Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1998, Side 30

Frjáls verslun - 01.02.1998, Side 30
MARKAÐSMÁL það sé þróun sem geti ekki gengið lengi. Hoare benti á hve mis- jafnlega erfitt væri að markaðssetja vörumerki. Hann bar í því sambandi saman Levi’s gallabuxur og Hewlett Packard tölvubúnað. Auð- velt væri að búa til hnitmiðaða auglýsingafrasa um gallabuxur, t.d. „Levi's is cool”. Hins vegar er það öllu erfiðara með tölvurnar. Bestu auglýsing- arnar á vörumerkj- um sameina tvo þætti, það að höfða til tilfinninga neyt- andans og jafnframt mikið notagildi. Mikilvægt sé ein- nig að einfalda skila- boðin til neytenda eins og unnt sé. I því sambandi sé það já- kvætt að nota sama málfarið og neytand- inn notar. Til dæmis þegar ný og öflug tölva er auglýst, þá sé heilla- dijúgt að nota orðfæri eins og - „Yeehah, wait until the guys see this one” í auglýsingum. (jlil .-íU'pfAh vodka mnudana wi/Ji ttuMOim (jJJbÁofiui Airux fSJ9. 'v&E. - «*•*“'en i-i.; ^rvkkur. Nauðsynlegt er hverjum markaðs- sérffæðingi að gera reglulega mæl- ingar á hlutdeild sinni á markaði. I því tilfelli minntist Hoare á fýrirbæri sem kallað er „Share of voice - versus - share of market”. Það sé eitthvað að markaðssetningu vörumerkis ef 25% af þeim sem kaupa vöruna, tali um þína vöru, en markaðshlutdeildin sé aðeins 10%. Það er lítið gagn að því að eyða ijármunum og kröftum í að aug- lýsa vöru ef ijármagnið skilar sér ekki í aukinni sölu. Hoare nefndi skemmtilegt dæmi um þetta. Hið kunna fyrirtæki Mass- ey Ferguson, sem aðallega framleiðir tæki til landbúnaðarframleiðslu, hafði lengi vel markaðssett sínar fram- leiðsluvörur á vörusýningum. Ekki er langt síðan forráðamenn fýrirtækisins áttuðu sig á því að hinir raun- verulegu kaupendur (bænd- urnir) voru ekki algengustu gestirnir á slíkum sýningum. I framhaldinu varð gerbylting á markaðssetningu fýrir- tækisins. Nú ein- beita markaðs- fræðingarnir hjá Massey Ferguson sér að því að fara með framleiðslu- vöru sína í sveit- irnar og halda sýningar á bændabýlunum sjálfum. Varla þarf að geta þess að Massey Ferguson hefur náð ffam mikilli sölu- aukningu. I síðari hluta fyrirlest- urs síns minntist Ho- are á að mörg fýrir- tæki hefðu séð hag sinn í að tengja framleiðslu- vöru sína við ákveðin fyrirbæri, Olympíu- leika, HM í knattspyrnu eða kvikmynd- ir, svo dæmi séu tekin. Jonathan Ho- are taldi upp þau fjölmörgu fýrirtæki sem lögðu fé í kvikmyndina frægu, „The Lost World”, en þar voru t.d. Burger King, JVC, Mercedes Benz, Kodak, Hershey, General Mills, Tropicana og Timberland. Fram- leiðsluvörur þessara fýrirtækja birt- ust allar einhvern tímann í myndinni og fýrirtækin töldu þeim peningum vel varið. A sama hátt væru þau mörg fyrir- tækin sem nú nöguðu sig í handarbök- in fýrir að hafa ekki tekið áhættuna í kvikmyndinni „Titanic” sem er á góðri leið með að verða aðsóknarmesta kvik- mynd sögunnar. Mikil óvissa ríkti um brautargengi myndarinnar áður en hún kom á markaðinn. I þvílíkum til- fellum getur markaðssetning vöru- merkja verið mikið happdrætti. VELHEPPNUÐ MARKAÐSSETNING Jonathan Hoare hefur átt þátt í nokkrum af best heppnuðu markaðs- setningum veraldar. Hoare rakti í því sambandi ævintýrin á bak við vel- gengni vörumerkjanna Wonderbra og Absolut Vodka. Fyrirtæki Hoares tók að sér markaðssetningu á Wonderbra brjóstahöldum fyrir örfáum árum. Fram kom að framleiðendur Wond- erbra töldu sig ekki geta lagt mikið fé í markaðssetninguna. Það vandamál var leyst með því að virkja fjölmiðla til samstarfs með snjallri markaðssetn- ingu. Flennistórum plakötum af fýrir- sætunni Evu Herzigovu (sem þá var óþekkt fýrirsæta) íklædd Wonderbra brjóstahöldum var komið fyrir á áber- andi stöðum í Lundúnum. A hveiju plakati fýlgdi stuttur en hnitmiðaður texti (dæmi: „Hello Boys” - eða - „Look me in the eyes - I said the eyes” - eða - „Mind The Gap” sem sett var upp við teinana í neðan- jarðarlestarkerfi Lundúna). Umferð- aröngþveiti skapaðist á götum Lund- úna og þessar snjöllu auglýsingar piýddu forsíður allra dagblaðanna. í framhaldinu fór Wonderbra eins og eldur um sinu um heimsbyggðina án þess að tilkostnaður framleiðandans væri neitt ýkja rnikill og söluaukning nam hundruðum prósenta milli ára. Annað dæmi um velheppnaða markaðssetningu er sænski vodkinn Absolut. Þegar sænski framleiðand- inn hóf herferð sína í Bandaríkjunum, voru 15 tegundir að beijast harðri bar- áttu á markaðnum. Akveðið var að selja Absolut ekki sem vodkadrykk - heldur fyrst og fremst sem lífsstíl. Flestir kannast við auglýsingar í LEVI’S KLÆÐSKERASAUMAR Fyrirtæki eru í auknum mæli farin að laga sig að sérþörfum viðskiptavina sinna. Hoare bendir til dæmis á að Levi’s gallabuxnafyrirtækið sé farið að bjóða upp á klæðskerasaumaðar buxur. 30

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.