Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1995, Side 68

Frjáls verslun - 01.06.1995, Side 68
FOLK LIUA ÓLAFSDÓTTIR, SVR trætísvagnar Reykja- víkur er þjónustufyr- irtæki í eigu borgar- búa. Unnið hefur verið að endurskipulagningu á fyrir- tækinu og tók nýtt skipulag gildi 1. mars. Þá var fyrirtæk- inu skipt niður í þijú svið: skipuleggja tölvukerfi og í því starfi hafði hún sam- skipti við Skýrsluvélar ríkis- ins og Reykjavíkurborgar. Árið 1977 var henni boðin deildarstjórastaða hjá SKÝRR og sinnti þar ýms- um stjómunarstörfum ALLIR í STRÆTÓ „Mér fannst gott að koma til starfa hjá SVR. Hér vinn- ur jákvætt og gott fólk og áhugasamir stjórnendur voru til staðar í fyrirtækinu. Talsvert rót hefur verið á starfseminni vegna einka- Lilja Ólafsdóttir hefur verið borgarstarfsmaður síðan 1967 þegar hún réðst til Raf- magnsveitunnar, fór svo til SKÝRR og er nú hjá SVR. Þjónustusvið; markaðs- og þróunarsvið og fjármála- og starfsmannasvið, og verður í framtíðinni lögð meiri áhersla á þá þætti sem sviðin draga nafii af, “ segir Lilja Ólafsdótt- ir, forstjóri SVR. Lilja er 52 ára. Hún lauk prófi frá Samvinnuskólanum 1961. Eftir það varð hún að- algjaldkeri hjá tryggingafé- lagi í þrjú ár, síðan heima- vinnandi í þrjú ár en 1967 hóf hún störf hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur. Þar stýrði hún m.a. deild sem sá um að þangað til hún varð aðstoð- armaður forstjóra SKÝRR 1991 og var í því starfi þang- að til hún byrjaði hjá SVR um sl. áramót. „Samhliða störfum mín- um hjá SKÝRR tók ég BA próf í viðskiptafræðum ut- anskóla frá Mundeleine col- lage við Loyola University í Chicago. Námið tók fjögur ár og ég lauk því 1991. Það var farið að há mér að hafa ekki háskólapróf og ég bætti úr því með þessu móti,“ segir Lilja. væðingar hluta fyrirtækis- ins en hún gekk til baka fyrir u.þ.b. ári. Þegar nýja skipu- lagið tók gildi voru forstöðu- menn tveggja sviða ráðnir utanfrá og saman eru stjórn- endur í fyrirtækinu að vinna að umtalsverðum breyting- um á rekstrinum. Þær munu leggja grunn að bættri þjónustu og endurskoðun á leiðakerfinu sem líklega mun ganga í gildi næsta vor. Núverandi leiðakerfi er að stofni til 25 ára gamalt og brýnast að bæta þjónustuna TEXTI: ELÍSABET ÞORGEIRSDÓTTIR MYNDIR: KRISTJÁN EINARSSON 68 í nýju hverfunum austan við Elliðaár. í haust heíjum við átaksverkefni til þess að gera þjónustuna sýnilegri og bæta ímynd strætisvagn- anna. Opnuð verður upplýs- ingamiðstöð á Hlemmi og aðstaða þar bætt. Markmið okkar er auðvitað að búa til kerfi sem hentar fólki og fellur inn í daglegt líf þess. Við viljum að sem flestir geti notað strætisvagna," segir Lilja. SYNDIR DAGLEGA OG STUNDAR JÓGA Eiginmaður Lilju er Gunnar Sigurðsson, deild- arstjóri hjá VÍS, og eiga þau 31 árs son. „Ég fer í sundlaugarnar á hverjum morgni og finnst það alveg ómissandi," segir Lilja aðspurð um tómstund- ir. „Ég fer líka í jóga einu sinni í viku í litlum hópi. Það er mikilvægt fýrir fólk í stjómunarstarfi að geta tæmt hugann og hugleiðsla er góð aðferð til þess. 10 mínútur í hugleiðslu jafnast á við hálfrar nætur svefn. Þegar ég kem heim eftir langan vinnudag finnst mér gott að hafa algjör umskipti og hef t.d. unun af því að vinna í garðinum eða að sauma föt. Ég les einnig mikið af bókum um stjórn- un. Félagsstörf hafa alltaf verið stór hluti af lífi mínu. Ég var meðal stofnenda Rauðsokkahreyfingarinnar og var lengi í stjóm Kven- réttindafélagsins, Skýrslu- tæknifélagsins og sat í átta ár í stjóm norrænna sam- taka tölvumanna og var for- maður þar í tvö ár,“ segir Lilja.

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.