Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1995, Page 33

Frjáls verslun - 01.06.1995, Page 33
lilliilllll! OiH IIIH II i/í'ifIII,. 'LLiHí i.. /.;, j/;/í H IM-, IlIIIiIIfillxiií jíll HIiH HÚN STJÓRNAR OG ÞORIR Björk býr í Englandi og þaðan stjórnar hún veldi sínu. Innan poppheimsins segja menn að hún sé mjög skynsöm og yfirveguð í viðskiptum. Hún stjórni og þori að fara eigin leiðir. Hljómsveitir gætu vel við unað að selja jafn rnikið af plötum og Björk. En athugið! Björk er svonefndur sóló- isti. I samanburði við fimm manna hljómsveit situr hún ein að ágóðanum, hann dreifist ekki á fimm hend- ur. selja á hæsta verði en af- sláttur og tilboð eru í þess- ari atvinnugrein sem öðr- um. Framleiðslan, útgáfan og dreifingin er á herðum útgáfna. Raunar semja þær oft við önnur fyrirtæki um dreifmgu á plötunum. Vald hljómplötuútgáfn- anna er mikið - þó ekki meira en samningamir við tónlistarmennina kveða á um. Utgáfumar taka ekki aðeins nokkra áhættu held- ur skuldbinda þær sig gagn- vart tónlistarmönnunum um að taka lögin upp og gefa þau út. Venjan er að útgáfurnar reiði af hendi fyrirfram- greiðslu til listamannanna í upphafi samstarfs. Þær em óendurkræfar af hálfu út- gáfnanna hlaupi snuðra á þráðinn og ekkert verði af plötugerð. „PUBLISHING“ SAMNINGAR Plötusamningurinn við hljómplötu- útgáfumar skiptir vissulega mestu máli fyrir tónlistarmennina. Engu að síður liggja tekjumöguleikar þeirra mun víðar, sérstaklega hjá alþjóðleg- um stjömum á borð við Björk. Sam- keppnin er hörð og vinsældir geta dal- að á skömmum tíma þannig að mikil- vægt er að nýta sér frægðina til öflunar tekna á meðan sólin skín skært. Fyrir utan plötusamninginn við hljómplötuútgáfumar gera tónlistar- menn yfirleitt svonefnda „publishing" - samninga við svonefnd „publishing- fyrirtæki“. Þótt nafnið bendi til samn- ings um útgáfu er um annars konar samning að ræða en við hljómplötuút- gáfumar. Hlutverk þessara fyrir- tækja er að gæta hagsmuna laga- og textahöfunda varðandi höfundarlaun- in en ekki síst að halda höfundum á lofti og selja lög þeirra til annarra tón- listarmanna og hljómplötuútgáfna vítt og breitt um heiminn. Þekkt er að tónlistarmenn flytji lög, sem áður hafa verið gefin út, á hljómplötum. í mörgum tilvikum er það svo að „publishing-fyrirtækin" eignast rétt í lögunum ásamt höfundunum. Við það skiptast höfundarlaimin á milli þeirra eftir því hve umsaminn réttur „pub- lishing-fyrirtækjanna“ er mikill. Eftir að Björk varð alþjóðleg stjama hefur hún vakið athygli margra topptónlistarmanna. Ma- donna hefur verið með hana á heilan- um um nokkurt skeið og farið afar lofsamlegum orðum um hana í hverju viðtalinu af öðru. Hún hefur ekki aðeins hælt Björk heldur líka sungið lag eftir hana. Sömuleiðis hefur söng- konan Anni Lennox farið í smiðju Bjarkar og sungið lag eftir hana. Þá má geta þess að tvö laga Bjarkar, Play dead og Army of me, hafa verið notuð í kvikmyndum. Fyrir þetta hef- ur hún fengið góðar tekjur. En vegna skorts á upplýsingum sleppum við þessum tekjum hennar í reiknings- dæmi okkar. UMBOÐS-OG FJÁRMÁLAMENN Það em fleiri samningar sem alþjóðlegar stjömur í tónlistarheiminum þurfa að gera. Flestar hafa samning við góða umboðsmenn og framkvæmdastjóra sem em á prósentum, fá þetta á bil- inu 10 til 20% af heildarveltu viðkomandi tónlistarmanns. Þessi kostnaður vegur þungt í útgjöldum tónlistar- manna. Hlutverk umboðs- manna og framkvæmda- stjóra er að koma þeim sem víðast á framfæri og skipu- leggja starfið. Þá em stjömurnar með samning við lögmenn og ijármálamenn. Þeir samn- ingar þýða einnig útgjöld fyrir stjömumar en skapa þeim að sjálfsögðu líka tekj- ur ef rétt er staðið að mál- um. VÍÐA LIGGJA MÖGULEIKAR En möguleikar alþjóðlegra stjama á tekjum eru fleiri en í plötusölu. Al- þjóðlegar stjörnur eru með samninga um hljómleikahald langt fram í tím- ann. Standa þarf rétt að þeim málum. Einnig em svokallaðir söluvörusamn- ingar vinsælir. Ekki má heldur gleyma samningum við kynningarfyr- irtæki (PR-fyrirtæki), sem sjá um al- mannatengsl þeirra og koma þeim á framfæri við fjölmiðla. Mikil og stöðug umfjöllun í fjölmiðl- um er afar nauðsynleg fyrir tónlistar- menn, ekki síst fyrir þá sem eru að byrja í faginu og þurfa að kynna sig. Mikilvægast er þó auðvitað að láta verkin tala, að semja og syngja lög sem verða vinsæl - og seljast. PANTA VERÐUR VIÐTAL MÁNUÐI FRAMÍTÍMANN Björk getur ekki kvartað yfir því að hafa ekki fengið umfjöllun í fjölmiðl- um. Enda gerir hún það ekki. Hún er 33

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.