í
lauslegri þýðingu útgjöld á eignar-
haldstímanum fyrir millistærðir af
tölvum (Mid-range). Sierra hópurinn
er sjálfstæð stofnun og óháð tölvu-
framleiðendum með öllu. Þess má
geta að þessar skýrslur hafa haft mikil
áhrif og vakið verðskuldaða athygli.
Sierra framkvæmir þessa grein-
ingu í þeim megintilgangi að sundur-
greina frumskóg tilboðanna og leggja
notendum tæki í hendur til að sjá
skóginn fyrir trjánum. Aðferðin er
þessi: Sierra sendir leiðandi tölvu-
fyrirtækjum (trendsetters) bréf þar
sem óskirnar eru settar fram. Tölvu-
fyrirtækið sjálft er þar beðið um að
senda inn verð á búnaði m.v. tiltekinn
notendafjölda og tiltekin skilyrði.
Hefð er að myndast á að kljúfa mark-
aðinn niður í sex hópa: m.v. 4-8-16-
32-50 og 100 notendur og eru tölvu-
framleiðendur beðnir um að gefa upp
gerðir búnaðar og verð á honum til að
þjóna þessum fjölda notenda. Skilyrð-
in eru þá:
Fjöldi vinnustöðva og prentara
sem samræmist notendafjölda (4-
100). Diskastærð m.v. 20 MB pláss
pr. notanda. Svartími að hámarki 2-5
sekúndur. Notendahugbúnaður s.s.
ritvinnsla, tölvupóstur, töflureiknar,
grafík, gagnagrunnsfyrirspurnir.
Minnisstærð sem styður við notkun/
íjölda. Segulband.
Tölvufyrirtækin senda síðan inn
SÓLARGLUGGAFILMUR
★
Við setjum Gila
sólargluggafilmu á
skrifstofuna - vinnustað-
inn
og þú losnar við meira
en helming sóiarhitans.
Tölvarar, það verður
þægi-
legra að vinna við tölvuna
- minni hiti á sólríkum
dögum, jafnari og mildari
birta, betra að sjá á skjá,
minna um glampa og flökt.
★
Svarta Gila bílafilman
loksins komin aftur.
%R0T
BÍLDSHÖFÐA 18, SlMI 672240
67