Frjáls verslun - 01.06.1995, Blaðsíða 60
Að sækja námskeið:
NAMSKEIÐ
ER
EKKI
BARA
NÁMSKEIÐ
/
Olafurjón Ingólfsson, starfsmannastjóri Sjóvá-
Atmennra, segir hér frá einu athyglisverðasta
námskeiði sem hann hefur sótt. Það „kristnaði‘
þátttakendur
in mesta rangfærsla sem
stjórnendur fyrirtækja halda
fram um starfsmenn sína er
þegar þeir segja, og það stoltir, að
starfsmenn séu mikilvægasta eign
fyrirtækisins. Þetta eru oftast orðin
tóm. Ef stjómendur eru virkilega að
meina það sem þeir segja þarf að sjá
miklu meiri og markvissari fjárfest-
ingu í starfsmönnum en nú er gert,
því nú er þessi mikilvæga eign álitin
kostnaður en ekki eign sem þarf að
viðhalda.
Á síðustu misserum hefur áhersla á
fræðslumál verið meiri en áður. Til-
gangur með fræðslu starfsmanna hef-
Greinarhöfundur, Ólafur Jón Ing-
ólfsson, starfsmannastjóri Sjóvá-Al-
mennra.
Viðar Jóhannesson, gæðastjóri Sjó-
vá-Almennra, datt í lukkupottinn á
námskeiðinu í Bandaríkjunum. í
happdrætti vann hann hljóðupptök-
ur af öllum fyrirlestrum námskeiðs-
ins.
ur oft verið illa skilgreindur. Oft er
frumkvæði starfsmanna ráðandi og
kostnaðurinn greiddur að hluta til af
starfsmönnum sjálfum og af stéttarfé-
lagi þeirra. Stjómendafræðsla hefur
verið fyrirferðarminni í umræðunni
en almenn starfsmannafræðsla en er
ekki síður mikilvæg. Stjómendanám-
skeið geta opnað ýmsar dyr og eru
því dýrmæt tækifæri.
KJARKUR OG HAGSÝNI
Einn þáttur stjórnendafræðslunnar
er þátttaka í námskeiðum innanlands
MYNDIR: KRISTJÁN EINARSSON
60