Fregnir - 01.06.2005, Page 45
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða
WTO væri hægt að setja reglur til að
vernda og styðja menningarlega sérstöðu.
Þar á meðal má nefna svokallað „geo-
graphical indications" sem á sér stoð í 22.
grein TRIPS-samningsins og snýst um að
vemda vömr sem em hluti af menningar-
legri arfleifð ákveðinna svæða, oft er þama
um að ræða landbúnaðarvörur. Um þetta
hafa verið deilur innan WTO og það á
reyndar líka við um „menningarlega fjöl-
breytni“ (cultural diversity) sem UNESCO
hefur gefið yfirlýsingu um. Hann benti á
að héma gætu hagsmunir rekist á, hvemig
væri t.d. hægt að samræma þá hagsmuni
að vemda smábú í Evrópu sem hafa menn-
ingarlegt gildi og hins vegar hagsmuni
landbúnaðarins í þróunarlöndunum?
Eftir erindi Yerxa voru pallborðsum-
ræður. Við pallborðið voru menn úr við-
skipta- og athafnalífinu auk Gylfa Magn-
ússonar deildarforseta Viðskiptadeildar HI.
í stuttu máli má segja að fulltrúar við-
skipta- og atvinnulífsins við pallborðið
hafi verið ákaflega ánægðir með hnattvæð-
inguna, hún skapaði ýmis tækifæri og
áskoranir, eins það er oft kallað, eða ögr-
andi viðfangsefni. A sama máli var sá sem
kom úr hinum listræna geira viðskipta-
lífsins, Sigurjón Sighvatsson kvikmynda-
framleiðandi. Hann vék reyndar líka að
góðum árangri fyrirtækisins 66°Norður,
sem hann hafði nýlega fjárfest í en fyrri
eigendur höfðu mætt áhrifum hnattvæð-
ingarinnar og ódýmm innflutningi frá
Austurlöndum með því að flytja fram-
leiðsluna til Lettlands. Forstjóri FL-Group
vék að því hvernig væri að reka flugfélag
og ferðamannaiðnað í alþjóðlegu um-
hverfí, hvemig slíkur rekstur styddi menn-
ingarlega ijölbreytni og sérstöðu með því
að nýta sér hana. Helst var gagnrýni að
fmna í máli Gylfa Magnússonar sem vék
að ýmsum mótsögnum hnattvæðingarinn-
ar, hvemig hún annars vegar ýtir undir
mennningarlega fjölbreytni en ógnar henni
um leið, en forstjóri Samskipa vék að því,
sem ég átti ekki von á úr þeirri átt, að frá
umhverfislegu sjónarmiði mætti hafa
áhyggjur af sívaxandi flutningum.
í hnotskum má segja að fundurinn hafí
snúist um það hvemig hnattvæðingin hefði
fjörgandi áhrif á menningarlega íjöl-
breytni, hefði samt svolitlar skuggahliðar
en ekkert til að hafa áhyggjur af. í rauninni
var lítið komið inn á Alþjóðaviðskipta-
stofnunina og hlutverk hennar né þá samn-
inga á vegum hennar sem helst hafa bein
áhrif á menningarleg efni, það er GATS og
TRIPS.
Einar Olafsson
Til Kaupmannahafnar
Átta konur úr hópi starfsfólks Bókasafns
Reykjanesbæjar bmgðu sér bæjarleið í
apríl síðastliðnum til þess að skoða bóka-
söfn. Ferðin var áætluð bæði námsferð og
skemmtiferð. Alveg síðan nýr starfsmaður,
Þóra Jónsdóttir, bættist í hópinn til okkar
árið 2002, nýkomin frá framhaldsnámi í
bókasafnsfræðum í Kaupmannahöfn, vor-
um við smitaðar af áhuga á dönskum
bókasöfnum. Fljótlega eftir það ákváðum
við að fara með henni í ferð til Kaup-
mannahafnar. Ferðin dróst á langinn og
var Þóra meira að segja farin til annarra
starfa þegar af ferðinni varð nú í vor. Samt
sem áður tók hún að sér fararstjóm og
mælum við eindregið með henni í slíkar
ferðir.
Undirbúnar voru heimsóknir í fjögur
söfn. Allt stóðst áætlun og var tekið á móti
okkur með virktum. Eitt var sameiginlegt
með starfsfólki bókasafnanna, sem annað-
ist mótttökur, öll tjáðu þau sig mikið um
framtíð bókasafna á nýjum tímum raf-
rænna miðla og virðist sem miklar umræð-
ur séu í gangi um söfnin meðal fagfólks í
Danmörku.
Det Kongelige Bibliotek, Slots-
holmen, Svarti demanturinn
Fyrsta dag okkar í Kaupmannahöfn geng-
um við frá hótelinu okkar í áttina að Svarta
demantinum, þessari glæsilegu byggingu
með inngangi frá Sören Kierkegaards
Plads á bakka eins af sýkjum borgarinnar.
Else Aasmussen, forstöðumaður almanna-
tengsla í safninu, tók á móti okkur á til-
settum tíma og leiddi okkur um safnið sem
er í gamla landsbókasafninu ásamt áður-
nefndri glæsibygginu. Gamla byggingin er
frá árinu 1906 en sú nýja frá 1999.
Andstæðurnar, þar sem tengjast gamla
byggingin og sú nýja, vakti sérstaka að-
dáun okkar allra. Sú gamla glæsileg á sinn
hátt, með aldargömlum hillum sem svign-
uðu undan enn eldri bókum og tímaritum.
Bak við húsið er gamall hallargarður frá
tímum Kristjáns IV. Milli hæða í nýju
30. árg. - 2. tbl. 2005 - bls. 45