Fregnir - 01.06.2005, Síða 44

Fregnir - 01.06.2005, Síða 44
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða möguleikar öflugri. Álitið var að hinir upplýstu borgarar, háskólakennarar, fræði- menn og háskólastúdentar mundu einkum nýta sér stafræn söfn en þau hefðu einnig gildi fyrir önnur bóka- og minjasöfn, rit- höfúnda og einkarannsóknir. Efnið sem þjóðbókasöfnin vildu fyrst og fremst koma á framfæri tengdist hugvísindum, lögum, félagsvísindum, hagfræði, viðskiptum og náttúrufræðum. í öllum greinum skyldi sjónum beint að tungumáli og menningu hvers lands. Könnunin leiddi í ljós ýmsar gagnlegar upplýsingar um viðhorf í söfn- unum sjálfum en minna er vitað um þarfir og væntingar notendanna enda er erfiðara að kanna þær. Sjá um þjónustu Evrópu- safnsins á vefnum htto://www.europeanlib rarv.org en The European Library Offíce, sem var formlega stofnuð í júní 2004, hrinti þiónustunni af stokkunum 17. mars 2005. ELISO í Háskólanum í Oxford var mikill áhugi á að fá aðgang að fleiri rafrænum gögnum, einkum í vísindum og læknisfræði. Þar var einnig mikill vilji til að vera í fararbroddi við að þróa opinn aðgang og gerð stafræns efnis. Á þessum forsendum hafði fyrirles- ari okkar verið fenginn til að gera við- skiptaáætlun sem hann sagði að vísu minna frá í smáatriðum. En meginmark- miðið var að auka aðgang að rafrænum tímaritum og handbókum, koma upp raf- rænu þjónustuborði, geta sent fræðimönn- um heimildir um tölvunet, stafræn eintaka- gerð og þróun rafræns bókasafns í stofnun- inni. Mel Collier nálgaðist þetta markmið með því að ræða við ýmsa hagsmunaaðila, fókushópa, kanna reynslu annarra og bera saman háskóla og meta innviði stofnunar, kostnað og arðsemi. Hann taldi að fræði- menn í raunvísindum fengju 90% upplýs- ingaþarfa sinna fullnægt með rafrænum heimildum en í hugvísindum ætti það að- eins við um 10%. Einhvers staðar þarna á milli liggja félagsvísindin, það fer eftir eðli verkefnanna. Dæmi voru nefnd um hve miklu fé nokkrir háskólar verðu til kaupa á rafrænu efni. Þær tölur urðu tilefni til nokkurra umræðna því margt getur þurft að skýra af því sem liggur þar á bak við. Skólasöfn og sérfrœðisöfn í lokin velti Mel Collier upp nokkrum sjónarmiðum um söfn á lægri skólastigum og sérfræðisöfn. Hann taldi enn nauðsyn- legra að gera góðar áætlanir þegar um minni stofnanir væri að ræða og megin- atriðið væri að spyrja sig hinna sígildu spuminga: af hverju, hvað, fyrir hvem og hvemig. Hann benti einnig á að miklar rannsóknir væm nú gerðar á netnámi, þró- un rafbóka væri að vísu hægari en tímarita en mikið af efni væri þó til nú þegar til á Netinu. Lokaorð Mels vom þessi: „All organisations are different in some way, but there is always enough similarity to benefit from the approach of others. It depends upon the business!“ Stuðst við glæmr sem fyrirlesari dreifði. Kristín Indriðadóttir Málþing um Global Trade & Culture - the Future Role of WTO Það hefur æxlast svo að ég hef farið að skoða svolítið fyrir Upplýsingu áhrif Al- þjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO ) á starfsemi bókasafna, aðallega út frá GATS-samingnum, og hef birt um það greinar bæði í Bókasafninu 2004 og síðasta hefti Fregna. Um miðjan apríl síðastliðinn. var mikil ráðstefna í Reykjavík á vegum Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur, „Sam- ræður menningarheima“. Þar á meðal var málstofa föstudaginn 15. apríl sem fór fram á ensku og kallaðist á þeirri tungu „Global Trade & Culture - the Future Role of WTO“. Þetta virtist ríma eitthvað við það sem ég hef verið að skoða og því varð úr að ég fór á þetta málþing á vegum Upp- lýsingar. Mér fínnst að mér sé skylt að gefa félögum Upplýsingar svolitla skýrslu um málþingið þótt það hafí kannski ekki verið vemlega gagnlegt. En þá er þess reyndar að geta að þama var íjallað um menningu í mjög víðu samhengi. Málþingið hófst með fyrirlestri Rufús H. Yerxa aðstoðarframkvæmdastjóra WTO. Hann fjallaði einkum um það hvemig aukin alþjóðleg viðskipti hefðu já- kvæð áhrif á menningarleg samskipti þótt alltaf fylgdi eitthvað neikvætt með þegar leiðir opnast. Hnattvæðingin og WTO hafa verið gagnrýnd fyrir að útvatna menning- una og stefna menningarlegri sérstöðu í hættu en hann benti á að á gmndvelli 30. árg. - 2. tbl. 2005 - bls. 44

x

Fregnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fregnir
https://timarit.is/publication/283

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.