Frjáls verslun - 01.02.1998, Page 46
Það var skömmu eftir 1970 sem leikararnir Árni Tryggvason og Bessi Bjarnason birtust íyrst á skjánum í gervi tveggja róna
sem sátu og spiluðu á spil. Þetta voru miklir heimspekingar. Annar svindlaði jafnan og hinn svaraði ávallt að bragði: „Þa
bara sona”. Þessi setning varð fleyg á meðal fólks.
Happdrætti Háskólans hefur í bráðum prjátíu ár keyrt á húmor í auglýsingum
sínum. Margir þekktustu grínleikarar þjóöarinnar hafa komiö við sögu.
gríni og að Happdrætti Háskólans hafi
verið frumkvöðull á því sviði.
ÞA BARA SONA
Það var skömmu eftir 1970 sem Arni
og Bessi birtust fyrst á skjánum í gervi
tveggja róna sem sátu og spiluðu á spil.
Þetta voru miklir heimspekingar á sinn
hátt en annar var heldur einfaldari en
hinn og þegar félaginn svindlaði á hon-
um sagði hann jafnan: „Þa bara sona.“
Þessi frasi smaug svo inn í þjóðarsál-
ina að árurn saman var hann á allra vör-
um. Sú tillaga var sett fram að letra ætti
setninguna með stórum stöfum yfir
höfðum gesta í Háskóla Islands svo í
stað: Mennt er máttur, stæði þar: Þa
bara sona. Uppruni frasans var sá að
Ólafur hafði hitt konu í afmæli sem
notaði þetta orðtak.
Það var ekki að sökum að spyrja að
Bessi og Arni þóttu svo skemmtilegir að
þeir léku í happdrættisauglýsingunum í
mörg ár eftir þetta og alltaf í gervi rón-
□ egar sjónvarpið á íslandi var
svarthvítt og stjórnmálamenn
voru þéraðir á skjánum var ekki
mikið um flím og spé í dagskránni. Und-
irstaða hennar var dauðans alvara og
engin sjáanleg ástæða til þess að hafa líf-
ið í flimtingum. Þó var
eitt ljós í myrkrinu. í árs-
byrjun var oft hægt að
hlæja sig máttlausan að
auglýsingum Happdrætt-
is Háskóla Islands. Ennþá
muna allir eftir Arna
Tryggvasyni og Bessa
Bjarnasyni þegar þeir léku
félaga sem sátu að spilum.
Þeir voru þá vinsælustu
gamanleikarar þjóðarinnar.
Margir muna eflaust einnig
eftir auglýsingum þar sem
Sigurður Sigurjónsson sat í
baðkari og pældi í vinnings-
líkum. Þjóðin grét af hlátri.
Hugmyndasmiðurinn ;
allar
sum orðum:
verið þú'. •
bak við þetta allt saman var þá talinn
einn fremsti auglýsingamaður þjóðar-
innar, Ólafur Stephensen. Hann hefur
nú dregið sig í hlé að miklu leyti, starfar
sem tónlistarmaður og spilar djass á pí-
anó en ræður mönnum þó
enn heilt um almanna-
tengsl og þessháttar.
Önnur happdrætti hafa
tekið þennan sið upp og
er skemmst að minnast
auglýsinga frá happ-
drætti DAS á síðasta ári
þar sem Sigurður Sigur-
jónsson lék. Leikir eins
og Lottó og Getraunir
hafa gert út á fyndni í
auglýsingum sínum
árum saman og mætti
telja mörg dæmi um
það. Þannig má segja
að það hafi komist í
tísku á Islandi að aug-
lýsa happdrætti með
þeirra
Laddi er emn
sem auglýst hafa fýnr
Happdrætti Háskolans.
Fyrir nokkrum arum
,ék hann stórskemmti-
legan aula sem endað'
setningar a þes
Gætir
46