Fregnir - 01.03.2007, Blaðsíða 4
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða
Nýtt húsnæði og búnaður
Þar til á síðasta ári, það er fyrir flutninga,
hafði bókasafnið verið í fyrrverandi hátíð-
arsal skólans í 17 ár. Það rými hafði ekki
verið hannað með starfsemi bókasafns í
huga og var að ýmsu leyti óhentugt því
þar fór fram mismunandi starfsemi sem
féll ekki vel hver að annarri, t.a.m. ein-
staklingslestur í bland við hópvinnu. Auk
þess vantaði gang í gegnum rýmið sem
gerði umferð mögulega frá skólastofum
öðrum megin við safnið inn á aðalgang
sem liggur hinum megin við það. Segja
má að safnið hafi misst það rými sem fór í
ganginn en fengið í staðinn skólastofu
sem var áður í homi þess en veggir hennar
vom rifnir og það rými bættist því við.
Helsta starfsemi safnsins fer nú fram á
316 m2 sem skiptast í þrjú lokuð rými:
hópvinnuherbergi þar sem pláss er fyrir
einn bekk, lestraraðstöðu með lesbásum
og svo bókasafnið sjálft þar sem meðal
annars er afgreiðsla, skrifstofa, geymsla,
tölvur og tímaritahom svo nokkuð sé
nefnt.
Mikið er um glugga á nýja bókasafns-
svæðinu. Frá skrifstofu og afgreiðslu sést
vel yfir í hópvinnuherbergi og lestrar-
aðstöðu enda var stefnan frá upphafi að
hafa sem flest sjónarhorn opin, það er að
hafa sem mest gegnsæi í rýminu til að
auðvelda eftirlit. Að sama skapi var lögð
áhersla á að hafa hljóðeinangrunina eins
góða og hægt var.
Ahrif af þessum þætti endurskipulagn-
ingarinnar em vissulega mjög jákvæð því
vandamál sem fylgdu ólíkri starfsemi í
gamla húsnæðinu hurfu við breytingamar.
Hillubúnaður safnsins er frá Þjónustumiðstöð
Allur búnaður í safninu er nýr að frátöld-
um nokkrum borðum og skjalaskápum. 1
gamla safninu hafði hillum úr ólíkum átt-
um verið bætt við eftir því sem að safnið
stækkaði og kenndi því orðið ýmissa
grasa í þeim búnaði.
Ákveðið var að taka tilboði Þjónustu-
miðstöðvar bókasafna og keyptar vom
Softline hillur fyrir bækur og tímarit.
Hallandi botnhillur og vinnuborð em í
hverri bókastæðu og einnig hallandi
sýnishillur fyrir tímaritin með geymslu-
rýmum aftan við.
Ur Metrabók í Gegni
Bókasafn Flensborgarskólans var eitt af
þeim söfnum sem fyrst fór að tölvuskrá
safnkostinn í Metrabók og það kerfí þjón-
aði safninu farsællega í mörg ár. Þegar sá
valkostur bauðst að yfirfæra safnkostinn í
Gegni (hliðargmnninn) var hann skoðaður
sem liður í nauðsynlegri og jákvæðri
þróun. Einnig vó það þungt á vogarskál-
unum hjá okkur að það voru vandkvæði
með netleitimar og það vandamál varð að
leysa.
Bókasafn skólans var því eitt af 23
söfnum sem fluttu gögn sín yfir í þessum
þriðja áfanga yfirfærslunnar en þar af
vom fimm önnur framhaldsskólasöfn.
Afrit af skráðum safnkosti var afhent
Ásmundi Eiríkssyni fulltrúa Metrabókar-
safnanna við yfirfærsluna vorið 2006. Þar
sem að bókasafnið var í kössum þetta vor
og starfsemin lá að miklu leyti niðri var
tíminn notaður til að skoða innviði Gegn-
is. Skráningardeildin á bæjarbókasafni
Hafnarfjarðar var svo vinsamleg að leyfa
undirritaðri að koma í heimsókn og fá
kynningu á skráningarþætti Gegnis en þá
var 16. útg. kerfísins að vísu ekki komin.
í janúar 2007 er staðan enn sem komið
er þannig að safnkosturinn skiptist til
helminga í hliðargmnninn 03 og aðal-
gmnn Gegnis 01. Mikið samband er á
milli aldurs bókanna og skiptingar í
gmnnanna. Megnið af þeim bókum sem
ennþá em í 03 eru bækur sem komu út
fyrir 1990 eða em án ISBN númera.
Mikill hluti af þeim er í óvirkri geymslu.
Á sama hátt er sá hluti af safnkosti okkar
sem hefur komið út síðasta áratug nær
allur í aðalgrunninum 01. Veturinn 2006-
2007 hefur verið tengt og skráð í Gegni
auk þess sem að útlánakerfíð hefur verið
virkt en samhliða því er einnig notast við
útlánakerfí Metrabókarinnar.
32. árg. - 1. tbl. 2007 - bls. 4