Fregnir - 01.03.2007, Blaðsíða 24
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða
helgar meyjar,
silfurbjört hjörtu
og geislabauga
með glóandi þræði
allra morgna.
Svo vöknum við,
svo vöknum við
og heijumst handa
við altarisklæði
eigin dags
gerum við saumsprettu
litla og friðsama
festum í tölu
bítum úr nálinni
og brosum
við baminu
sem hleypur út
í snjóinn
hleypur út í snjóinn hvíta
á ný ...
Höfundur ljóðanna „Offors“ og „Fyrir
daglátum“ hér að ofan er Guðrún Hannes-
dóttir bókasafnsfræðingur, rithöfundur og
myndlistarmaður.
Fyrir ljóðið „Offors“ hlaut Guðrún
Ljóðstaf Jóns úr Vör þann 21. janúar síð-
astliðinn sem veittur var við hátíðlega at-
höfn í Salnum í Kópavogi.
Ljóðstafur Jóns úr Vör eru árleg ljóð-
listarverðlaun sem veitt eru að lokinni
samkeppni þar sem öllum er frjálst að
senda inn frumsamin ljóð á íslensku sem
ekki hafa birst opinberlega áður. Ljóðin
em merkt dulnefni og engin leið fyrir
dómnefnd að komast að nafni höfundar
fyrr en að vali loknu. Að þessu sinni voru
innsend ljóð um 350 talsins. Sigurvegari
hverju sinni hlýtur 500.000 krónur, verð-
launagrip til eignar og farandgrip til varð-
veislu í eitt ár, silfurbúinn göngustaf úr
eigu Jóns úr Vör sem nafn hans er ritað á.
Þess má geta að í fyrra hlaut Óskar
Ámi Óskarsson rithöfundur og bókavörð-
ur ljóðstafínn fyrir ljóð sitt I bláu myrkri.
Ljóðin þrjú hér að ofan flutti Guðrún
þann 8. mars síðastliðinn á opnum fundi í
tilefni af Alþjóðlegum baráttudegi kvenna
fyrir friði og jafnrétti. Yfirskrift fundarins
var: Virkjum kraft kvenna. Menningar- og
friðarsamtökin MFÍK voru aðal drifkraft-
urinn við undirbúning og skipulagninguna
en naut stuðnings fjölmargra félagasam-
taka og þar á meðal Upplýsingar. Ljóðið
„Fyrir daglátum“ var ort í tilefni dagsins.
Guðrún hefur starfað sem bókasafns-
fræðingur við læknisfræðisöfn, Bókasafn
Listsafns íslands, Listaháskólans og nú
síðast við bókasafn Myndlistaskólans í
Reykjavík.
Hún er líka að góðu kunn fyrir barna-
bækur sínar sem hún hefur einnig mynd-
skreytt. Hún hefur meðal annars safnað og
gefið út gamlar barnagælur. Sögur hennar
og myndir era smellnar og einkennast af
hugmyndaauðgi og húmor. Bækurnar er
gaman að lesa upphátt fyrir böm og
bamaböm.
Guðrún hefur einnig hlotið margvís-
legar viðurkenningar fýrir bamabækumar,
svo sem Islensku bamabókaverðlaunin.
Þórdís T. Þórarinsdóttir
Bobcatsss ráðstefna
nemenda í bókasafns- og
upplýsingafræði 2007
Gjöfull leiðangur nemenda við bóka-
safns- og upplýsingafrœðiskor í H1
Eftir góða ferð hjá sjö stúdínum á Bob-
catsss 2006 í Tallinn í Eistlandi, en þang-
að fóru Guðrún I. Svansdóttir, Harpa S.
Másdóttir, Rósa Bjamadóttir, Sigurborg
B. Ólafsdóttir, Sara Stefánsdóttir, Val-
gerður K. Olgeirsdóttir og Sigríður H.
Gunnarsdóttir, var ákveðið að leggja í
annan leiðangur 2007 á ráðstefnuna sem í
þetta sinn var haldin í Prag í Tékklandi.
Skipulagning hófst fjóram mánuðum
fyrir brottför og var ferðin meðal annars
kynnt á Katalogos-listanum, póstlista
nemenda í bókasafns- og upplýsingafræði.
Áður en við vissum af voram við; Bryn-
hildur Jónsdóttir, Kristín L. Ragnarsdóttir,
Nanna Jónsdóttir, Sara Stefánsdóttir og
Sigríður H. Gunnarsdóttir, lagðar af stað
til Prag.
Bobcatsss ráðstefnan er skipulögð af
nemendum í bókasafns- og upplýsinga-
fræði í Evrópu en hugmyndin er runnin
undan riíjum Hollensks bókasafns- og
upplýsingafræðings að nafni Ruud
Bruyns. Hugmynd hans fólst í því að kalla
saman nemendur í fræðunum, prófessora,
32. árg. - 1. tbl. 2007 - bls. 24