Fregnir - 01.06.2005, Page 41

Fregnir - 01.06.2005, Page 41
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og applýsingafrœða ingu starfshátta í íslenskum bókasöfnum. Ritstjóm safnar efni og semur nýtt eftir at- vikum. Aðrir sérfræðingar innan og utan Landsbókasafns leggja hönd á plóg að beiðni ritstjórnar eða eftir því sem tilefni gefast. Fyrirspurnir og athugasemdir varð- andi handbókina óskast sendar á netfangið hask@bok.hi.is. Hildur Gunnlaugsdóttir gœðastjóri skráningar Landsbókasafni Islands - Háskólabókasafni Námskeið í lyklun Upplýsing og efnisorðaráð Gegnis stóðu fýrir námskeiði í lyklun í maí og fengu virtan bandarískan sérfræðing á alþjóða- vísu sem aðalfyrirlesara. Það var ánægjulegt að fá enn frekari staðfestingu á að okkar lykill er unninn í samræmi við viðurkenndar alþjóðlegar reglur um gerð kerfísbundinna efnisorða- lykla og vonandi em hvergi í heiminum nema á íslandi dæmi urn að eini útgefni kerfisbundni efnisorðalykillinn í landinu sé upphaflega unninn í sjálfboðavinnu af tveimur áhugasömum fræðingum eftir vinnu og um helgar, þvílíkt þrekvirki sem þessar mætu konur hafa unnið. Þetta sýnir best hve lítill skilningur ráðamanna hefur verið á þörf fyrir samræmd vinnubrögð við bókfræðilega skráningu og efnisorðagjöf. Það er ekki nóg að setja ákvæði í lög um skyldur ef því fylgja engir ijánnunir. Hafið bestu þökk fyrir gott námskeið. Hulda Björk Þorkelsdóttir Niðurstöður könnunar um þjónustu á Landsbókasafni íslands - Háskólabókasafni Notendakönnun var gerð meðal safngesta Landsbókasafns Islands - Háskólabóka- safns 10. mars síðastliðinn. Meginmark- mið hennar var að kanna viðhorf notenda til ýmissa þátta í þjónustu og starfsemi safnsins og safna ábendingum um það sem betur má fara. Áslaug Agnarsdóttir, sviðs- stjóri þjónustusviðs safnsins, hafði umsjón með framkvæmd könnunarinnar og vann úr niðurstöðum hennar. Svipuð könnun var framkvæmd árið 2003. Alls 400 spurningablöðum var dreift til gesta í safninu og í lok dags hafði 345 ein- tökum, eða rúmlega 86%, verið skilað. Meðal þess sem spurt var um var viðhorf þátttakenda til þjónustunnar í heild, við- horf til starfsfólksins, um útlán og milli- safnalán, framboð prentaðs efnis, vef bókasafnsins, tölvukost, rafræn gögn og upplýsingaþjónustu, húsnæði bókasafnsins og lesaðstöðu. Langflestir þátttakendur eða rúmlega 83% voru nemendur við Háskóla íslands enda bókasafn Háskóla íslands til húsa í Þjóðarbókhlöðu. 2,3% voru kennarar við HÍ og 3,5% nemendur við aðra háskóla, svo sem Háskólann í Reykjavík, Bifröst og Tækniháskólann. Tæplega helmingur þátt- takenda, eða 49,5%, reyndust vera á aldr- inum 21-25 ára sem er algengur aldur nemenda við HI. Mikill munur var á ijölda nema í safninu eftir deildum Háskóla Is- lands og voru um 40% nemanna skráðir í félagsvísindadeild. Þjónustan Rúmlega 88% tilspurðra voru í heildina ánægðir með safnið og þjónustu þess og verður það að teljast mjög jákvæð niður- staða. Þátttakendum þótti starfsfólkið sýna spumingum sínum meiri áhuga, vera vin- gjamlegra og að það gengi betur að fá þjónustu hjá starfsfólkinu en árið 2003. Körlum fannst starfsfólk frekar sýna fyrir- spumum sínum áhuga en konum. Fleiri þátttakendum þótti auðvelt að finna efni í safninu og mun fleirum þótti leiðbeiningar starfsfólks við heimildaleit góðar en fyrir tveimur ámm. Nemendur telja sig frekar sjálfbjarga á safninu eftir því sem þeir eru lengra komnir í nárni. Þessar niðurstöður benda til þess að leið- beiningar starfsfólksins nái til fleiri aðila og að þeir sem nýta sér leiðbeiningamar séu nokkuð ánægðir með þær. Sama til- hneiging er til staðar þegar finna á gögn og upplýsingar. Aðrir hópar en nemendur við HÍ höfðu frekar sent fyrirspumir til safns- ins í tölvupósti og gildir það um bæði árin. Þó höfðu fleiri í heildina notað þessa þjónustu árið 2005 en 2003. Hjá nemend- um við HI voru líkurnar á því að senda fyrirspum til safnsins í tölvupósti meiri eftir því sem nemendur vom lengra komnir í námi. Nemendur við H1 nýttu sér lestrarað- stöðu safnsins umfram aðra hópa. Meiri- 30. árg. - 2. tbl. 2005 - bls. 41

x

Fregnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fregnir
https://timarit.is/publication/283

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.