Fregnir - 01.06.2005, Blaðsíða 43
Fregnir. FréttabréfUpplýsingar - Félags bókasafns- og npplýsingafrœða
> Hvar erum við núna?
> Hvert viljum við fara (og af hverju?)
> Hvemig viljum við komast þangað?
> Hvenær ætlum við að vera komin?
> Hvemig vitum við að takmarkinu sé
náð?
Kvað hann grunnþætti markaðsmála vera
eftirfarandi atriði:
> Upplýsingar, þ.e. markaðurinn og
innra starf.
> Greining, þ.e. stöðumat, s.s. SVOT
greining og valkostir - megináherslur
/gildi
> Markaðsstefna - ákvarðanir um hvert
skal halda í markaðsmálum
> Framkvæmd - kynning og þjónusta
> Árangursmat - væntingar og umbætur
Kynnti Magnús þjónustuhringinn:
1. Ákvörðun um hvemig þjónustu skuli
veita
2. Veiting þjónustu, t.d. viðhorf til
þjónustunnar
3. Árangur, t.d. mat á árangri
4. Greining á frammistöðu
5. Ákvörðun um umbætur
Magnús var greinilega búinn að kynna sér
vel vefsetur Upplýsingar og vitnaði hann
mikið í efni frá ráðstefnum sem haldnar
hafa verið hér á landi og tenglar eru í á
vefnum. Að lokum greindi hann frá ráð-
stefnu sem hann hafði nýlega sótt og var á
vegum www.trendwatching.com. Þar væri
að finna allt það nýjasta sem er á markað-
num. Nú væri mikið talað um „New
Marketing“ sem hægt væri að skilgreina í
eftirfarandi þætti: Skapandi áherslur, þátt-
taka viðskiptavina, frumkvæði, stöðugar
breytingar, mannlega þáttinn, innsæi, nýja
kynslóð og lægra verð.
Yfir 50 manns sóttu fundinn og má
vænta fleiri morgunverðafræðslufunda á
næsta starfsári.
Svava H. Friðgeirsdóttir
Af hverju vill fólk stafræn
bókasöfn?
Þann 29. apríl flutti Mel Collier fyrirlestur
á vegum Menntasmiðju Kennaraháskóla
íslands og Upplýsingar sem hann nefndi
„Why do people want digital libraries?“.
Fyrirlesarinn hefur áður verið kynntur í
Fregnum en hér verður stiklað á stóru um
efni fyrirlestrarins.
Mel Collier rakti í upphafí að mikið
hefði verið fjallað um stafræn bókasöfn
hvað snerti tæknileg atriði, hönnun og við-
mót, höfundarétt, lögfræðileg sjónarmið og
útgáfulíkön fyrir háskóla en hins vegar
hefði minna verið fjallað um viðskipta-
áætlanir í þessu samhengi. Þær eru nú að
fá aukið vægi og sjálfur hefur hann unnið
að slíkum verkefnum og nefndi dæmi um
(1) The European Library (TEL) sem er
samvinnuverkefni um rafrænt bókasafn á
vegum átta (nú tíu) evrópskra þjóðbóka-
safna og (2) ELISO sem er rafræn bóka-
safns- og upplýsingaþjónusta fyrir háskól-
ann í Oxford. Eftir því sem rafræn þjón-
usta verður stærri hluti af rekstri bókasafna
er meira í húfi að horft sé á áætlanagerð og
fjánnögnun til langs tíma.
Hugtakanotkun
Hugtakið stafrænt bókasafn skýrði fyrir-
lesari þannig að um væri að ræða stýrt um-
hverfi með margmiðlunarefni á stafrænu
formi, sem hannað er í þágu notenda,
skipulagt til þess að auðvelda aðgang að
efnisinnihaldi og útbúið með hjálpargögn-
um til að ferðast um net. Notendur og efn-
iskostur geta verið sitt á hvorum staðnum
en öllu er samt stýrt sem samhangandi
heild. Áætlanagerð um stafrænt bókasafn
er ferli þar sem markmið, framleiðsla og
þjónusta em skilgreind ásamt því hvemig
stafrænt bókasafn fellur að heildannark-
miðum stofnunar.
The European Library (TEL)
Mel Collier lýsti síðan í einstökum atriðum
hvað var kannað í TEL-verkefninu en
þjóðbókasöfn geta vissulega verið inn-
byrðis ólík, t.d. hvað varðar stefnu, stærð,
fjármagn og hve langt þau eru á veg komin
í þróun rafrænnar þjónustu. Spurt var hvað
söfnin vildu og hvers þau væntu af TEL,
hver virðisaukinn ætti að verða, hvaða
notendahópi ætti að þjóna og hvaða efni
þau vildu bjóða upp á. I ljós kom að söfnin
vildu koma bæði skylduskilaefni og ein-
stökum dýrgripum á framfæri á stafrænu
formi og auk þess vildu þau bjóða upp á
ýmislegt annað útgefíð efni og þemu.
Kostina sáu söfnin einkum felast í því að
bæta aðgengi í Evrópu og töldu þjóðbóka-
söfnin hafa þar hlutverki að gegna. Með
þessu sköpuðu þau ímynd og yrðu sýni-
legri. Þá var samvinna um tækni talin mjög
æskileg, með því móti yrðu allir leitar-
30. árg. - 2. tbl. 2005 - bls. 43