Fregnir - 01.06.2005, Page 46

Fregnir - 01.06.2005, Page 46
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bó/casafns- og upplýsingafrœða byggingunni er ferðast með hljóðlátum rúllustigum. Nokkrir stórir lessalir eru í nýbyggingunni, vel búnir handbókum, tímaritum, starfsfólki, tölvum og tækjum. Menningar- og listasalir eru á neðstu hæð og þar var sýning sem var tileinkuð H.C. Andersen. Herlev Bibliotek Herlev er nágrannabær Kaupmannahafnar. Við vorum mættar snemma dags á almenn- ingsbókasafnið, þar sem Steen Nilson aðstoðarforstöðumaður tók á móti okkur og sýndi okkur safnið sem var byggt um 1970. Herlev bókasöfnin eru rekin tvö saman, aðalsafnið ásamt Hjortespring bibliotek sem er minna. Sem dæmi um umsvif safnanna voru heimsóknir í söfnin á síðasta ári 385.429 og útlán 549.603. Afgreiðsla er að miklu leyti sjálfvirk. Viðskiptavinimir geta pantað þjónustu með tölvupósti og em pantanimar tilbúnar og afgreiddar þegar þeir koma síðar. Það vakti athygli okkar að safnið hefur stóra tónlistardeild þar sem í boði em diskar, tónlistarbækur, nótnabækur og allt sem við kemur tónlist m.a. hljómborð fyrir lánþega þar sem þeir geta unnið við að semja tón- list. Nilson upplýsti að safnið væri leiðandi fyrir önnur söfn á svæðinu hvað varðar tónlistarefni. Nýjung í samvinnu bókasafn- anna er að leigja út tónlist á Netinu sem lánþegar hlaða niður á tölvur sínar og hafa að láni í ákv. tíma. Bamadeildin var rúmgóð og einstak- lega vel upp sett og skipulögð. Allstaðar blasti við okkur verkefni sem unnin voru af nemendum á öllum aldri, t.d. stórt lista- verk sem þakti heilan vegg og tileinkað er 200 ára afmæli H.C. Andersen, stólar í mannsmyndum og sérstaklega hannað „brúðuhús“ unnið af nemendum í Dan- marks Design skole og smíðað af nemum í Herlevs Produktion skole. Brúðuhúsið er liður í lestrarhvetjandi verkefni sem menn- ingamefnd sveitarfélagsins skipulagði og kostað er af banka. Verkefnið hefur svo verið flutt til á milli leikskóla og annarra safna. Unnið er að áætlun um bókasafnið í framtíðinni og breytinga að vænta fljót- lega. Tekið verður tillit til óska viðskipta- vinanna og markmiðið er opið, aðlaðandi safn þar sem ekki verða skörp skil milli þarfa barna og fullorðinna. Meðal annars er áætlað að fagurbókmenntir verði kynnt- ar á áhugaverðan hátt með spennandi upp- stillingum og boðið verði upp á uppbyggj- andi spjall ýmist við bókaverði eða aðra viðskiptavini safnsins. Gladsaxe Bibliotek Gladsaxe er annar nágrannabær Kaup- mannahafnar. Charlotte Plenge forstöðu- maður safnsins beið eftir okkur úti á götu fyrir framan safnið sem er í endurbyggingu og átti að vera tilbúið nú í maí. Fram- kvæmdimar stóðu ekki í vegi fyrir því að við mættum koma og heimsækja safnið sem er stórt og á tveimur hæðum. Starfs- fólkið hafði verið í endurmenntun meðan á viðgerðinni stóð og var nú statt í kennslu- stofu safnsins á neðri hæðinni. Iðnaðar- menn voru í fullu starfí við smíðar og frá- gang. Gladsaxe-almenningsbókasöfnin em fímm, aðalsafnið sem við vorum staddar í og ijögur önnur minni. Heimsóknir í aðal- safnið árið 2004 vom 527.087 en í öll söfnin 831.024 og útlán í aðalsafninu 867.082 og alls 1.245.037. Aukning á út- lánum vom 3,5% frá fyrra ári en heim- sóknimar vom 14% færri en síðasta ár. Könnun sem var gerð á árinu 2004 sýndi að helmingur viðskiptavinanna, sem sótti safnið, komu annarra erinda en að taka bók eða skila og eldri kannanir hafa einnig sýnt þessa tilhneigingu. Erindið er því oft að lesa tímarit og dagblöð, skoða Netið og jafnvel fá aðstoð til þess. Mikil áhersla er lögð á að hafa hverskonar uppákomur og dagskrár í gangi í samvinnu við íbúana. Plenge bauð okkur til skrifstofu sinnar þar sem veitingar biðu okkar. Hún skýrði okkur frá högum safnsins og frá hugleið- ingum sínum um framtíð þessa safns og annarra safna á tímum rafrænna miðla. Hún hafði rætt þetta við bæjarstjóra sem kom í heimsókn og fékk hana síðar til að flytja mál sitt á ráðstefnu um framtíð bóka- safna í september 2004. Eftirfarandi era punktar hennar í lauslegri þýðingu: > Tölvuvæðing Breytingar í samfélaginu sem hafa áhrif á þró- un bókasafna. Sífellt fleiri gögn eru á tölvutæku fonni og munu í framtíðinni fínnast á Netinu. Mikið af efni sem áður voru á verksviði upplýsingafræðinga að miðla, s.s. lagasafn, hagtölur og aðrar opinberar upplýsingar fínnast nú á Netinu. Þetta hljómar eins og við séum að missa hlutverk. En bókasöfn halda áfram að gera upplýsingar 30. árg. - 2. tbl. 2005 - bls. 46

x

Fregnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fregnir
https://timarit.is/publication/283

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.