Fregnir - 01.03.2007, Blaðsíða 23
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrceða
Ljóð - frumort og þýtt
Guðrún Hannesdóttir flutti eftirfar-
andi Ijóð þann 8. mars 2007
Offors
Runninn upp á fjarlægum fljótsbökkum
og hefur tyllt silfurbleikum hóf
lymskulétt
í fráleitustu pláss
og þanið fagurrenndan fót sinn
rauðan
úthafa á milli
(eðli sínu fær hann aldrei leynt
til lengdar
þó soðinn sé
um sunnudagsbil
í dísætan graut
af albestu konu
og borinn fyrir biskup
biskupsson
í margvígðum kristal
með sykri og rjóma
er hann hinn sami)
eitursperrtur alla tíð
og hvergi sem í eyðibyggðunum
þar sem hann trónir yfir tóftunum
yfir þurrum og óhuggandi brunnunum
yfir brostnum vonum
og þrám
hinna horfnu
þar stendur hann einn
fagurgrænn og fagnandi:
hans stund komin
réttur tími runninn upp.
Eftirfarandi Ijóð er eftir Muhammad al-
Maghut. Hann er nýlátinn, varfrá Sýr-
landi en bjó lengstum í Beirut og var bœði
leikrita- og Ijóðskáld. Þýðing GH
Landflótta
Draumurinn,
ó, draumurinn fagri!
Gullvagninn minn fljúgandi
brotinn
og hjólin hafa
tvístrast um allar jarðir
eins og sígaunar.
Eitt sinn dreymdi mig vorið
og þegar ég vaknaði
var koddinn minn þakinn blómum
- og þegar mig dreymdi hafíð
var rúmið skreytt skeljum
og skínandi uggum.
En nóttina sem mig dreymdi frelsið
stóðu spjót morgunsins um háls mér
eins og nístandi geislabaugur.
Héðan í frá
verð ég ekki á ferð
um hafnir
eða jámbrautarstöðvar
ég held mig á bókasöfnunum
þar sem ég sef
með landakortin undir höfðinu
líkt og munaðarleysingi
sem sefur á gangstéttinni
varir mínar snerta fjölmörg fljót
og tár mín streyma frá einu meginlandi til
annars.
Fyrir daglátum
I draumi okkar
er blóðvefur sleginn
fom, daunillur
nýr og rjúkandi
vefur Darraðar
sleginn og
sleginn án hvíldar
svo hjartað sér byltir
í svíðandi angist
- er þetta blóðuga höfuð
mitt eða þitt,
litla vina?
en
í furðubirtu
og dúnalogni
draumaskila
er vefurinn felldur
rifinn, slitinn
og rakinn upp
af ótal höndum
þær vilja vefa
nýjan draum:
himintjöld
og ljómandi værðarvoðir
þræða í perlur
og purpurablóm
sauma hiklausum sporum
32. árg. - 1. tbl. 2007 - bls. 23