Frjáls verslun - 01.02.1999, Síða 29
endur sitja ekki við sama borð og erlend-
ir gagnvart neytendum. Islenskir útgef-
endur og þeir sem reka íjölmiðla sitja
alls ekki við sama borð og erlendir
keppinautar þeirra á íslenskum mark-
aði.“
Hið opinbera ræður Er þetta sú niður-
staða sem þið reiknuðuð með eða kom
þetta mjög á óvart?
„Við vorurn að vona að það kæmu
skýrari tilmæli frá Hæstarétti til löggjaf-
arvaldsins um að ástandið væri óviðun-
andi.
Hér erum við að tala um vöru sem er
framleidd samkvæmt leyfi frá hinu opin-
bera, undir ströngu eftirliti frá hinu opin-
bera og meirihluti sölunnar og þar með
stýring neyslunnar er í umsjá hins opin-
bera auk þess sem ríkið hefur af þessu
tekjur. Það er alveg með ólíkindum að
það megi ekki einu sinni koma einföld-
ustu staðreyndum á framfæri við neyt-
endur án þess að bijóta lögin.
Á veltiskiltinu, sem dómurinn fjallaði
um, var aðeins verið að koma ákveðnum
staðreyndum á framfæri við neytendur
um nýja vöru á markaði. Það var alls
ekki verið að hvetja til neyslu á einn eða
neinn hátt.
Það liggur tyrir að stór hluti þjóðar-
innar kaupir sér reglulega bjór. Við sem
framleiðendur megum stunda vöruþró-
Jón Snorri Snorrason, framkvœmdastjóri Ölgerðarinnar, var dœmdur í Hæstarétti á dögunum
fyrir brot á áfengislögunum. Dómurinn hefur vakið mikla athygli en með honum þykir íslensk-
um bjórframleiðendum staðfest misrétti. FV-mynd: Kristín Bogadóttir.
staðfestir misrétti
er dæmdur maöur. 25. febrúar kvað Hæstiréttur upp pann dóm aö hann heföi
hann til greiöslu sektar. Hann vill lög sem ganga jafntyfir alla!
un og haga okkur að öllu leyti eins og
við værum að framleiða hveija aðra
neysluvöru nema við megum ekki einu
sinni láta þá sem vitað er að neyta vör-
unnar vita af nýjungum."
Innan ramma laganna Var tiigangur-
inn með auglýsingum ykkar þá öðrum
þræði að vekja athygli á þessum tví-
skinnungi?
„Nei það var það ekki. Við töldum að
með birtingu orðanna „Nú er Egill sterk-
ur“ á flettiskiltinu værum við innan
ramma laganna eins og þau hafa verið
túlkuð. Það eru taldir upp í lögunum
ákveðnir hlutir sem má ekki og við töld-
um að á skiltinu væri hvergi farið yfir
mörkin. Það voru síðan aðrir framleið-
endur sem, eftir dóm Héraðsdóms,
komu fram með auglýsingar sem bein-
línis var ætlað að reyna á það hvað mætti
og hvað mætti ekki.“
Einkennist af þversögnum Jón Snorri
telur að öll umræða um áfengismál á ís-
landi einkennist af ákveðnum þversögn-
um.
„Það er Ijóst að það má ekki segja í
auglýsingu það sem má birta í frétt á
síðum dagblaðanna. Það væri sök sér að
hafa auglýsingabann ef það gilti fyrir alla
og allir sætu við sama borð en svo er alls
ekki.
TEXTI: Páll flsgeir Ásgeirsson
29