Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1992, Page 104

Frjáls verslun - 01.04.1992, Page 104
BREF FRA UTGEFANDA LITLAR OG STÓRAR SAMNINGANEFNDIR Þegar þessar línur eru skrifaðar að lokinni páska- hátíð ríkir enn óvissa um niðurstöður í kjarasamn- ingamálum aðila vinnumarkaðarins. Allt frá því að þjóðarsáttarsamningarnir runnu út og þreyfingar hófust um nýjan samning hefur það raunar legið í loftinu að mikill vilji sé fyrir því hjá öllum hlutaðeig- andi að samið verði á svipuðum nótum áfram enda liggur íyrir að meginmarkmið þjóðarsáttarinnar náðist og fullyrða má að ástandið í atvinnumálum á íslandi nú væri enn óbjörgulegra ef ekki hefði komið til sá stöðugleiki og sú festa sem fylgdi þjóðarsáttar- samningunum. Það voru flestum mikil vonbrigði þegar upp úr samningaviðræðum slitnaði eftir lang- varandi fundahöld og þegar flestir héldu að nú myndu lausu endarnir verða hnýttir. Það eru gömul sannindi og ný að fátt drepur athafnalíf í landinu í eins mikinn dróma og óvissa um kjarasamninga, einkum og sér í lagi þegar ástandið er þannig að enginn veit í raun hvað verður. Allir eru að bíða. Það þarf kannski engan að undra þótt kjarasamn- ingar taki langan tíma. Það er eðlilegt að mismun- andi viðhorf og skoðanir komi endalaust fram, ekki síst þegar meginhluti launþegahreyfingarinnar stendur sameiginlega að samningunum. Hagsmunir hinna ýmsu hópa innan hreyfingarinnar eru gífur- lega mismunandi. Sumir búa við bærileg kjör og atvinnuöryggi meðan aðrir og þá sérstaklega þeir, sem vinna í framleiðslugreinunum, hafa rýr kjör og vita raunar aldrei hversu lengi þeim helst á vinn- unni. Það, sem gerir samningamálin enn flóknari og erfiðari, er sá gífurlegi mannsöfnuður sem stendur að þeim. Þar eru „litlar" og “stórar“ samninganefnd- ir og í fjölmiðlum má sjá myndir af fullum sölum af fólki sem hefur einhverju hlutverki að gegna í samn- ingamálunum. Á yfirborðinu lítur þetta kannski vel út og á að vitna um valddreifingu en slíkar hópsam- komur eru ekki líklegar til þess að skila miklum árangri. Þvert á móti er sennilegra að þær geri lítið annað en að þæfa málin og flækja. Launþegahreyf- ingin kýs sér forystumenn, þá sem hún treystir best til þess að reka sín mál, hvort heldur er í kjarasamn- ingum eða öðrum málum, og það er misskilið lýð- ræði þegar málum er svo fyrirkomið að þeir þurfa síðan að vera að bera mál undir stóra og smáa hópa. Sú hefð hefur einnig skapast að atkvæðagreiðsla fer jafnan fram um kjarasamninga í öllum launþegafé- lögum og þar fá allir tækifæri til þess að láta í ljós skoðun sína. Stundum finnst þeim, sem standa utan við sjálft samningaþrefið, að stóru og smáu nefnd- irnar séu fyrst og fremst til þess að klappa fyrir foringjunum þegar þeir flytja skörulegar ályktunar- tillögur úr ræðustól. Sumir forystumennirnir þurfa reyndar ekki á slíku klappi að halda og vita manna best um hvað málið snýst. Vissulega eru kjarasamningar nú erfiðari en oft áður. Þjóðarframleiðslan dregst saman, þjóðartekj- ur minnka og við Islendingar stefnum í aðra átt en nágrannaþjóðirnar og helstu viðskiptaþjóðir okkar sem búa nú við vaxandi hagvöxt. En við höfum fyrr átt við vandamál að etja — niðursveiflur í íslensku efnhags- og atvinnulífi eru ekkert einsdæmi og öldu- dalurinn hefur jafnvel verið töluvert dýpri áður en hann er nú. Og við höfum unnið okkur út úr vandan- um og munum einnig gera það að þessu sinni. En til þess þurfa vitanlega allir að taka höndum saman og það er ekki síst hlutverk þeirra, sem sitja við samn- ingaborð kjarasamninga, að finna skynsamlegustu lausnlina og móta stefnuna. Það skref, sem stigið var með þjóðarsáttarsamningum í fyrra, var mikils- vert og hefur þegar skilað árangri. Það væri í meira lagi óviturlegt ef nú yrði hopað og sá árangur, sem náðst hefur, eyðilagður. En því miður sýnir reynsla undangenginna áratuga að slíkt er síður en svo óhugsandi. Oft áður hafa kjarasamningar miðað að ákveðnu marki en blekið hefur stundum varla verið þornað í undirskrift samningamannanna þegar allt hefur farið á skjön. Svo má ekki verða nú. 104
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.