Fregnir - 01.03.2007, Blaðsíða 27
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða
ir 190 skólar voru af heildarfjölda skóla á
framhaldsskólastigi.
Þrátt fyrir að sumir bókasafnsfræðing-
ar í rannsókninni hefðu hlotið kennslu í
vefsíðugerð og unnið með kennurum er
kenndu tölvufræði, voru þeir ekki á því að
gera vefsíðu fyrir sitt safn og litu ekki á
Netið sem tækifæri til að markaðssetja
bókasöfn sin.
Fyrirlesturinn sannfærði mann enn og
aftur um það hversu framarlega við erum
á mörgum sviðum og þá sér í lagi tölvu-
tækninni því að varla er til það safn á ís-
landi sem ekki hefur vefsíðu.
Þjóðbókasafnið - The Clementinum
Library> og The Astronomical Tower
Að lokinni skráningu tók við áhugaverð
skoðunarferð um Þjóðbókasafnið sem við
höfðum skráð okkur í um leið og skráning
á ráðstefnuna fór fram. Þar fengum við að
upplifa mikla lofthræðslu við að komast
upp í tuminn til að sjá yfir borgina. Þó
leiðin upp turninn sé brött þá er hún hug-
vitsamlega hönnuð með sýningarsvæðum
inn á milli. Þar mátti meðal annars sjá
stjömusjónauka frá sautjándu eða átjándu
öld. Tuminn var byggður í kringum 1723.
Félagslega hliðin
Stór hluti þess að fara á ráðstefnu er fél-
agslega hliðin. Eftir að hafa setið og hlust-
að á hin fræðilegu erindi og kynningar þá
er enn mikilvægara að hittast á óformlegri
stað, til að skiptast á hugmyndum, ræða
rannsóknir og hugmyndir enn frekar og
ekki síður mynda ný tengslasambönd og
nýjan vinskap. Jafnvel það er nógu góð
ástæða til að koma sér af stað.
Bobcatsss 2008
Sextánda Bobcatsss ráðstefnan mun fara
fram í Zadar í Króatíu, 28.-30. janúar
2008. Það eru nemendur og kennarar frá
Þýskalandi og Króatíu sem sjá um að
skipuleggja hana. Þeir koma frá Depart-
ment of Information Sciences, University
of Applied Sciences í Potsdam og Depart-
ment of Library and Information Science,
University of Zadar.
Meginþema þeirrar ráðstefnu er opinn
aðgangur að upplýsingum fyrir alla og ber
nafnið Providing Access to Information
for Every’one. Við viljum hvetja alla þá
sem em að vinna að rannsóknum eða að
ljúka við BA eða MLIS verkefni til að
athuga þennan möguleika á að kynna þau
fyrir öðmm bókasafns- og upplýsinga-
fræðingum í Evrópu. Fyrir áhugasama er
slóðin á ráðstefnuna í Zadar: www.bob
catsss2008.org/ Við hlökkum til að undir-
búa næstu ferð með þér. ©
f.h. Bobcatsss-fara
Sigríður Halldóra Gunnarsdóttir
Haraldur íkomi -
netbókaverslun
Ný bókaverslun opnaði í nóvember á Net-
inu, Haraldur íkorni - www.haraldur.
is. Eigandi er Ösp Viggósdóttir bóka-
safnsfræðingur sem áður starfaði meðal
annars hjá Kennaraháskóla Islands og
Iðnskólanum í Reykjavík. Á Haraldi
íkoma má finna nýjar bækur á góðum
kjömm (oftast 15% undir leiðbeinandi
smásöluverði) og einnig notaðar bækur í
nokkm úrvali, íslenskar jafnt sem enskar,
auk stakra titla á öðmm málum. Sending-
arkostnaðar er föst upphæð, 350 kr., óháð
upphæð pöntunar eða þyngd eða hvert
sendingin fer innanlands. Það kemur sér
vel fyrir bókasöfn á landsbyggðinni.
Skólasafnsfræðingur sem keypti allar
bækur fyrir skólann sinn hjá Haraldi
íkorna fyrir jólin, tók því sérstaklega fram
hvað það væri þægilegt að geta keypt allar
bækurnar á einum stað og fá einn reikning
í stað þess að vera á hlaupum milli staða
eða eltandi einstök tilboð með tilheyrandi
reikningaflóði.
Söfn hafa einnig keypt nokkuð af not-
uðum bókum, bæði til að fylla upp í safn-
kost þar sem vantað hefur einstaka titla
eða þeir hafa verið lesnir upp til agna en
ekki síður til að ná í aukaeintök af bókum
sem mikið eru notaðar (t.d. skáldsögur
lesnar í íslenskuáföngum framhaldsskóla).
Stofnanir geta greitt með kreditkortum
eða fengið senda reikninga. Einstaklingar
geta notað kreditkort eða greitt í heima-
banka/netbanka.
Ösp Viggósdóttir
HaralJiir íkorui
32. árg. - 1. tbl. 2007 - bls. 27