Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1999, Page 10

Frjáls verslun - 01.02.1999, Page 10
FRÉTT1R Baðaöur í leifturljósum Ijósmyndara rœsti Davíð Oddsson forsætisráðherra hina nýju og fullkomnu Heidelberg rúlluprentvél Prentsmiðjunnar Odda. FV-myndir: Geir Ólafsson. Davífl ræsli Oddavélina □ að var í nógu að snú- ast hjá Davíð Odds- syni forsætisráðherra fimmtudaginn 18. febrúar sl. Baðaður í leifturljósum ljós- myndara ræsti hann nýja prentvél hjá Prentsmiðjunni Odda um sexleytið þennan dag. Að því loknu hélt hann rakleitt upp á Skipaskaga í fimmtugsafmæli Ingibjargar Pálmadóttur, heilbrigðis- og tryggingaráðherra. Hin nýja prentvél Odda er af gerðinni Heidelberg Harris en hún er fullkomnasta prent- vél sinnar tegundar hérlendis og brýtur blað í íslenskum prentiðnaði, svo vitnað sé í yf- irskrift kynningar á henni. Hún er 92 tonn að þyngd og 32 metrar að lengd. Prentað er samtíms báðum megin á rúllu- pappír - sem eftír prentun fer í gegnum sérstakan gashitara sem þurrkar prentvélina. Að lokum fer pappírinn í brotvél sem skilar samanbrotínni örk á endastöð. Vélin er sérlega af- kastamikil og prentar 40 þús- und eintök af 16 síðna blaði í ijórlit á aðeins einni klukku- stund. Vélin er ætluð fyrir vinnslu á innanlandsmarkaði en mikil aukning hefur orðið á svo- nefndum mark- og fjölpósti á undanförnum árum þar sem ítrustu kröfur eru gerðar til skjótrar og vandaðrar prent- unar. Þá auðveldar hún sölu- starf Odda í Bandaríkjunum. Prentsmiðjan Oddi er stærsta prentfyrirtæki landsins. I Benediktsson sendiherra. mtamalara^erra og Einar Þorgeir Baldursson, þrentsmiðjustjóri Odda, stóð uþþi á nýju þrent- vélinni er hann kynnti hana til sögunnar og bauð gesti velkomna. Vélin er engin smásmíði, 92 tonn að þyngd og 32 metrar að lengd. Einar S. Einarsson, forstjóri Visa íslands, og Steinar J. Lúðvíks- son, aðalritstjóri Fróða, en Séð og heyrt, eitt aftímaritum Fróða, er m.a. þrentað á methraða í nýju þrentvélinni. 10

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.