Frjáls verslun - 01.02.1998, Page 24
FORSIÐUGREIN
JÓN INGVARSSON, SH
Jón Ingvarsson, stjórnarformaður SH, 55 ára, beitir sér mjög í
þeirri baráttu sem SH hefur staðið í við íslenskar sjávarafurðir.
Þessar tvær blokkir hafa tekist á af römmu afli undanfarin ár - og
þar eru litlir kærleikar á milli. Þetta er baráttan um kvótann út frá
kenningunni um að þeir sem ráði yfir kvótanum séu í lykilaðstöðu
til að selja sjávarútvegsfyrirtækjum vöru og þjónustu. SH er afar
öflugt fyrirtæki, stærsta fyrirtæki landsins miðað við veltu, - með
afar umfangsmikla starfsemi erlendis.
Þótt Jón sé lögfræðingur að mennt hefur hann fyrst og fremst
unnið við sjávarútveg. Faðir hans stofnaði Isbjörninn og varð Jón
framkvæmdastjóri hans árið 1973. ísbjörninn var sameinaður Bæj-
arútgerð Reykjavíkur árið 1985 - og úr varð Grandi. Auk þess að sitja
í stjórn Granda situr Jón í stjórn Eimskips og TM - svo og í stjórn
dótturfélaga SH eriendis, eins og Coldwater í Bandaríkjunum.
FRIÐRIK PÁLSSON, SH
Friðrik Pálsson, forstjóri Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna,
51 árs, myndar geysisterkt tvíeyki með Jóni Ingvarssyni, stjórnar-
formanni SH. Friðrik er með mikla reynslu af sölumálum í sjávar-
útvegi því áður en hann hóf störf sem forstjóri SH var hann for-
stjóri SIF, Sölusambands íslenskra fiskframleiðenda, í sjö ár. Hér
fer því maður sem verið hefur forystumaður Islendinga í sölu á
fiski til útlanda í um tuttugu ár. F'riðrik er viðskiptafræðingur frá
Háskóla íslands.
Sem forstjóri SH er Friðrik einn helsti hugmyndafræðingur SH
í baráttunni við Islenskar sjávarafurðir. Frá árinu 1995 hefur sú
barátta ekki síst snúist um að halda frystihúsum undir SH. Þannig
myndaði SH til dæmis blokk með Eimskip árið 1997 til að kaupa í
ÚA á Akureyri og ná yfirhöndinni þar - en ÚA er afgerandi stærsti
eigandinn í SH. Fræg eru átökin um Vinnslustöðina í Vestmanna-
eyjum haustið 1994.
BENEDIKT SVEINSSON, ÍS
Barátta tveggja stærstu blokkanna í íslensku viðskiptalífi, sem
hafa á undanförnum árum einkum tekist á í sjávarútvegi, gera
Benedikt Sveinsson, forstjóra Islenskra sjávarafurða, að einum
áhrifamesta manni viðskiptalífsins. Hann er 46 ára. Eftir nám í
Fiskvinnsluskólanum árið 1976 hóf hann störf hjá Sambandinu.
Hann kom Iceland Seafood Ltd. í Bretlandi á laggirnar og var
framkvæmdastjóri þess fyrirtækis ffá 1980 til 1991 er hann sneri
heim og varð framkvæmdastjóri Islenskra sjávarafurða. Líkt og
Friðrik Pálsson, forstjóri SH, hefur Benedikt verið í ffamvarða-
sveit Islendinga í sölu á fiski tíl útlanda í nær tvo áratugi.
Islenskar sjávarafurðir, undir forystu Benedikts, hleyptu nán-
ast sprengju inn í helg vé fisksölumála haustið 1994 og keyptu
meirihlutann í Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum af Bjarna Sig-
hvatssyni og nánustu skyldmennum hans. Við það fór Vinnslu-
stöðin í viðskiptí við Islenskar sjávarafurðir. í átökunum um
Vinnslustöðina kristallaðist vel hvaða fyrirtæki eru bakhjarlar IS í
baráttunni; ESSO, VIS, Samvinnusjóður Islands og Samvinnulíf-
eyrissjóðurinn komu tíl skjalanna. Þar vann þríeykið; Geir, Axel og
Benedikt, vel saman að fléttunni. Geir Magnússon er núna
stjórnarformaðurVinnslustöðvarinnar.
SIGURÐUR GÍSLIPÁLMASON, HOFI
Sigurður Gísli Pálmason, stjórnarformaður Hofs, eignarhalds-
félags Hagkaupsfjölskyldunnar, er áhrifamestí maðurinn í íslensk-
um verslunarrekstri. Hann er 43 ára og sonur Pálma heitíns Jóns-
sonar, stofnanda Hagkaups. Hof kemur víða við sögu. Það á með-
al annars Hagkaup, Miklagarð (Ikea), Kjötvinnsluna í Síðumúla,
Þyrpingu (sem á fasteignir víða eins og í Kringlunni) og fjárfest-
ingarfélagið Þor - sem meðal annars á helminginn í Bónus. Hag-
kaup og Bónus standa síðan að innkaupafyrirtækinu Baugi. Þá er
Hof í vatnsútflutningi; í gegnum Þórsbrunn. Þá kemur fyrirtækið
við sögu í sölu á bensíni; í gegnum Orkuna. Þá má geta þess að
fyrirtækið er á pizza-markaðnum en það stendur að Domino’s á ís-
landi (í gegnum fyrirtækið Futura) ásamt Skúla Þorvaldssyni og
fleirum. Domino’s á Islandi er með sérleyfi fyrir Domino’s á Norð-
urlöndum og hefur fyrirtæki á þess vegum þegar hafið starfsemi í
Kaupmannahöfn. Þræðir Sigurðar Gísla Pálmasonar liggja því víða
í verslunarrekstri.
Sigurður Gísli hefur haldið sig frekar tíl hlés í fjölmiðlum á
undanförnum árum - hann er hins vegar öflugur baksviðsmaður
og stjórnar veldi Hagkaupsfjölskyldunnar í gegnum Hof. Þess má
geta að Hof hefur einnig komið við sögu í íslenskum útvarps- og
sjónvarpsrekstri. Það áttí um tíma hlut í Islenska útvarpsfélaginu;
myndaði þar blokk með fleiri fyrirtækjum. Ennfremur átti það um
tíma i Samskipum en upp úr því samstarfi slitnaði og fyrirtækið
seldi hlut sinn þar.
KJARTAN GUNNARSSON, LANDSBANKA 0G VÍS
Kjartan Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins,
stjórnarmaður í Landsbankanum og stjórnarformaður Vátrygg-
ingafélags Islands, VIS, er að matí blaðsins áhrifamestí maður í ís-
lenskum bankaheimi um þessar mundir. Kjartan er
46 ára, lögfræðingur að mennt. Kjartan hefur gegnt
starfi framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins frá ár-
inu 1980 - eða í bráðum tuttugu ár.
Fullyrt er við Frjálsa verslun að Kjartan sé í raun
valdamestí maðurinn í Landsbankanum þótt hann
gegni ekki lengur formennsku í bankaráði bankans.
Kjartan situr hins vegar í bankaráðinu og er stjórn-
arformaður VIS. Undir bankaráðsformennsku
Kjartans keyptí Landsbankinn helminginn í VÍS og
LÍFÍS á síðasta ári - eins og frægt er orðið - á 3,4
milljarða króna. Það eru stærstu einstöku viðskipti
með hlutabréf í íslensku viðskiptalífi á undanförn-
um árum!