Frjáls verslun - 01.02.1998, Síða 14
Þau stóðu að kynningunni. Frá vinstri: Dominique Pledel Jónsson, verslunar-
fulltrúi Franska sendiráðsins, Alain Roman, Conny Demartini, Liselotte Ger-
dorf, öll frá Franska ferðamálaráðinu í Kaupmannahöfn, og Thierry Bouet,
frá ferðamálaskrifstofu Charente-Maritime svœðisins.
FR-myndir: Geir Olajsson.
FRÖNSK SÓL KYNNT Á HOLTI
Qrakkar kynntu á dögun-
um eitt sólríkasta svæði
Frakklands, Charente-
Maritime, fyrir fulltrúum ís-
lenskra ferðaskrifstofa. Mikil
ánægja var með kynninguna sem
haldin var á Hótel Holti. Þetta sól-
ríka svæði, Charente-Maritime, er
í suðvestur Frakklandi. Fulltrúar
frá Franska ferðamálaráðinu í
Kaupmannahöfn og ferðamála-
skrifstofu Charente-Maritime
stóðu að kynningunni ásamt
Dominique Pledel, verslunarfull-
trúa Franska sendiráðsins.
í kynningunni kom fram að
helstu kostír Charente-Maritime
svæðisins eru þeir að það er eitt
sólríkasta svæði í Frakklandi
ásamt Rívíerunni; strandlengjan
þar er sú hreinasta í Frakklandi;
þar er margar sögulegar slóðir;
það er framleiðsluhérað eðalvína
á borð við koníak; og loks hefur
Nord Morue, dótturfyrirtæki SIF,
þar aðsetur.
Kynningin var vel sótt af fulltrúum íslenskra ferðaskrif-
stofa.
s‘M<SZZt‘^Zi>!7“narM,,">iFra’’t'‘
14