Fregnir - 01.06.2005, Qupperneq 13

Fregnir - 01.06.2005, Qupperneq 13
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða Yfírskrift fundarins var Sameinum kraftana. Fjallað var um fundinn í Fregn- um 3/2004, bls. 53-54. Fundurinn var fjöl- sóttur, þátttakendur um 240. Almennt þátt- tökugjald fyrir félaga í Upplýsingu var kr. 13.000 en kr. 16.000 fyrir utanfélagsmenn. Ritstjórar Fregna Rekstrarreíkningur 2004 Rekstrargjöld Kostnaður v. fyrirlesara 386.860 Kostnaður v. skemmtiatriða 95.040 Kostnaður, ráðstefnusalir og matur 2.326.235 Kostnaður, ýmislegt 95.159 Samtals gjöld 2.903.294 Rekstrartekjur Ráðstefnugjöld 2.935.000 Styrkur frá Þjónustumiðstöð 200.000 Ógreidd landsfundargjöld 45.000 Samtals innkoma 3.180.000 Tekiur umfram aiöld 276.206 Ógreidd landsfundargjöld 45.000 Lilja Ólafsdóttir gjaldkeri Upplýsingar Framkvæmdaáætlun stjórnar 2005-2006 1. Rekstur og uppbygging skrifstofu félags- ins, svo sem að svara erindum og fyrir- spumum sem berast. Koma ýmsum upp- lýsingum sem berast félaginu, svo sem um ráðstefnur erlendis, á framfæri við félags- menn um póstlista félagsins og/eða í Fregnum. Sinna tengslum við og halda utan um störf nefnda, fulltrúa, starfshópa og áhugahópa sem vinna á vegum félagsins. Skipuleggja, byggja upp og halda við vefsetri félagsins www.upplvs ing.is Ganga frá skjölum fyrri félaga að lokinni skráningu sögu þeirra og finna þeim geymslustað. Viðhalda félagatali og útsendingarlistum Fregna og Bókasafns- ins. Stefnt er að aukinni ráðningu starfs- fólks á starfsárinu. 2. Útgáfa og dreifmg fréttabréfsins Fregna sem kemur út þrisvar á ári. 3. Endurskipulagning húsnæðismála félags- ins. 4. Sinna kynningu á félaginu, innanlands sem utan. Gera kynningarbækling um félagið. Bjóða nemum í bókasafns- og upplýsingafræði á kynningarfund ef næg þátttaka næst. 5. Þátttaka í samstarfi formanna og fram- kvæmdastjóra norrænna bókavarðafélaga og árlegum fundi þeirra svo og þátttaka í annarri norrænni samvinnu eftir því sem við á. Ennfremur þátttaka í evrópsku (svo sem NVBF og EBLIDA) og alþjóðlegu samstarfi (svo sem IFLA) eftir því sem við á hverju sinni. 6. Halda alþjóðlega dagsráðstefnu um bóka- safns- og upplýsingamál 23. ágúst næst- komandi í samvinnu við Bókasafns- og upplýsingafræðiskor Háskóla Islands. 7. Endurskipulagning starfsemi félagsins í þá veru að auka verkaskiptingu þannig að ákveðnir stjómarmenn og/eða félagsmenn taki að sér ákveðin verksvið og/eða verk- efni. 8. Með júníhefti Fregna verða send félags- skírteini til fúllgildra félagsmanna í annað skipti. Einnig verður skoðaður sá mögu- leiki að gefa félagsmönnum kost á nafn- spjöldum með einkennismerki Upplýs- ingar. 9. Athuga endurskoðun siðareglna í samræmi samfélagsþróun. 10. Endurskoða reglur Ferðasjóðs Upplýsing- ar. 11. Halda opinn samráðsfund með fulltrúum nefnda og fulltrúum félagsins í nefndum og ráðum um starfsemi félagsins og innra starf þess. Slíkan fund skal að jafnaði halda annað eða þriðja hvert ár. 12. Endurmenntun starfsfólks á bókasöfnum meðal annars í samstarfi við Endurmennt- un HÍ og aðra aðila eftir því sem við á. Standa fyrir fræðslufundum fyrir félags- menn. 13. Útgáfa fræðsluefnis um nýtingu á upp- lýsingatækni á heimasíðu félagsins og á prentuðu formi. Menntamálaráðuneyti hefúr veitt styrk til verkefnisins að upphæð kr. 350.000 (2001) og kr. 1.000.000 (2003). Bæklingur liggur fyrir í handriti og stefnt er að útgáfú hans á árinu. 14. Ljúka við námsefnis- og námsgagnagerð í framhaldi af námskrá fyrir bókasafnstækni og dreifnámi fyrir starfandi ófaglærða bókaverði sem hófst 13. desember 2003 við Borgarholtsskóla. Menntamálaráðu- neyti hefur veitt styrk að upphæð kr. 450.000 (2001) til námsefnis- og náms- gagnagerðar og 1.300.000 (2003). Verk- efnisstjórn lauk samningagerð við höfunda á árinu 2003. 30. árg. - 2. tbl. 2005 - bls. 13

x

Fregnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fregnir
https://timarit.is/publication/283

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.