Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1995, Qupperneq 46

Frjáls verslun - 01.06.1995, Qupperneq 46
STJORNUN 13 ÞÚSUND FYRIRTÆKI Á íslandi eru nú skráð um 13 þúsund fyrirtæki í rekstri og á hverju ári hefja um 1.800 fyrirtæki rekstur. Á móti kemur að um 1 þúsund fyrirtæki hætta starfsemi sinni. Um helmingur fyrirtækja fellur burt vegna gjaldþrota. ast hafa síðustu tíu árin eru nálægt fimmtíu milljörðum króna.“ Fram kemur að á íslandi séu nú skráð um 13 þúsund fyrirtæki í rekstri og á hverju ári hefji um 1.800 fyrir- tæki rekstur . Á móti kemur að um 1 þúsund fyrirtæki hætta starfsemi sinni. „Um það bil helmingur fyrir- tækja fellur burt vegna gjaldþrota." FLEST GJALDÞROT ÁÐUR ENFIMM ÁRA ALDRIERNÁÐ í ritgerðinni er borinn saman aldur þeirra fyrirtækja sem verða gjald- þrota. Niðurstaðan er sú að megin- þorri þeirra verður gjald- þrota áður en fimm ára aldri er náð eða 56%. „Greinilegt er að eftir því sem þau verða eldri minnkar hlutfall þeirra í heildargjaldþrotum. Segja má að sé merki um val hinna hæfustu í bar- áttunni um afkomu. Þetta bendir til þess að einhver vandamál séu tengd því að hefja rekst- ur félags og komi til með að knésetja meirihluta þeirra.“ Síðan spyr Ámi: „En hverjar eru orsakir þess að fyrirtækin hætta starfsemi sinni? Einhver þeirra hætta vegna þess að sá, sem rekur þau, deyr, fyrirtæki sameinast öðrum með einum eða öðrum hætti. En síðast en ekki síst er það vegna þess að rekstr- argrundvöllur þeirra er ekki lengur til staðar." En hvers vegna er rekstrargrund- völlur þeirra ekki lengur til staðar? Hverjar eru orsakir rekstrarerfið- leika fyrirtækja? Aðaláherslan í rit- gerðinni er að kanna hvaða kenning- um erlendir fræðimenn hafa haldið fram um orsakir og einkenni gjald- þrota fyrirtækja og heimfærir Ami þær á íslenskar aðstæður. Sammerkt með athyglisverðustu erlendu kenn- ingunum er þetta: „Að orsakanna sé ekki að leita í ársreikningum fyrir- tækja heldur í ákvörðunum stjóma þeirra“. KENNINGAR JOHN ARGENTI UM HNIGNUN FYRIRTÆKJA Ami eyðir nokkm rými í kenningar breska fræðimannsins John Argenti sem setur þær fram í bók sinni Cor- porate collapse, the causes and symptoms. Þær em mjög athyglis- verðar og fá því mikið rými hér í um- fjöllun okkar um þessa athyglisverðu ritgerð. Kenningamar ganga út á að gefa vísbendingu um hvaða þættir í rekstri og stjómun skuli fylgjast með hjá fyrirtækjum til að greina vanda þeirra. Argenti varpar ljósi á þá þætti í líkani því sem Ámi dregur fram í upphafsorðum þessarar greinar. Vakin er á því athygli að fyrirtæki þurfi ekkert endilega að vera í fjár- hagslegum erfiðleikum heldur sé lík- aninu ætlað að vera tæki fyrir stjórn- endur til að greina hugsanleg vanda- mál á byrjunarstigi. Líkanið er því fyrst og fremst greiningartæki, tæki til að greina sjúkdóma. I raun má líkja því við tæki lækna til að greina sjúk- dóma. Fyrirtæki, sem fara undir nál- arauga líkansins, eru því í eins konar læknisskoðun. Til að átta sig betur á líkaninu fer Ámi ofan í saumana á þeim tólf atrið- um sem feitletruð eru í upphafi þess- arar greinar og kenningar Argenti ganga að mestu út á. Frjáls verslun grípur hér og þar niður í þessi atriði með beinum tilvitnunum. Það þýðir að mörgu er sleppt. STJÓRNUN Ljóst er að flestir, sem skoðanir hafa á orsökum þess að fyrirtæki hættir rekstri, líta á slæma stjómun sem eina meginorsökina. Hvað er slæm stjóm- un? Ámi segir að hægt sé að telja til sex ólíka þætti sem hver og einn sé í raun meinlaus. Eftir því sem stjórn fyrirtækis einkennist af fleiri en ein- um þessara þátta þeim mun meiri líkur séu til þess að fyrirtækið taki ákvörðun sem leiði til endaloka þess. Hinir sex ólíku þættir stjómunar em: ein- ræði, afskiptalaus stjóm, jafnvægis- leysi í efstu valdastöð- um, veik fjármála- hlið, of lítil stjómunar- dýpt og loks fyrirkomulagið stjómarformaður - fram- kvæmdastjóri. EINRÆÐI „Einræði í stjómun fyrirtækja er skilgreint þannig að framkvæmda- stjóri drottni yfir starfsfélögum sínum í stað þess að leiða þá, tekur ákvarð- anir þrátt fyrir mótmæli og andstöðu, leyfir ekki umræður og hlustar ekki á ráðgjöf. Vissulega má telja til stjóm- endur sem hafa náð árangri með þessum stjórnunaraðferðum, eins og Walt Disney. En einnig má nefna stjómendur sem settir vom af vegna þess að allt stefndi í voða, samanber Henry Ford.“ Landsbanki íslands. Bankar og fjárfestingarsjóðir hafa tap- að yfir 50 milljörðum króna vegna gjaldþrota í viðskiptalíf- inu á síðastliðnum 10 árum. 46
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.