Frjáls verslun - 01.02.1998, Qupperneq 22
örður Sigurgestsson, forstjóri
Eimskips, er valdamesti ein-
staklingurinn í íslensku við-
skiptalífi, að mati Fijálsrar verslunar
sem hefur valið 10 áhrifamestu menn-
ina í viðskiptalífmu á Islandi. Áhrif í
krafti fjármagns - og það að vilja hafa
áhrif á gang mála - voru fyrst og fremst
lögð til grundvallar við gerð listans.
Næstu fjórir menn á listanum eru
Benedikt Sveinsson, stjórnarformað-
ur Sjóvá-Almennra, Geir Magnússon,
forstjóri Olíufélagsins, Axel Gíslason,
forstjóri VIS, og Indriði Pálsson,
stjórnarformaður Eimskips og Skelj-
ungs. Akveðið var að stjórnmálamenn
kæmu ekki til greina á listann - en ef-
laust kynnu margir að halda því fram að
Davíð Oddsson forsætisráðherra væri
áhrifamesti maðurinn í íslensku við-
skiptalífi - svo mikil völd og áhrif hefur
hann; ekki síst vegna þess að ríkið er
ennþá afar virkur þátttakandi í atvinnu-
lífinu - sérstaklega á fjármálamarkaðn-
um.
Þegar horft er yfir sviðið má halda því fram að völd og áhrif í ís-
lensku viðskiptalífi snúist núna fyrst og fremst um kvótann og
bankana. Sú skoðun er almennt ríkjandi innan viðskiptalífsins að
þeir sem ráði yfir kvótanum í sjávarútvegi verði beinlínis ráðandi í
íslensku viðskiptalífi - enda hefur það sýnt sig á undanförnum
árum að þar hefur verið tekist á af krafti. Sú barátta hefur kristall-
ast í kringum stóru sölufyrirtækin í sjávarútvegi; Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna og íslenskar sjávarafúrðir. Þessar blokkir hafa
barist - og sú barátta hefur ekki farið fram hjá neinum á undan-
förnum árum.
STRAUMAR 0G STEFNUR
gert upp á milli þeirra Harðar og Bene-
dikts. Einn forstjóri sagði einfaldlega
þetta: Hörður er „doninn” í íslensku
viðskiptalifi!
SKOÐUN ALMENNINGS
Fijáls verslun kannaði einnig skoð-
un almennings á því hver væri áhrifa-
mesti einstaklingurinn í viðskiptalífinu.
Sú könnun var gerð í endaðan janúar -
eða samhliða könnuninni um vinsæl-
ustu fyrirtæki landsins. Um 240 manns,
af þeim 496 sem tóku þátt í könnuninni,
svöruðu spurningunni. Flestir nefndu
þá Jóhannes Jónsson í Bónus og
Hörð Sigurgestsson. Næstir komu
þeir Jón Ólafsson, Skífunni, og Bjarna
Armannsson, Fjárfestingarbanka at-
vinnulífsins. I þessari könnun vekur lík-
legast mesta athygli að enginn nefndi
forystumenn fyrirtækja samvinnu-
hreyfingarinnar, eins og Axel Gíslason,
forstjóra VIS, Geir Magnússon, for-
stjóra Olíufélagsins, Benedikt Sveins-
son, forstjóra Islenskra sjávarafurða, og Ólaf Ólafsson, forstjóra og
einn helsta hluthafa Samskipa.
MEIRA FRELSI - MINNIVÖLD
A undanförnum árum hefur frelsi stóraukist í íslensku við-
skiptalífi. Aukið frelsi dregur úr völdum og áhrifum bæði stjórn-
málamanna og áhrifamanna í viðskiptalífi. Frelsið og samkeppnin í
fyrirtækjum hérlendis birtist meðal annars í auknum fjölda útboða;
fyrirtæki bjóða út viðskipti og skipta einfaldlega við þann sem býð-
ur best hveiju sinni. Þetta þýðir að viðskipti geta færst á milli fyrir-
tækja og fyrirtækjahópa í einu vetfangi. Aukin útboð sjást á sviði ol-
íuviðskipta, fjármála, trygginga, sölumála og flutninga.
Víkjum þá að tíu áhrifamestu mönnum í viðskiptalífinu.
AHRIFAMESTUR!
Listinn yfir áhrifamestu mennina í viðskiptalífinu er bæði gerð-
ur í gamni og alvöru. Það er einu sinni þannig að mikil umræða er
jafnan á milli fólks í viðskiptum um það hverjir séu áhrifamestir.
Fólk veltir fyrir sér völdum og áhrifum manna - hvort sem það hef-
ur einhvern tilgang í sjálfu sér eða ekki. Listinn gefur líka nokkra
vísbendingu um tíðarandann í viðskiptalífinu - hvernig straumar og
stefnur liggja hverju sinni. Einfaldlega vegna þess að til þess er
horft hvernig þessir áhrifamestu menn viðskiptalífsins - sem og
fyrirtæki þeirra - hreyfa sig í viðskiptum á markaðnum, eins og í
fjárfestingum og markaðsmálum. Enda er það svo að flestir þeirra
hafa komið við sögu - og látið til sín taka - í umfangsmestu viðskipt-
unum með hlutabréf á undanförnum fimm til tiu árum.
SKOÐUN NOKKURRA FRAMKVÆMDASTJÓRA
Við gerð listans var haft samband við stjórnendur tíu fyrirtækja
- á meðal þeirra hundrað stærstu í landinu - og voru þeir spurðir
um áhrifamesta einstaklinginn í viðskiptalífinu. Niðurstaðan úr
þeirri könnun er sú að allir nema einn nefndu Hörð Sigurgests-
son sem þann áhrifamesta. Almennt var haft á orði að hann væri
skörinni hærri en aðrir; hann væri einn í efsta þrepi - en næstur
honum kæmi Benedikt Sveinsson, stjórnarformaður Sjóvá-Al-
mennra. Sá, sem ekki setti Hörð í efsta sætið, sagðist ekki geta
HÖRÐUR SIGURGESTSSON, EIMSKIP
Áhrifamesti maður viðskiptalífsins, Hörður Sigurgestsson, 59
ára, hefur verið forstjóri Eimskips, frá árinu 1979 - eða í um nítján
ár. Hann er viðskiptafræðingur að mennt og einn þriggja íslend-
inga sem útskrifast hafa úr hinum þekkta Wharton háskóla í
Bandaríkjunum. Hörður tók við Eimskip á fremur erfiðum tímum
þess en rétti það fljótt við. Flestir eru á einu máli um að Hörður
eigi mestan þátt í því að hafa gert Eimskip að því stórveldi sem
það er í íslensku viðskiptalífi. Eimskip er verðmætasta fyrirtækið
á Verðbréfaþingi - markaðsverðmæti þess eru tæpir 19 milljarðar
króna. Þess má geta að bókfærður hlutur Eimskips í öðrum félög-
um nemur um 3,8 milljörðum - en markaðsvirðið er 7,9 milljarðar.
Völd Harðar teygja sig vítt og breitt um viðskiptalífið í gegnum
víðtæk hlutabréfakaup Eimskips. Helsta eign Eimskips er 34%
hlutur í Flugleiðum - en þar er Hörður stjórnarformaður. Þess má
geta að fjárfestingarfélag Eimskips, Burðarás, keypti hlutabréf í
Utgerðarfélagi Akureyringa, UA árið 1996 fyrir um 892 milljónir.
Þar er Eimskip í blokk með SH og eru þessi fyrirtæki orðin ráð-
andi í UA ásamt Hampiðjunni og Skeljungi. UA er stærsti hluthaf-
inn í SH.
22