Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1998, Side 64

Frjáls verslun - 01.02.1998, Side 64
/ Agúst Einarsson, framkvœmdastjóri Rafvers, segir ad jardvinnslutœkin frá Svedala hœfi íslenskum aðstœðum. Ágúst Einarsson, framkvæmdastjóri Ralvers. FV-myndir: Kristján Maack. ALLT TIL JARÐVEGSVINNU m Það eru tæki til jarðvegs- vinnu, grjótmulnings, hörp- unar, þjöppunar og malbikun- ar sem Rafver flytur einkum inn frá Svedala en einnig brunndælur, dælur og fleira sem að gagni má koma við stórframkvæmdir. Svedala á vörumerkið og fyrirtækið Dynapac sem margir þekkja og hefur lengi verið í fremstu röð hvað varðar tæki á sviði jarðvegs- vinnu og undirbyggingar. Valt- arar frá Dynapac eru nokkurs- konar vorboðar á götum Reykjavíkur og víðar þegar ár- legar viðgerðir hefjast. Svedala býður upp á tæki til jarðvinnslu af ýmsum stærðum og gerðum en einn- ig heilar verksmiðjur eða samstæður sem hægt er að flytja hvert sem er og setja upp með stuttum fýrirvara. Slík samstæða samanstendur af grjótkvörnum, mulnings- vélum, færiböndum og fleiru sem til þarf til að framleiða fýrsta flokks byggingarefni. Svedala leggur metnað sinn í að það séu tæki frá þeim sem vinni verkið, hvort sem verktakinn sé að vinna Jarðvegsþjappa frá Dynapac- □ ið flytjum inn mjög mörg vörumerki til ólíkra hluta og nokkur frá Svíþjóð en af þeim er Svedala nafnið langstærst. Þessu fyrirtæki eða fyrirtækjasamsteypu vex stöðugt fiskur um hrygg," segir Agúst Einarsson framkvæmdastjóri Rafvers hf. í Skeifunni. Rafver er rúmlega fertugt fýrirtæki, stofnað 1956 og undirstaða þess er rafvélaviðgerðir og hefðbundin rafrnagnsvinna en innflutningur skipar stöðugt stærri sess. 13 starfsmenn vinna hjá Rafveri. Svedala International hefur helstu bækistöðvar sínar í Svíþjóð og er sænskt fyrirtæki en Svedala nafnið vísar til sænsku dalanna. Malmö í Svíþjóð er heimavöllur þess og þar er að finna fimm af átta fýr- irtækjum í eigu Svedala sem hvert um sig einbeitir sér að ákveðnum þáttum. Þrjú til viðbótar eru síðan í Bandaríkjunum og auk þess eru söluskrifstofur og umboðsmenn í rúmlega 40 löndum heimsins. „Okkar helstu innflutningsvörur frá Svedala koma bæði frá Svíþjóð og Þýskalandi og víðar að,“ segir Ágúst sem lætur vel af samstarfinu við sænska stórveldið. Samstarf þeirra felst auk þess í ráðgjöf, fundahöldum og því að miðla tæknilegum upplýsingum. TEXTI: PÁLL ÁSGEIR ÁSGEIRSSON undirlag fýrir veg, byggingar eða önnur mannvirki. Með öðrum orðum, að þeirra tæki vinni allt frá undirvinnu til endanlegs frágangs sem tengist malbikun og steypu- vinnu. Hjá þeim seru síló, dælur, víbratorarar og fleira til í miklu úrvali. Að sögn Ágústs er íslenski markaðurinn fýrir slík tæki ekki mjög stór borið saman við aðra markaði en hér er unnið að vegagerð, gatnagerð og ýmsum ffamkvæmdum í tiltölulega stuttan tíma af ár- inu sem kallar á vönduð tæki. Helstu viðskiptavinir eru byggingar- og jarðvinnuverk- takar. Ágúst segir að þau um- svif, sem nú séu í aðsigi, hafi aukið eftirspurnina en Rafver útvegar einnig notuð og upp- gerð tæki til jarðvegsvinnslu fráSvedala. I£l 64

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.