Fregnir - 01.03.2007, Blaðsíða 3
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafræða
Bókasafn
Flensborgarskólans
Nýtt safn á gömlum grunni
Skólinn og safnið
í vor fagnar Flensborgarskólinn 125 ára
afmæli sínu. Arið 1882 hóf skólinn starf-
semi og er því í hópi elstu íslensku fram-
haldsskólanna. Auk þess varð hann fyrsti
kennaraskóli landsins árið 1892. Flens-
borgarskólinn varð framhaldsskóli árið
1975 en hann er í dag fjölbrautaskóli sem
starfar eftir áfangakerfi.
Þrjár samliggjandi byggingar frá mis-
munandi tímum hýsa nú skólann, Brekka
sem er elsta húsið, Miðhús í miðjunni en
nýjust og glæsilegust er viðbyggingin
Hamar sem var vígð haustið 2006.
Bókasafn skólans er á miðhæðinni í
Miðhúsi og er því vel staðsett. Það þjónar
um 700 nemendum og 80 starfsmönnum.
1 stefnu safnsins er þess gætt að öllum
fagsviðum sé sinnt og að notendum standi
til boða afnot af öllum miðlum. Þannig er
ákveðin breidd í þjónustunni hvað varðar
framboð á safnkosti og aðgengi og ber
innkaupastefna safnsins þess merki.
Einnig er lögð áhersla á það árvekni-
og miðlunarhlutverk sem safnið hefur sem
tengiliður við þá þróun sem á sér stað á
sviði menningar og mennta í samfélaginu.
Eitt af lykilhlutverkunum er þó efling
upplýsingalæsis fyrir alla sem helja nám í
skólanum óháð því hvort þeir fara í
áframhaldandi nám eða ekki.
Bókasafnið gegnir stóru hlutverki fyrir
kennara og nemendur í dagsins önn og
starfsmenn eru ánægðir með nýtinguna
sem er mest á sviði tungumála, sagnfræði
og félagsvísinda.
Flutningarnir
Miklar breytingar áttu sér stað á húsnæði
skólans árið 2006. Nýja viðbyggingin var
tekin í gagnið og miklar endurbætur voru
gerðar á eldra húsnæði yfír sumarið.
Breytingamar hófust snemma vors.
Við misstum tvo virka daga af opnunar-
tímanum fram að páskafríi þegar við
lokuðum í apríl á síðasta ári. Þá hafði
nokkur grisjun, annar undirbúningur og
pökkun þegar átt sé stað en nú varð
sannarlega að taka til hendinni því stefnt
var að því koma tilvonandi vinnusvæði
sem fyrst í hendur byggingarverktaka.
Markmiðið var að endurbætumar ættu sér
allar stað um sumarið, skipt yrði urn gólf-
efni, loft, ljós og veggi og að nýtt safn
yrði tilbúið um haustið. Hópur fólks
raðaði bókum í kassa frá hægri til vinstri
og merkti með flokkstölu og raðstöfum
fyrstu og síðustu bókar. Flutningalest
myndaðist yfir í þrjár nærliggjandi skóla-
stofur þar sem þunganum var dreift. Hús-
gögn og búnaður var geymdur annar stað-
ar og allt gekk fljótt og slysalaust fyrir
sig. Ýmis vinnugögn og tölvur sem tengd-
ust venjubundnum vorverkum vom fluttar
í Dverg. Dvergur er húsnæði á vegum
bæjarins sem skólinn fékk til afnota á
meðan breytingar og viðbyggingar stóðu
yfir.
Svipmynd frá Bókasafni Flensborgarskólans
Á tilsettum tíma um haustið mættu fyrstu
nemendumir, tíu bekkir nýnema, en
áhersla var lögð á að allt yrði að mestu
tilbúið til að kennsla gæti hafist sam-
kvæmt skipulagi. Bókasafnið lenti því
ekki í forgangi en opnaði fyrstu vikuna í
október og þá höfðu miklar breytingar átt
sér stað. Til að tæma skólastofurnar svo
þær yrðu kennsluhæfar höfðu kassamir
verið fluttir inn á safnið og hófst nú rnikið
flokkunar- og röðunarferli. Þama gafst
einnig kjörið tækifæri til áframhaldandi
grisjunar. Nú reið á að útreikningar varð-
andi hillumetraþörfma stæðust og að auða
hilluplássið dreifðist jafnt. Ákveðið var að
byrja báðurn megin á flokkunarkerfinu og
mætast á miðri leið.
Frágangur í geymslu á safni og annað
smávægilegt var látið bíða betri tíma þeg-
ar safnið opnaði á ný fýrir nemendur og
kennara í endurbættu safni.
32. árg. - 1. tbl. 2007 - bls. 3