Frjáls verslun - 01.02.1998, Side 82
Sara Lind Þorsteinsdóttir, kynningarfulltrúi Landsbanka íslands hf., lærði fjölmiðla-
fræði í Mobile í Alabama. Mynd: Geir Ólafsson
FOLK
bama í Mobile í Alabama og
lauk námi þar 1994.
„Mobile er 300 þúsund
manna háskólaborg og þarna
var gott að vera og njóta veð-
ursins og kynnast sérstæðri
menningu suðurríkjanna.
Eg lagði stund á flölmiðla-
fræði vegna mikils áhuga á ijöl-
miðlum. Þeir skipa stöðugt
meira pláss í lífi okkar; við
verðum alltaf meira háð þeim
og vald þeirra yfir lífi okkar og
heimsmynd vex stöðugt. Ég
hef þó aldrei starfað beinlínis
við fjölmiðlun ef frá er talið eitt
verkefni sem ég vann fyrir
kanadíska sjónvarpsstöð og
svo eitt sumar sem ég var sem
nokkurs konar nemi hjá ís-
lenska útvarpsfélaginu en það
var afar lærdómsríkt."
Þegar náminu lauk kom
Sara heim og gerðist auglýs-
ingastjóri hjá Vífilfelli og starf-
aði þar þangað til hún fór í nú-
verandi starf.
„Það var skemmtilegur tími
SARA LIND, LANDSBANKANUM
itt starf er kynningar-
fulltrúi. Þetta er njht
starf í Landsbankan-
um og má ef til vill segja að
þetta sé svar við breyttum kröf-
um og breyttum tímum. Innan
Landsbankans hefur verið unn-
ið að veigamiklum breytingum
á stjórnskipulagi sem hafa það
að markmiði að skipta verkefn-
um miðað við þá þjónustu sem
verið er að veita og tryggja
þannig leiðtogastöðu hans á
markaðnum,“ segir Sara Lind
Þorsteinsdóttir, kynningarfull-
trúi bankans.
„Það má segja að starfið
skiptist í þrennt. Ég sé um
kynningarmál bankans inn á
við og út á við. Við gefum út
fréttabréf fyrir starfsfólk og
einnig frétlabréf fyrir viðskipta-
vini. Þetta, ásamt ársskýrslu,
heyrir undir útgáfumálin.
TEXTI: PÁLL ÁSGEIR ÁSGEIRSSON
Einnig sé ég um auglýsinga-
mál í þeim skilningi að annast
samskipti við auglýsingastofur
og taka þátt í mótun þeirra her-
ferða og kynninga sem bank-
inn stendur að.
I þriðja lagi er svo umsjón
með útrás bankans á Internetið
sem nú stendur fyrir dyrum. Þó
að Landsbankinn hafi verið
fyrstur allra banka til að nýta sér
þennan miðil hefur dregist að
bankinn tæki virkilegan þátt í
þeirri byltingu sem þar er að
eiga sér stað, aðallega af örygg-
isástæðum en innan skamms
verður opnaður Einkabanki
Landsbankans á netinu og ítar-
legur upplýsingarvefur.“
Landsbankinn er stærstur
íslenskra banka og er markaðs-
hlutdeild hans, talin í útlánum,
um 37%. Bankinn rekur 63 úti-
bú auk Símabanka og höfuð-
stöðva og innan fyrirtækisins
vinna um 1200 manns. Segja
má að þessi stærsti banki
landsins standi á merkum
tímamótum þar sem hann var
gerður að hlutafélagi um ára-
mótin.
„Ég hafði ekki unnið í
Landsbankanum fyrr en ég tók
við þessu starfi en ég hef tölu-
verða reynslu af bankastörfum
þar sem ég vann sem gjaldkeri
í Búnaðarbankanum á sumrin
meðan ég var í námi. Það var
lærdómsríkt og þar kynntist ég
af eigin raun hverjar þarfir
þess starfsfólks, sem stendur í
návígi við viðskiptavinina, eru
hvað varðar upplýsingaflæði og
þess háttar,“ segir Sara.
Sara varð stúdent úr MH en
fór þaðan til náms í Bandaríkj-
unum og lærði fjölmiðlafræði
við University of South Ala-
en mig var farið að langa til að
spreyta mig á nýjum vettvangi
og þegar þetta tækifæri kom
upp þurfti ég ekki að hugsa
mig lengi um, enda mörg
spennandi verkefni fram undan
hjá Landsbankanum.“
Sara er í sambúð með Birgi
Sigfússyni, viðskiptafræðingi
og knattspyrnumanni með KR.
Hún á ellefu ára gamlan son,
Þór Elíasson. Sara segir að
þegar hún sé ekki að vinna vilji
hún helst eyða frítima sínum
með fjölskyldu og vinum.
„Ég fer út að skokka tvisvar
í viku. Þá er ég alltaf ein á ferð
og vil tæma hugann og njóta
einverunnar og útivistarinnar.
Svo les ég mikið og hef nýlokið
við Paradísarheimt eftir Hall-
dór Laxness en er núna að lesa
bók eftir Gunnar Dal sem heit-
ir I dag varð ég kona.“ líl
82