Frjáls verslun - 01.02.1998, Síða 40
NÆRMYND
Kristín byrjar daginn á Iíkamsrækt
hjá Lindu P. og endar úrvinda heima
á Leifsgötunni undir miðnættið. Hún
gefúr sér samt tíma tíl að fylgjast með
í faginu og fletta myndabókum.
Samband Kristínar við móður sína er sér-
stakur kapítuli en þær eru afar góðar vin-
konur, fara saman í bíó reglulega, fara
saman í helgarferðir til útlanda og fleira.
Kristín hefur mikinn áhuga á ljós-
myndun og hefur alla tíð tekið mikið af
myndum af verkefnum, sem hún hefur
unnið, og á mikið safn mynda. Auk þess
tekur hún myndir á gönguferðum sér til
heilsubótar sem hún fer í þegar færi
gefst. Kristín mun hafa haft nokkurn
áhuga á því að læra ljósmyndun ef tæki-
færi hefðu verið til þess og auðvitað ekki
útilokað að hún hrindi þeim áformum
ung kona, var diskótónlist allsráðandi
og fatatíska þessa tíma setti mikinn svip
á bæinn. Hollywood, Óðal og Broadway
voru helstu skemmtistaðir bæjarins og
þar stigu menn og konur „bump“ dansa
við tónlist úr kvikmyndum eins og
Grease og Saturday Night Fever, Duran
Duran, Wham og Gleðibankinn eru allt
nöfn sem hreyfa við minningunum.
Strákarnir voru með sítt að aftan og
notuðu snyrtivörur á tyllidögum og
stelpurnar voru í glansgöllum og galla-
buxum sem voru svo þröngar að þær
urðu að leggjast á gólfið til þess að
renna upp.
Þetta voru árin þegar HLH flokkur-
inn var það allra fínasta, Utangarðs-
menn með Bubba Morthens voru sann-
arlega utan garðs og Maggi „fíni“ Krist-
jánsson var skemmtanastjóri í
Hollywood.
BARBIEKLÚBBURINN OG
BJUTÍBOLLURNAR
Á þessum árum var Kristín félagi í
Barbieklúbbnum sem var nokkurs kon-
ar saumaklúbbur ungra stúlkna sem
áttu það sameiginlegt að lifa og hrærast
í snyrtivörubransanum og tolla í tísk-
unni. Stúlkurnar í Barbieklúbbnum
klæddu sig stundum upp á í síðkjóla og
skart og settu svip á bæinn og skemmt-
analífið hvar sem þær fóru. Klúbburinn
liðaðist í sundur þegar meirihlutí félag-
anna sneri sér að barneignum og Ijöl-
skyldustússi í staðinn fyrir útstáelsi og
glaum.
Upp úr þessum klúbb var hinsvegar
stofnaður annar sauma- og skemmti-
klúbbur sem starfar blómlega í dag og
STEFNUFESTA OG EINBEITNI
Vinkonur Kristínar segja að hún sé
gríðarlega stefnuföst og einbeitt og þeg-
ar hún hafi bitið eitthvað í sig verði
henni ekki haggað. Hún sé mjög áhuga-
söm um flest, sem vinir hennar taka sér
fyrir hendur, og allt að því ráðn'k. Sum-
um finnst nóg um athafnasemi hennar
og finnst hún vera ofvirk eða eitthvað í
þá áttina. Hún sé jaíhframt afskaplega
opin, glaðlynd, jákvæð og umhyggju-
söm um vini sína og látí sér annt um að
rækta samband við þá. Hún eigi afar
auðvelt með að umgangast fólk og
mynda tengsl við það, eins og sé ákaf-
lega mikilvægt í starfi eins og þessu.
Kristín sé fljóthuga og stundum gæti
óþolinmæði í fari hennar en hún sé samt
góður kennari sem eigi auðvelt með að
miðla þekkingu sinni til fólks.
Kristín og Halldór völdu sér sjálf það
hlutskipti að eignast ekki börn og létu
engan bilbug á sér finna þótt athuga-
semdir og fyrirspurnir ífá ættingjum og
vinum dyndu á þeim en slíkan þrýsting
þekkja þeir vel sem kjósa sér slíkt hlut-
skipti. Vinir Kristínar segja það sýna ein-
þeitni hennar og stefnufestu hvernig
hún hefur náð að halda sínu striki í því
máli þrátt fyrir föst og laus skot.
EVA MARÍA HEITIN
Kristín er hinsvegar mikill dýravin-
ur og má ekkert aumt sjá. Hún átti
árum saman litla tík sem hét Eva Mar-
ía Albertsdóttír og var af kínversku
smáhundakyni. Á ellefta aldursári
veiktist Eva María af hjartveiki og lést.
Hennar var sárt saknað. Það er fullyrt
að Kristín vilji fá sér hund aftur og í
BARBIE EÐA „BJUTIBOLLA"
Stúlkurnar í Barbieklúbbnum klæddu sig stundum upp á í síökjóla og skart og settu svip á bæinn og skemmtanalífið hvar sem þær
fóru. Klúbburinn liðaðist í sundur þegar meirihluti félaganna sneri sér að barneignum og fjölskyldustússi í staðinn fyrir útstáelsi og
glaum. Upp úr þessum klúbb var hinsvegar stofnaður annar sauma- og skemmtiklúbbur sem starfar blómlega í dag og ber nafnið
sínum í framkvæmd. Starfið útheimtir
mjög oft nána samvinnu með ljósmynd-
urum því förðunarmeistarar eru yfirleitt
fengnir tíl þess að farða fyrirsætur, sér-
staklega fyrir ákveðnar tökur, og í tílfelli
Kristínar er það stór hluti af starfinu.
DISKÓTÍMINN
Kristín tilheyrir þeirri kynslóð sem
stundum er kölluð diskókynslóðin. Á
þeim árum, sem hún var unglingur og
Bjútíbollurnar.
ber nafnið Bjútíbollurnar. Það vísar til
þess að allar stúlkurnar, sem eru félag-
ar, fást við snyrtingu og förðun, þær
hafa lært þetta fag og eru góðar vin-
konur. Fyrir utan Kristínu eru eftír-
taldir félagar: Kristín Friðriksdóttir
sminka á Stöð 2, Helga Jónsdóttir, Lilja
Matthíasdóttir og Hjördís Erlingsdótt-
ir, veitingastjóri á Vegamótum. Allt eru
þetta förðunarmeistarar sem starfa
meira eða minna við sitt fag.
þetta skiptí mexíkanskan chihuahua
sem er kvikur og starfsamur smá-
hundur.
Þannig sýnir nærmyndin af Kristínu
okkur starfsama og duglega nútíma-
konu sem hefur haslað sér völl á sviði
viðskipta þar sem sérþekking hennar og
áhugamál njóta sín. í það beinir nútíma-
konan allri sinni orku en hefðbundin
hlutverk móður og húsmóður bíða betri
tíma. B3
40