Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1998, Qupperneq 33

Frjáls verslun - 01.02.1998, Qupperneq 33
STJÓRNMÁL FRELSIHINNA FATÆKU úsnæðismál á íslandi hafa lengi verið með undarlegum hætti. Fram til þessa hefur allt skipulag miðast við, að fólk þyrfti að sækja til skömmtunarstjóra, sem ýmist út- hlutuðu lóðum eða íbúðum eftir einhverju kerfi, sem hafði það í för með sér, að menn þurftu að krjúpa á knjánum til að fá úr- lausn. Þeir, sem nú eru að kjósa í íyrsta skipti muna t.d. ekki punktakerfið hjá vinstri flokkunum í Reykjavík, en skv. því áttu menn að fara að safna punktum um fermingaraldur og vera að því fram á giftingarár, en þá áttu menn kannski að fá lóð. Af hverju? Vegna þess, að það vantaði lóðir. Þegar Davíð Oddsson varð borgarstjóri, var þetta kerfi afnumið með þeim einfalda hætti, að borgin gekk frá nógu mörgum byggingarhæfum lóðum til þess að mæta eftirspurn- inni. Síðan hafa ekki birtzt í blöðum listar um þá, sem fengu lóð. Lengi vel voru lán úr Byggingarsjóði ríkisins aðeins veitt til nýbygginga. Bæði verktakar og verkalýðsfélög stóðu vörð um þetta skipulag til þess að tryggja áframhald- andi byggingarstarfsemi í landinu. Meiðingi varð sú, að ungt fólk gat ekki keypt sér íbúð í gömlum hverfum, og mjög mikil aldurs- skipting var milli hverfa. Að lokum sáu menn, að þetta gekk ekki upp, og þá fengust fyrst lán til kaupa á eldra húsnæði. Sá maður væri álitinn bilaður, sem héldi fram gamla kerfinu í dag. Héðinn Valdimarsson átti frumkvæði að því að byggja verkamannabústaði á íslandi. Kratar settu bráðabirgðalög til þess að koma honum út úr stjórn verkamannabústaðanna, en þá kusu íbúarnir sjálfir stjórnina. I stað- inn var komið á stjórnum verkamannabú- staða, sem eru kosnar af öðrum en þeim, sem búa í húsunum. Lengi vel hefur tíðkast sú regla, að fólk, sem kaupir verkamannabú- stað, þarf að sæta þvi, að verðlag á þessum húsum er ekki i neinum takt við raunveru- leikann. Fólk, sem verður að selja þessar íbúðir sínar áður en skyldutiminn er liðinn, tapar ævinlega stórfé, og það er í raun í átt- hagaijötrum. Og því sterkari voru ijötrarnir, sem fólkið var fátækara. A torgum hreyktu hins vegar „vinir fá- tæka fólksins” sér, og vörðu þetta kerfi með kjafti og klóm. Þar sem fátækt fólk hefur hingað til ekki getað flúið annað en til Reykjavíkur, gefur auga leið, að oít var húsnæðisekla í Reykja- vík. Það hafði það einfaldlega í för með sér, að leiguhúsnæði hækkaði í verði. Að sjálfsögðu reyndu „vinir fátæka fólksins” að koma í veg fyrir hækkun leiguhúsnæðis með handafli, og var ár- angurinn eftir því. Leiga er enn há í Reykjavík og raunar svo há, að fólk getur ijármagnað íbúðarkaup með því að leigja íbúðina út. Eg held að ástæðan sé einfaldlega sú, að stjórnvöld hafa ver- ið andsnúinn því, að menn byggðu hús til útleigu. Vitað er, að þeir einstaklingar, sem hafa gert slíkt, hafa yfirleitt leigt íbúðir sínar á sanngjörnu verði. Og það sem skiptir mestu: fólk hefur getað verið þar í friði án ótta um, að því verði sagt upp. Ef for- ustumenn ASÍ og BSRB hafa áhuga á að lækka húsaleigu, ættu þeir að beita sér fyrir því, að lífeyrissjóðir félaganna lánuðu til byggingar leiguíbúða. Slíkt myndi skila skjótum og góðum ár- angri. I mörg ár hafa menn viljað endurskoða húsnæðislöggjöfina. Það hefur ætíð verið erfitt, því að varðhundar kerfisins, - Alþýðu- flokksmenn og Alþýðubandalagsmenn hafa verið með stöðvunarvald í öllum ríkis- stjórnum á íslandi frá árinu 1978. Það er því vissulega fagnaðarefiii, að Páll Péturs- son, félagsmálaráðherra skuli nú leggja fram tillögur, sem gjörbylta kerfinu. Og það sem er gleðilegast er, að frumvarpið er allt í frjálsræðisátt. Öll hinn hrikalega mið- stýring húsnæðislánakerfisins er afnumin. Fátæka fólkið þarf ekki lengur að sæta því, að fá aðeins að kaupa íbúðir á vissum stöð- um, heldur fær að ráða því sjálft, hvar keypt er. ASÍ og BSRB fá ekki að ráðskast með félaga sína, heldur eru menn lausir við afskipti þessara manna. Vitanlega hafa „vinir fátæka mannsins” rekið upp öskur og reynt að gera það tor- tryggilegt, að Páll telji, að fátækir menn kunni einnig forráð fótum sínum. Jóhanna Sigurðardóttir varð raunar hlægileg með spásögn sinni um 600 ijölskyldur á göt- unni, - spásögn um að hér yrði álíka ástand og í Sómalíu eða Bosníu. Svona yfirlýsing- ar eru einn eitt dæmið um, að tími hennar sé liðinn í íslenzkum stjórnmálum. Þegar Páll Pétursson knúði fram frv. sitt um vinnulöggjöfina, sýndi hann, að hann hefur pólitískan kjark. Nú sýnir hann, að skoðanir hans eru skoðanir frjáls- lynds manns, sem hefúr frelsi einstak- lingsins að leiðarljósi. SD „VINIR FÁTÆKA MANNSINS" Vitanlega hafa „vinir fátæka mannsins” rekiö upp öskur og reynt aö gera það tortryggilegt, að Páll Pétursson telji, aö fátækir menn kunni einnig forráö fótum sínum. Frumvarp hans er allt í frjálsræðisátt! 33
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.