Frjáls verslun - 01.02.1998, Side 47
MARKAÐSMAL
ALVARA EÐA GRÍN
„Þegar sjónvarpið á íslandi var svarthvítt og stjórnmálamenn voru
þéraöir á skjánum var ekki mikið um flím og spé í dagskránni. Undir-
staða hennar var dauðans alvara og engin sjáanleg ástæða til þess
að hafa lífið í flimtingum. Þó var eitt Ijós í myrkrinu. í ársbyrjun var
oft hægt að hlæja sig máttlausan að auglýsingum Happdrættis Há-
skóla íslands."
anna tveggja. Á hverju ári voru
þeir í nýju gervi og eitt árið
dönsuðu þeir og sungu: Sértu
hundheppinn, úr My fair lady.
Það er jafnvel freistandi að
halda því fram að þeir félagar
hafi verið frumgerðir -prótótýp-
ur- iýrir ákveðið form af kimni
sem síðar birtist á skjánum,
Kaffibrúsakörlunum og nú síð-
ast í Boga og Örvari. Tveir al-
þýðuspekingar sem skemmtu
fólki með orðaleikjum og brönd-
urum.
„Á þessum tíma hélt ég því
statt og stöðugt fram að auglýs-
ingar ættu alls ekki að skennnta
fólki heldur fræða það og upp-
lýsa. Þetta stendur m.a. í bók
sem ég skrifaði um auglýsingar.
Á þessum árum voru happ-
drættisauglýsingarnar alltaf
frumsýndar á annan dag jóla og
þjóðin beið eftir þessu. Kannski
var maður viljugri að gera eitt-
hvað skemmtílegt vegna þess.“
Á þessum tíma rak Ólafur
auglýsingastofuna Argus og
Happdrættið var meðal við-
skiptavina. Það voru Ólafur og
Hilmar Sigurðsson sem lögðu á
ráðin við gerð fyrstu auglýsing-
arinnar og með þeim unnu Jón
Þór Hannesson og Snorri Þóris-
son sem síðar stofnuðu
Sagafilm.
UPP MEÐ HÚMORINN
Og hvernig er svo húmorinn
hjá happdrættínu árið 1998?
I ár sjáum við íjóra sérstæða
karaktera sýsla við ýmsar íþrótt-
ir. Einn baslar í keilu, annar puð-
ar í biljarð, einn
fleygir pílum og
enn einn veifar
golfkylfu. Þeir
eru allir með
réttu græjurnar,
passandi skó og vita hvað á að
gera en gengur kannski ekki
vel. En þeir vilja vinna.
Helgi Helgason hjá Góðu
fólki sagði í samtali við blaðið að
sjónvarpsauglýsingar um happ-
drætti væru umfram allt stemn-
ingsauglýsingar.
„Það þarf ekki að segja fólki
að ef það hlýtur stóra vinninginn
þá geti það keypt sér þetta eða
hitt. Það hafa allir sína drauma
um það og vita út á hvað þetta
gengur. Það, sem við vildum
koma til skila á skemmtilegan
hátt, er að þér getur gengið mis-
jafnlega vel í íþróttum en í happ-
drættinu eru allir jafnir. Þar
koma menn til dyranna eins og
þeir eru klæddir og eiga sömu
möguleika og aðrir.“
Helgi sagði að hluti verkefii-
isins í þessu tilfelli væri að
hleypa nýju lífi í þekkta vöru.
Bæði hér og erlendis væri vin-
sælust sú leið, þegar þyrfti að
auglýsa happdrætti eða lottó, að
nota kímni og skemmtun til
þess að skapa jákvæða stemn-
ingu gagnvart leiknum.
„Þetta er fyrst og fremst leik-
ur og engin ástæða til að vera
með neina alvöru og leiðindi.
Persónurnar í auglýsingunum
eru valdar með tilliti til þess að
þetta sé fólk sem maður sér ekki
í auglýsingum dagsdaglega. Það
undirstrikar að allir geta verið
með eða eins og þau segja: „Eg
vil vinna.“
Við völdum persónur sem
skapa umtal og vekja athygli.
Happdrættið þurftí nauðsynlega
á því að halda að
komast í umræð-
una og skapa sér
stemningu. Það
virðist hafa tekist
með ágætum." S3
SAGANÁBAK
VIÐ HERFERÐINA
Páll Ásgeir Ásgeirsson
47