Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1999, Side 43

Frjáls verslun - 01.02.1999, Side 43
ftJÁRMÁL vegar ákveður að kjósa fimm þá fær hver um sig 100 atkvæði. Hann getur líka ákveðið að skipta at- kvæðamagninu þannig að einn maður fái 150 atkvæði og annar 350.“ Hann bendir á að bæði hlutfallskosning og margfeldiskosning leiði til þess að minnihlutinn eigi meiri möguleika á að koma mönnum í stjórn. í lögunum sé ákvæði um það að tiltekinn hluti hlut- hafa geti gert kröfu um að það verði beitt hlutfallskosningu eða margfeldiskosningu við kjör stjórn- armanna en slíka kröfu verður þá að gera bréflega til stjórnar minnst fimm dögum fyrir hluthafa- fund. Ef tveir hópar gera kröfu til framkvæmd kosninganna, annar fer fram á hlutfallskosningu en hinn margfeldiskosningu, þá skal beita margfeldiskosningu. Ef engin krafa berst fer meirihlutakosn- ing fram. Þrír til SjÖ í Stjúrn Þegar þá spurningu ber á góma hver mæting hluthafa þurfi að vera til að sam- þykktir og ályktanir séu gildar, segir Baldur að meginreglan sé sú sem kveðið er á um mætingu í samþykktum einstakra félaga. Hann segir að í eldri félögum séu gjarnan ákvæði um að til þess að hluthafafundur sé lögmætur þurfi að vera mættir hluthafar sem fari með eitthvert ákveðið hlutfall hlutafjár, oft helming. Þetta segir hann þó að hafi stundum valdið erfiðleikum, sérstaklega í eldri og ijölmennari félögum, þar sem erfiðlega hefur gengið að ná þessum ijölda saman. Upp á síðkastið er því í vaxandi mæli farið að taka tfam í samþykktum að fundur sé löglegur óháð þvi hversu margir hluthafar sæki hann ef aðeins sé löglega staðið að boðun fundarins. „Til lagabreytinga þarf yfirleitt samþykki tveggja þriðju þeirra sem eru á fundinum en afar lítið hlutfall hluthafa getur verið á fundinum ef ekkert ákvæði er um lágmarksmætingu. Nokkrar undan- tekningar eru þó frá meginreglunni, fyrst og fremst varðandi ákvarðanir sem breyta grundvelli fé- lagsins, svo sem það að skerða rétt hluthafa til arðgreiðslu, öðrum en hluthöfum til hagsbóta, það að auka skuldbindingar hluthafa gagnvart félaginu eða að innleiða hömlur á meðferð eða heimild hluthafa til að selja og framselja sína hluti þannig að það eru ákveðnir hlutir sem þurfa samþykki allra hluthafa, ekki bara þeirra sem eru á fundi. Eins þarf samþykki tveggja þriðju allra hluthafa í fé- lagi til að samþykkja að slíta félagi. Þetta eru undantekningar frá meginreglunni sem er sú að það er ákvörðun hvers félags hvað það áskilur um mætingu á fund til að fundur sé lögmætur," segir Bald- ur. Yfirleitt skipa þrír til sjö menn stjórn hlutafélags en þó er vitað um félög með níu menn í stjórn. Sami maður má ekki vera stjórnarformaður og framkvæmdastjóri eða forstjóri. Hins vegar getur framkvæmdastjóri eða forstjóri verið í stjórn. Ekkert kemur í veg fyrir að í félagi geti verið bæði framkvæmdastjóri og stjórnarformaður í starfi. Stjórnarformaðurinn hugsar þá um stefnumörkun en framkvæmdastjórinn sfyrir hinum daglega rekstri. B3 ADALFUNDIR ^ 1. Aðalfundur er hluthafafundur og hann er skylt ^ að halda einu sinni á ári. 2. Tilgangur aðalfundar er að taka til afgreiðslu ársreikning félagsins, taka ákvörðun um með- \ ferð hagnaðar og taps, úthlutun arðs og kosn- ingu stjórnar. \ 3. Samkvæmt hlutafélagalögum getur kjörtíma- bil stjórna verið allt að fjögur ár. 4. Aðalfund ber að halda eigi síðar en átta mán- uðum eftir lok reikningsárs, þ.e. fyrir lok ágústmánaðar. V 5. Almenna reglan er sú að til hluthafafundar skuli boðað með minnst einnar viku og mest fjögurra vikna fyrirvara. N 6. 1 fámennari félögum er oft boðað til fundar með ábyrgðarbréfi en í fjölmennari félögum má boða til fundar með auglýsingum í fjölmiðl- > um. I 7. Kosningin skal framkvæmd sem meirihluta- kosning milli einstaklinga ef ekki er kveðið á um annað. í reynd þýðir það að þeir sem fara L-,V/Vvnw.|,.-> 'v>-vvv-. ~V. með meirihluta atkvæða í félaginu geta ráðið öllum sfiórnarmönnum ef þeir kjósa allir þá sömu. 8. Hlutfallskosning kallast það þegar kosið er í stjórn eftir hlutfallslegri stærð hluthafa. 9. Margfeldiskosning er það þegar atkvæða- magn hluthafa er margfaldað með fiölda þeirra sem kjósa á í stjórn. Ef viðkomandi hlut- hafi fer með 100 atkvæði í félaginu og kjósa skal fimm stjórnarmenn telst hann í raun hafa yfir 500 atkvæðum að ráða. 10. Minnihlutinn á meiri möguleika á að koma mönnum í stjórn með margfeldiskosningu. 11. Til lagabreytinga þarf yfirleitt samþykki tveggja þriðju þeirra sem eru á fundinum. Hins vegar þarf samþykki tveggja þriðju allra hluthafa í félagi til að slíta því. 12. Sami maður má ekki vera stjórnarformaður og framkvæmdastjóri eða forstjóri. Ekkert kemur hins vegar í veg fyrir að í félagi geti ver- ið bæði framkvæmdastjóri og stjórnarformað- ur í starfi. "**■•" ^ V. V -ws, " m /=y/_/VI£7/= Á frábæru verði Ræstivagnar stórir og allt þar á milli Einfalt og gott moppukerfi Öll áhöld og tæki til hreingeminga. Fyrir fólk og fallegra umhverfi. v3 BLINDRAVINNUSTOFAN Hamrahlíð 17 SÍMI 525 00 25 43

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.