Fregnir - 01.06.2005, Blaðsíða 39

Fregnir - 01.06.2005, Blaðsíða 39
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafræða Varla kemur Landskerfi bókasafna til greina, hlutverk þess er fyrst og fremst tengt gagnagrunninum sjálfum og rekstri hans. Þarf að búa til eina stofnunina enn til að leysa þetta mál eða er hægt að efla Lands- bókasafn Islands - Háskólabókasafn svo það geti sinnt skyldum sínum og tekið að auki að sér að vera skráningarmiðstöð fyrir önnur söfn á Islandi? Það er eins og byrjað hafí verið á öfug- um enda í þessu máli og fólk vaknað upp við vondan draum á miðri leið. Söfnin hafa kappkostað að eignast að minnsta kosti einn starfsmann með skráningarheimild því ekki glitti í neina aðra lausn í sjónmáli en að hver yrði að bjarga sér sjálfur eins og verið hefur hingað til. Að mínu mati hefði þurft að skipuleggja þennan þátt strax frá upphafí og hafa hann frágenginn áður en gefin var heimild til að tengja og skrá í gagnagrunninn. Málið verður ekki leyst með því að setja gjald á námskeið Landskerfís í skráningu í Gegni til að reyna að draga úr aðsókn að þeim. Mörgum söfnum, sem hafa jafnvel ekki enn getað sent neinn starfsmann á skrán- ingamámskeið, þykir ósanngjamt að eiga allt í einu að fara að greiða fyrir sitt fólk meðan önnur söfn hafa getað sent fjölda starfsmanna fyrir ekki neitt á námskeiðin. Verðlagningin á umræddum námskeiðum er einnig umdeild og varla sanngjamt að taka mið af verðlagningu námskeiða End- urmenntun HI þegar innheimta á nám- skeiðsgjöld af eigendum hlutafélagsins. Brýnt er að leysa málið hið fyrsta og taka tillit til ólíkra þarfa safnanna í Gegni. Mér hugnast betur að styrkja stofnanir, sem fyrir eru til að sinna þessu verkefni, frekar en að búa til nýja stofnun. Hulda Björk Þorkelsdóttir Fréttir frá skráningarráði Skráningarráð var skipað að nýju með erindisbréfi 19. okt. 2004 með starfstíma til 31. ágúst 2005. í því eiga nú sæti auk mín, Fanney Sigurgeirsdóttir sem tók ný- verið við af Auði Gestsdóttur, Guðný Ragnarsdóttir, Hulda B. Ásgrímsdóttir og Þórdís T. Þórarinsdóttir. Þrír aðilar aðrir starfa með skráningarráði, Sigrún Hauks- dóttir Landskerfi bókasafna, Hildur Gunn- laugsdóttir ritstjóri bókfræðigmnns Gegnis og Ragna Steinarsdóttir ritstjóri efnisorða. í maí 2004 kom í ljós að bókfræði- færslur höfðu skemmst eftir að kerfið var tekið í notkun vegna rangrar uppsetningar þess. Meðal annars eyddu ákveðnar skip- anir greinamerkjum. Skráningarráð sam- þykkti 27. maí að setja á skráningarbann meðan leitað væri leiða til að leiðrétta vandann og til að koma í veg fyrir að gögnin skemmdust frekar. Þessi ákvörðun skráningarráðs var vægast sagt mjög um- deild. Leitað var til sérfræðinga Aleph í ísrael og Þýskalandi varðandi lagfæringar á upp- setningunni og leiðréttingu gagna sem skemmst höfðu. Skráning var leyfð aftur 23. júní þegar ljóst var að gögnin ættu ekki á hættu að skemmast lengur. Leiðréttingar fengust ekki endanlega fyrr en nú um miðjan júní þegar kerfinu var lokað í tvo daga. Mikið hefur verið rætt um stöðu þeirra safna sem ekki hafa skráningarheimild og gerð þjónustusamninga milli safna eða ein- staklinga um skráningu. Stjóm Aleflis kannaði hversu mörg söfn sem ekki hafa skráningarheimild þurfa á skráningarað- stoð að halda og reyndust þau ekki mjög mörg og ekki um verulegt magn safngagna að ræða. Athugað verður hverjir em til- búnir að taka að sér skráningu fyrir aðra. Efnisorðaráð sem skráningarráð skip- aði hefur lagt fram tillögur að skipulagi bæði varðandi leiðréttingar og hvemig skuli staðið að áframhaldandi þróun Kerfisbundins efnisorðalykils. Lykillinn er nú aðgengilegur á vef Landskerfis og von- andi verður gert átak í viðhaldi hans fljót- lega. Unnið hefur verið að því að skipta greiniskráningu tímarita milli safna og er sú vinna nokkuð á veg komin. í desember samþykkti skráningarráð reglur um lágmarkskóðun íyrir mismun- andi efnisform í Gegni. Einnig hafa verið settar reglur um hverju þarf að breyta í færslum sem sóttar em í OCLC. Meðal verkefna skráningarráðs er gæða- eftirlit og reynt hefur verið að finna leiðir til að sinna því. Það em um 115 manns með skráningarheimild í Gegni. Gæði skráningar eru ekki nógu mikil, of margir skrásetjarar hafa ekki nægilega skrán- ingarfæmi, bæði hvað varðar almenna 30. árg. - 2. tbl. 2005 - bls. 39
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Fregnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fregnir
https://timarit.is/publication/283

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.