Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1995, Side 40

Frjáls verslun - 01.06.1995, Side 40
ERLENDIR FRETTAMOLAR PLEXIFORM SMÍ ÐAR ÚR PLASTGLERI Við smíðum hverskonar hluti eftir teikningum eða eftir hverjum þeim hugmyndum sem þið hafið. s.s.: þóstkassa fyrir fjölbýlishús, vörustanda fyrir verslanir, safnaskápa, símaskrárhillur, blaðastanda, öskjur fyrir skjöl og tímarit o.fl. PÓSTKASSAR Erfiðleikar hjá Dennis Hayes stofnanda Hayes-mótaldafyrirtækisins. SKORTUR Á FJÁRMÁLASTJÓRN Bandaríska fyrirtækið Hayes Microcomputer Products Inc., fram- leiðandi tölvumótalda, var keypt af Boca Research Inc. fyrir 48,9 milljón- ir dollara í júní sl. Auk þessa fylgdu í kaupunum yfirtaka skulda að upphæð 42 milljónir dollara. Stofnandi HMP, Dennis Hayes, reyndi að spoma við gæðaframleiðslu og lægri verðum keppinauta um árabil, þ.á.m. Boca Research Inc., en slæm staða fyrir- tækisins endaði með sölu þess. Hayes er aðstoðarforstjóri hins nýja fyrirtækis eftir samruna HMP og BRI, sem heldur nafni þess fyrr- nefnda. Talið er að erfiðleika HMP hafi mátt rekja til skorts á vandaðri fjármálastjórn, svifaseinna viðbragða í verðsamkeppni, yfirsjóna í rekstri, og „blindrar“ stefnu stofnandans. Tökum að okkur viðgerðir á plasthlutum. Einnig getum við útvegað tvöfalt sólarplast í sólskála og skjólveggi í þykktum 8-16 mm. Báruplast höggþolið og alveg tært. Getum annast uppsetningar. LAUSNIN ER 1 W PLEXIFORM Dalshrauni 11 • Hafnarfirði Sími: 555 - 33 - 44 Fax: 555 - 33 - 45 Símboði: 846 - 20 - 50 FUJIEÐA KODAK? Baráttan um hlutdeild ljósmynda- vöruframleiðendanna Fuji og Kodak á bandaríska og japanska markaðnum hefur verið í sviðsljósinu. í Japan sel- ur Fuji á heimamarkaði og hefur 70% markaðshlutdeild meðan hið banda- ríska Kodak er með 9%. Kodak hefur aftur á móti rúmlega 70% hlutdeild á heimamarkaði og Fuji um 11%. Kodak hefur ekki tekist að komast að hjá fórum helstu dreifingaraðilunum í Japan, sem dreifa vörum Fuji og ná til 70% markaðarins. 1 markaðssetningu hefur Kodak kostað sumo-glímu og knattspyrnu, en þeir ná ekki að jafna TEXTI: STEFÁN FRIÐGEIRSS0N Fuji og Kodak berjast grimmt. 190 milljóna dollara auglýsingafé Fuji á heimavelli. í Bandaríkjunum hefur Fuji tekist að komast að hjá Wal-Mart o.fl. slíkum og lágt verð hefur náð athygli sparsamra kaupenda, en Kodak er talið fá betra hillupláss. Samkeppnin er hörð og ráðgjafinn Don Becker telur að „sumt af mark- aðsráðstöfunum Fuji í Japan sé ekki ólíkt því sem Kodak beitir á heima- markaði". 40

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.