Frjáls verslun - 01.02.1999, Qupperneq 19
ferskir vindar
Guðfinna S. Bjarnadóttir, 41 árs, rektor Viðskiptaháskólans í Reykjavík er skelegg og henni jylgja ferskir straumar. Eftir þrettán ára búsetu í
Bandaríkjunum, þar sem hún rak eigið ráðgjafafyrirtceki, LEAD Consulting, ásamt manni sínum, Vilhjálmi Kristjánssyni, fluttust þau heim
til íslands. FV-myndir: Geir Ólajsson.
med ferska vinda inn í íslenskt atvinnulíf Hún rœdir hér stjórnun og skólamál!
fræði viðskipta og tel heillavænlegast að nemendur öðlist þekk-
ingu í kjarnagreinum eins og fjármálum, sölu, markaðsfræðum,
tölfræði, stjórnun og tölvufræði. Kynni mín af stjórnendum í
Bandaríkjunum voru þau að þeir, sem ekki voru vel að sér í
kjarnagreinunum - höíðu ekki almenna þekkingu í viðskiptafræð-
um heldur voru mjög sérhæfðir - áttu frekar í vök að verjast sem
stjórnendur. Góður stjórnandi verður að hafa áhuga á og innsýn í
íjármál jafnt sem markaðsmál, starfsmannahald sem tölfræði.
Auðvitað er alltaf hægt að velta fyrir sér hver sé rétta uppskriftin
að góðum stjórnanda. En miklu skiptir að kennslan sé byggð á
ákveðnum grunni sem allir fá - og hver og einn byggi síðan ofan á
hann eftir áhuga sínum.“
- Telur þú að námið í Viðskiptahóskólanum eigi eftir að draga
úr ásókn nemenda í framhaldsnám í viðskiptafræðum erlendis?
„Það held ég ekki, það verður alltaf ákveðinn hlutí nemenda
19