Frjáls verslun - 01.02.1999, Page 8
Feðgarnir Ingi Már Helgason og Helgi Eiríksson sem eiga og reka Verslun Landssímans í Kringlunni. Eitt af verkefnum Lúmex.
Lúmex. FV-mynd: Geir Ólafsson. Ljósmynd: Ari Magg.
Umsvifamiklir feðgar
á Ijósamarkaði
□ fstaða fólks til lýsingar hefur breyst mikið á síðustu
árum. Þess er nú krafist að lýsing hafi þægileg áhrif, örvi
viðskipti og tryggi öryggi, allt eftir því sem við á hverju
sinni. Lýsing heíúr aukist stig af stigi í verslunum jafht sem í verk-
smiðjum á sama tima og annars konar breytingar hafa orðið á lýs-
ingu skrifstofuhúsnæðis. Flöt og einhliða lýsing er þar á undan-
haldi og í staðinn lýsa menn upp ákveðna staði og rými eftir þörf-
um,“ segja feðgarnir Helgi Eiríksson og Ingi Már Helgason, eig-
endur Lúmex. Fyrirtækið er fjölskylduíýrirtæki og hefur verið
umsvifamikið á ljósamarkaði allt frá því það var stofnað árið 1985.
„Lengi vel var ekki mikið lagt upp úr lýsingu í verslunum hér
á landi en þetta hefur gjörbreyst. Mönnum er orðið ljóst að rétt lýs-
ing færir versluninni meiri við-
skipti,“ segir Helgi. „Hugmyndir
hafa verið sóttar bæði til Banda-
ríkjanna og Bretlands og nú er svo
komið að við notum jafnvel meira
ljós í verslunum en gert er í þess-
um löndum.
Hönnun skrifstofuhúsnæðis hef-
ur verið að breytast og meira orðið
um alrými en áður var. Þar vinnur
fólk jöfnum höndum við tölvur, síma-
vörslu og að hugmyndavinnu. Kröf-
ur til skrifstofulýsingar hafa breyst
úr flatri lýsingu í þægilega og ekki of
mikla lýsingu einstakra vinnustöðva í
samræmi við vinnuna sem þar fer
fram. Þá er mönnum orðið ljóst að lýs-
ing í verksmiðjum er veigamikill ör-
yggisþáttur svo léleg lýsing hefur vikið
og aukin og markviss lýsing komið í
Betri sjón
r Kringlunni.
staðinn. Inni á heimilum er síðan farið að huga meira að vellíðan
fólks en áður var. Einnig þar hefur lýsingin aukist og breyst með
tilUti til þess að hún á að geta stuðlað að slökun fólks og að losa
það undan þunglyndi."
Fyrirtækið vex hratt Lúmex hefur vaxið mjög hratt síðustu ár og
aukningin aðallega verið í sérhæfðum verkefnum. A síðasta ári,
sem var besta ár í sögu fyrirtækisins, voru lýstir upp 40 þúsund
fermetrar af atvinnuhúsnæði og 280-300 heimili þar sem notaðar
voru heildarlausnir frá Lúmex. Án efa þekkir almenningur Lúmex
best af versluninni en fyrirtækið hefur auk þess alla tíð rekið
teiknistofu og verkstæði, annast sérsmíði
og þjónustu en síðast en ekki síst verið
umfangsmikill rafverktaki. Á teiknistof-
unni er unnið að lýsingarhönnun fýrir
heimili, fýrirtæki, stofiianir og bæjarfé-
lög. Þar eru teiknaðar raflagnir og arki-
tektum og hönnuðum veitt aðstoð við val
á lampabúnaði og lýsingarlausnum auk
þess sem veitt er ráðgjöf um lýsingu. Sé
þess óskað fara starfsmenn Lúmex á
staðinn og gera tillögur og tilboð.
Fylgst með nýjungum erlendis Helgi
og Ingi Már segja að nauðsynlegt sé að
fylgjast vel með því sem er að gerast
erlendis á sviði lýsingar og leggja því
metnað sinn jafnt í þennan hluta starf-
seminnar sem og annað er þeir vinna.
Þrisvar til flórum sinnum á ári fara
þeir á sýningar og í skoðunarferðir
til að sjá það nýjasta á þessu sviði.
Ljósmynd: Ari Magg■
8