Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1992, Page 40

Frjáls verslun - 01.04.1992, Page 40
INNRETTINGAR réttinga. Stærsta línan hjá fyrirtæk- inu heitir d line og kemur frá Dan- mörku. Innflutningur d line hófst snemma á síðasta áratug en fram- leiðsla vörunnar hófst fyrir mörgum áratugum. Elstu hlutimir eru enn í framleiðslu en jafnframt bætast nýir alltaf við. Einnig koma ýmsir hlutir á baðístíl, t.d. handklæðaslár, hankar, höldur fyrir salemisrúllur o.m.fl. Úr- valið er því mjög mikið. Aðalkostur þessarar vöru, segir Sofía Johnson hjá Asetu, er hversu sígild og vönduð hún er. Hún er úr ryðfríu stáli og messing en hvort tveggja gengur vel við allar viðartegundir og liti. Hjá Asetu fást einnig lamir og skrár úr ryðfríu stáli og messing. DES-FORM Innanhússarkitektamir, sem eiga Des-Form, Brautarholti 3, veita einnig mjög persónulega þjónustu. Oft er farið í heimahús og gerðar til- lögur sem svo er unnið eftir. Þeir selja vömr frá ítalska framleiðandan- um Schiffini og er það vörumerki vel þekkt og virt á heimsmarkaðnum. A.m.k. 12 höfuðlínur eru í boði en niðurstaðan verður ætíð mjög sér- stæð og persónuleg smíð, að sögn Kristins Brynjólfssonar hjá Des- Form. í Schiffini innréttingunum er viði, allskyns tegundum, gleri og plasti einatt blandað saman. Höldur eru oftast úr áli, mikið er um opnar hillur og gufugleypar yfir eldavél skipa oft veglegan sess. Borðplötur geta verið úr granít, ryðfríu stáli og fleiri tegundum. Eldhúsinnrétting frá Des-Form kostar uppsett yfirleitt á bilinu 700.000-800.000 kr. Innréttingin á myndinni er hönnuð fyrir Schiffini af ítalanum Vico Magist- retti. Hurðirnar eru lakkaðar og fáanlegar í ýmsum litum. Með þessari innréttingu hefur verið valin borðplata úr marmara og hann svo látinn halda áfram upp vegginn. LITAVER Litaver, Grensásvegi 18, hefur á boðstólum flísar, sem henta vel í eld- hús og baðherbergi, frá ítölsku fyrir- tækjunum Girandi og Pastorelli. f dag er mikið um það að fólk blandi mis- munandi litum saman, t.d. bleiku og gráu. Undantekningarlítið ákveða kaupendur flísa jafnframt að hafa ein- stakar flísar með myndum inn á milli. Aðallega er um að ræða þrjár stærðir veggflísa sem kosta á bilinu 1.440- 2.500 kr. fermetrinn. Gólfdúkar eru einnig til í versluninni en gólfflísar njóta mun meiri vinsælda. Ljósir litir eru vinsælastir á gólfið og kosta mest seldu gólfflísamar í Litaveri á bilinu 1.600-2.400 kr. Á myndinni sjást nokkrar gerðir þeirra flísa sem eru á boðstólum í Litaveri en úrvalið þar er vitaskuld mun meira en hægt er að sýna á einni mynd. 40
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.