Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1995, Page 41

Frjáls verslun - 01.06.1995, Page 41
Sala á Windows ’95-stýrikerfinu er talin verða 1 milljarður dollara fyrsta árið. Það svarar til 60 milljarða króna. 60 MILUARDAR FYRSTA ÁRIÐ Microsoft, framleiðandi Windows ’95-stýrikerfins, er talið fá 1 milljarð dollara í tekjur af uppfærslunni yfir í hið nýja stýrikerfi á fyrsta ári í sölu þess, og þá eru önnur forrit í fram- leiðslu fyrirtækisins ekki talin með. Tölvuframleiðendur og framleiðend- ur einstakra hluta í tölvur njóta góðs af þegar notendur uppfæra eldri tölv- ur eða kaupa nýjar, auk þess sem tækifæri er fyrir hönnunarfyrirtæki tölvuforrita til aukinnar sölu með upp- færslum á eldri útgáfum. Hugbúnað- arfyrirtæki gætu þó einnig átt á hættu að missa sölu, þar sem ýmislegt í Windows ’95 mun auka samkeppni við þá fyrrnefndu. Risarnir IBM með OS/2-stýrikerfið og Apple-fyrirtækið hafa fengið enn harðari samkeppni en áður. Á haustönn 1995 bjóðum við kennslu ífjölmörgum greinum. Tómstundanám - bóklegar, verklegar greinar og prófanám - grunnskóli og framhaldsskóli. Trúarbragðasaga, svæðanudd, ritlist, glerskurðut; kvikmyndafræði, skokk, auk flestra almennra kennslugreina Nánari upplýsingar og innritun í Miðbœjarskóla, Fríkirkjuvegi 1. Skrifstofan eropin daglegafrá kl. 13.00 - 19.00. Símar 551 2992 og 551 4106. Athugið að kennslugjaldi er í hóf stillt, en greiðist fyrirfyrstu kennslustund. ATH! V.R. styrkirfélaga sína um allt að helming kennslugjalds. 41

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.