Frjáls verslun - 01.01.1995, Page 45
tal inn á heimili. Möguleikar símtækja
í fyrirtækjum endurspegla afkasta-
getu þeirra símstöðva sem eru í fyrir-
tækjunum.
Lítum þá á ýmsar tækninýjungar í
símtækjum og nokkra þá möguleika
sem eru fyrir hendi í sérþjónustu
Pósts og síma í almenna símakerfmu.
Símtækin hafa þróast í það að gefa
ýmsa möguleika, til dæmis SKAMM-
VALSMINNI þar sem forritað er fast
símanúmer undir hvem takka.
Aðeins þarf að ýta á takkann og þar
með hringir í viðkomandi númer.
Ennfremur má nefna tækni sem
nefnd hefur verið HÁTALANDI
(handfrjálsnotkun). Með því að ýta á
einn takka þarf ekki að halda á símtól-
inu heldur er talað til tækisins í sam-
talinu og tal þess, sem rætt er við,
berst frá tækinu. Hægt er til dæmis
að sinna einhveiju heimilsverki, til
dæmis í eldhúsinu, um leið og talað er
í símann.
AÐVELT AÐ HALDA SÍMAFUNDI
Hátalstæknin gefur einnig mögu-
leika á að halda SÍMAFUNDI. Fleiri
geta þá komið að símtækinu og talað
og hlustað á viðmælandann, eða raun-
ar viðmælendur séu þeir fleiri en
einn. Þannig er hægt að tengja saman
tvo fundi í sitt hvoru fyrirtækinu.
Hægt er síðan að tengja þá samtímis
við þriðja fundinn í þriðja fyrirtækinu
með sérþjónustu Pósts og síma.
Þetta símafundakerfi getur komið
sér vel fyrir framkvæmdastjóra sem
þarf einhverra hluta vegna að dvelja
heima hjá sér þann daginn. Hann get-
ur haldið símafund með bæði starfs-
mönnum sínum og starfsmönnum
annars fyrirtækis í einu.
Sérþjónustan býður einnig upp á
SÍMAVAKNINGU og SÍMTALS-
FLUTNING fyrir tónvalssíma. Síma-
vakningin felst í að láta vekja sig,
hringja í sig. En með sérþjónustunni
þarf ekki að hringja niður á Póst og
síma og biðja um þjónustuna heldur er
tíminn, sem menn ætla að vakna á,
sleginn inn á símann.
AÐTENGJA „BEINA SÍMANN"
HEIM EFTIR VINNU
SÍMTALSFLUTNINGUR virkar
til dæmis þannig að sá, sem er með
SIEMENS
Alltaf-allsstaðar
með Siemens
Það er engin tilviljun að Borgarspítalinn,
Landsvirkjun, ÍSAL, Vegagerð ríkisins, LÍN, Hreyfill,
Mjólkursamsalan, AmmaLú, ýmsar lögmannsstofur,
stofnanir og fyrirtæki treysta á
Siemens símabúnað í rekstri sínum.
HicomlOO eru símstöðvarnar og
símkerfin frá Siemens. GLesileg, traust og
örtigg kerfi sem sinna þörfiim stórra sem
smárra jyrirtœkja. Verðjrá kr. 42.000,-
miniset 300 símamir eru nettir, sterkir
ogpassa alls staðar. Sérlega mikil talgœði.
Vinseelir símar. Verð frá kr. 5400.-
Siemens S3
er GSMfarsíminn.
Hann er nettur, léttur
__ og alltaf tiltœkur.
Ymis aukabúnaður
fáanlegur.
Vandað tœki á góðu verði.
/
euroset 800 eru bin fullkomnu símtœki.
Þýsk völundarsmíð eins og húti gerist best.
Ýmsar stœrðir oggerðir.
Verðfrá kr. 5600.-
Siemens framleiðir einfaldlega afburða tæki og sé horít
á þjónustu- og rekstrarkostnað eru þau sérlega
hagkvæmur kostur fyrir allar stærðir fyrirtækja.
Viljirðu
endingu og gæði
velurðu Siemens
SMITH &
NORLAND
NÓATÚNI 4 • SÍMI 628300