Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1995, Page 54

Frjáls verslun - 01.06.1995, Page 54
EFNAHAGSMAL Væri hér um fyrirtæki að ræða væri það lagalega skylt til að stöðva rekstur. En þannig er það ekki með ríkisvaldið - þar er hugsað stórt og sífellt meira fé er tekið að iáni og sett í vafasama eyðslu og framkvæmdir. „Hvað myndi fyrirtæki í einkageiranum gera í þeirri stöðu sem íslenska ríkið er í dag?“ ekki síst í nýjum greinum. Hvatningar er þörf á aukinni fjarfestingu í atvinnu- rekstri. Afnema þarf skatta af hagnaði við sölu á hlutabréfum því hér er um áhættufjármagn að ræða. Hér á landi vantar illilega aukið fjármagn í at- vinnurekstur. Slíkur hvati verður til að koma. Dragi ríkið saman rekstur og fækki starfsmönnum, sem er óhjákvæmi- legt, er nauðsynlegt að skapa þau skilyrði að atvinnulífið sé fært til að taka við auknum starfsmannafjölda. Hugleiða þarf hvort ekki þurfi til að koma til sérstök skattfríðindi við ný- sköpun í rekstri fyrir lítil fyrirtæki, t.d. eftirgjöf launaskatts, lækkaður tekjuskattur, o.s.frv. um ákveðið árabil fyrir slík ný fyrirtæki. Skapa verður með sérstökum skattfríðind- um aukna möguleika í nýsköpun at- vinnureksturs. Líklegt er að við hagstætt skatta- umhverfi gætu ný og minni fyrirtæki tekið við auknum fjölda starfsmanna. Sem dæmi um slíkt er að í Banda- ríkjunum sköpuðust 2,6 milljón störf á þremur árum (1989-1991) hjá fyrir- tækjum sem höfðu 4 eða færri starfs- menn. Með sömu þróun hér á landi hefðu skapast 2.600 ný störf. Sem dæmi um hve lítið er um ný störf í einkarekstri er sú staðreynd að í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins 13. ágúst sl. eru aðeins auglýst um 70 störf í einkageiranum, á sama tíma og leitað er að 120 starfsmönnum til hins opinbera. Hér skýtur skökku við, því einkageirinn skapar verðmæti sem skattlögð eru til að sjá hinu opinbera fyrir tekjum til að mæta útgjöldum. Hlutföllin ættu að vera þveröfug. ERLENDAR FJÁRFESTINGAR Varðandi mögulegar erlendar fjár- festingar hér á landi verður að taka alla þætti þess máls til róttækrar end- urskoðunar. Sú staðreynd að þrátt fyrir langvarandi og kostnaðarsamar tilraunir að hálfu hins opinbera hafa nánast engar erlendar fjárfestingar náðst til landsins á undanfömum ár- um. Þetta talar sínu máli. Umhverfið hér er hreinlega ekki aðlaðandi fyrir I SSk Hver er Hvar ? fiiiáveru starfsmanna. oibúnaður Ávallt í fararbroddi Hugbúnaður hf., Engihjalli 8, 202 Kópavogur Sími: 564-1024, Brófsími: 554-6288 Netfang: posfmaster@hugbun.is 54

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.