Fregnir - 01.03.2007, Síða 2
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða
Fylgt úr hlaði
Forsíðusafn Fregna að þessu sinni er
Bókasafn Flensborgarskólans í Hafnar-
firði þar sem nýtt safn byggir á gömlum
grunni en eins og kemur fram í kynning-
argreininni er safnið er nýflutt í stórt og
glæsilegt húsnæði.
Stjóm Upplýsingar tók upp þá ný-
breytni að senda formönnum allra stjórn-
málaflokka sem bjóða fram til Alþingis í
vor bréf þar sem vakin var athygli á mikil-
vægi bókasafns- og upplýsingamála. Jafn-
framt voru sendar nokkrar spumingar til
flokkanna varðandi málaflokkinn og til-
greint að svörin yrðu birt í fréttabréfi
félagsins. Svör bámst frá þremur flokk-
um.
Af öðru efni í blaðinu má til dæmis
nefna kynningu á stefnu Upplýsingar, frá-
sagir af ráðstefnum og fundum, grein um
markaðstarf, sagt er frá bamastarfi og auk
ýmissa frétta og frásagna.
Sérstök athygli er vakin á frétt af
stofnun nýrra samtaka, Félags fagfólks á
skólasöfnum, FFÁS.
Frá stofnun Upplýsingar má greinilega
merkja aukinn Qölda og gæði greina sem
blaðinu berast og hefur verið einstaklega
ánægjulegt að fylgjast með þeirri þróun.
Höfundum greina og pistla eru hér
með færðar bestu þakkir fyrir þeirra fram-
lag en á þeim byggist tilvera og upplýs-
ingagildi blaðsins fyrst og fremst.
Við starfsfólk bókasafna- og upplýs-
ingamiðstöðva eigum að leggja metnað
okkar í að deila fréttum af starfsemi safn-
anna og hvers konar nýbreytni og nýjung-
um með starfssystkinum og efla þannig
fagmennsku og félagsvitund okkar.
Ritstjórar
Árgjald Upplýsingar 2007
í byrjun mars vom greiðsluseðlar fyrir
árgjald Upplýsingar 2007 sendir út. Fyrir
hönd stjórnar eru félagsmenn hvattir
til að greiða árgjöldin sem fyrst og
stuðla þannig að áframhaldandi tilvist
og eflingu féiagsins.
Félagsgjald einstaklinga er 5.000 kr.
Samkvæmt lögum félagsins er nemaaðild
helmingur af fullri aðild eða kr. 2.500 og
stofnanaaðild helmingi hærri en einstakl-
ingsaðild eða kr. 10.000
Þeir sem ekki vilja vera áfram í félag-
inu eru vinsamlegast beðnir að tilkynna
það til stjómar og einnig em þeir sem hafa
nýlega skipt um heimilisfang, símanúmer
eða netfang beðnir að láta stjóm félagsins
vita af því.
Skrifstofa Upplýsingar að Lágmúla 7
er opin á fimmtudögum frá 16-18. Net-
fang er upnlvsing@bokis.is. sími: 553-
7290.
Eindagi árgjalda Upplýsingar var
10. apríl. Við þökkum þeim Ijölmörgu
félagsmönnum sem þegar hafa greitt út-
senda greiðsluseðla og hvetjum hina sem
vilja áfram vera í félaginu að greiða ár-
gjaldið sem fyrst. Umsýslugjald kr. 450
leggst ofan á félagsgjaldið ef greitt er eftir
15. apríl.
Með félagskveðju,
Anna Elín Bjarkadóttir og Þóra Jóndóttir
gjaldkerar Upplýsingar
Úthlutun úr Minningarsjóði
Astrid Lindgren 2007
Þann 14. mars síðastliðinn var tilkynnt um
fimmtu úthlutun úr Minningarsjóði Astrid
Lindgren, ALMA - Astrid Lindgren Me-
morial Award, sem sænska ríkisstjómin
stofnaði árið 2002. Ur sjóðnum eru árlega
veitt alþjóðleg bókmenntaverðlaun fyrir
barna- og unglingabókmenntir og lestrar-
hvetjandi verkefni. Verðlaunaupphæðin er
alls fimm milljónir sænskra króna.
Að þessu sinni voru 133 tilnefndir frá
52 löndum. Verðlaunin í ár hlaut, Bóka-
bankinn, Banco del Libro, í Venesúela.
Bókabankinn, sem er stofnun með höfuð-
stöðvar í Caracas, var stofnaður árið 1960
og starfar á sviði lestrarörvunar og vinnur
nú að framgangi lestrar í Venesúela á öll-
um sviðum barnabókmennta.
Verðlaunin verða afhent við hátíðlega
athöfn þann 30. maí næstkomandi á safn-
inu á Skansinum í Stokkhólmi.
Nánari upplýsingar er að frnna á vef
Minningarsjóðsins, www.alma.se og á vef
Bókabankans, www.bancodellibro.org.ve.
Þórdís T. Þórarinsdóttir
32. árg. - 1. tbl. 2007 - bls. 2