Fregnir - 01.03.2007, Síða 6
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða
Upplýsingar fyrir alla
Stefna Upplýsingar - Félags
bókasafns- og upplýsingafræða
2007-2011
Landsbókavörður, dr. Sigrún Klara Hann-
esdóttir, varpaði fram þeirri hugmynd á
Landsfundi Lfpplýsingar í Reykjavík í
september 2004 að stofnuð yrði nokkurs
konar framtíðarnefnd bókasafna.
Stjórn Upplýsingar ákvað í framhaldi
af tillögu landsbókavarðar að stofna
stefnumótunarnefnd innan félagsins sem
starfi á milli landsfunda að stefnumótun
og framtíðarsýn á sviði bókasafns- og
upplýsingamála. Stefnumótunamefndin
fái síðan rými í dagskrá landsfundar
hverju sinni og leggi fram tillögur til
kynningar og umræðu sem meðal annars
verði kynntar félagsmönnum, stjórnmála-
mönnum og ijölmiðlum.
Stefnumótunamefndin verði fasta-
nefnd hjá félaginu og sé skipuð lands-
bókaverði sem sé formaður nefndarinnar.
Auk hans eigi eftirfarandi sæti í nefnd-
inni: formaður landsfundamefndar hverju
sinn, fulltrúi Samtaka forstöðumanna al-
menningsbókasafna (SFA), fulltrúi Sam-
starfshóps bókasafnsfræðinga í framhalds-
skólum (SBF), fulltrúi Samstarfs bóka-
safna og upplýsingamiðstöðva á heil-
brigðissviði (SBUH), fulltrúi grunnskóla-
safna, fulltrúi sérfræði- og rannsóknar-
bókasafna, fulltrúi stjómar Upplýsingar
og fulltrúi háskólabókavarða. Ennfremur
fulltrúar Stéttarfélags bókasafns- og upp-
lýsingafræðinga (SBU) og Bókasafns- og
upplýsingafræðiskorar við HÍ.
Nefndin getur kallað á sinn fund til
samstarfs aðila sem fulltrúa notenda.
Auk landsbókavarðar, dr. Sigrúnar
Klöru Hannesdóttur, sem var formaður
nefndarinnar og stýrði starfi hennar, áttu
fulltrúar eftirfarandi aðila sæti í Stefnu-
mótunamefndinni:
Landsfundarnefnd 2006, Margrét I. Ás-
geirsdóttir, formaður nefndarinnar,
Bæjar- og héraðsbókasafninu á Selfossi
Samtaka forstöðumanna almenningsbóka-
safna (SFA), Hólmkell Hreinsson,
formaður samtakanna, Amtsbóka-
safninu á Akureyri
Samstarfshóps bókasafnsfrœðinga ífram-
haldsskólum (SBF), Bergljót Gunn-
laugsdóttir, Flensborgarskólanum
Samstarfs bókasafna og upplýsingamið-
stöðva á heilbrigðissviði (SBUH), Sól-
veig Þorsteinsdóttir, Landspítala, há-
skólasjúkrahúsi
Grunnskólasafna, Ingibjörg Baldursdóttir,
Flataskóla
Rannsóknarbókasafna, Eydís Amviðar-
dóttir, Iðntæknistofnun, Impru
Upplýsingar, Vala Nönn Gautsdóttir,
Kársnesskóla
Háskólabókavarða, Sigrún Magnúsdóttir,
Háskólanum á Akureyri.
Stéttarfélags bókasafns- og upplýsinga-
frœðinga (SBU), Nanna Lind Svavars-
dóttir, Iðnskólanum Hafnarfirði
Bókasafns- og upplýsingafræðiskorar við
Háskóla Islands, dr. Jóhanna Gunn-
laugsdóttir (sagði sig úr nefndinni 3.
janúar 2007 vegna anna)
Ritari stefnumótunamefndar var Þórdís T.
Þórarinsdóttir, formaður Upplýsingar.
Landsbókavörður, dr. Sigrún Klara Hann-
esdóttir, kynnti starf nefndarinnar á Lands-
fundi Upplýsingar 2006, sem haldinn var á
Selfossi í byrjun október það ár, og óskaði
eftir viðbótum og hugmyndum frá ráð-
stefnugestum.
Stefnumótunamefnd lauk svo störfum í
mars 2007 og lagði stefnumótun félagsins,
Upplýsingar fyrir alla. Þekkingarsam-
félagið 2007-2011. Stefna Upplýsingar —
Félags bókasafns- og upplýsingafræða,
fyrir stjóm sem staðfesti stefnuna.
í tilefni af alþingiskosningum 2007
hafði stjórn Upplýsingar ákveðið að senda
stjórnmálaflokkunum spurningar um stefnu
þeirra í bókasafns- og upplýsingamálum og
birta svörin í marsblaði Fregna. Ákveðið
var að senda stefnu félagsins í málaflokk-
um í bráðabirgðaútgáfu með bréftnu til for-
manna flokkanna.
Aðalbjörg Þórðardóttir var svo fengin
til að hanna endanlega útgáfu stefnunnar
en hún verður kynnt á aðalfundi félagsins
og send félagsmönnum með júníblaði
Fregna. Fyrirhugað er að senda stefnuna
m.a. til alþingismanna, sveitarstjórnar-
manna og fjölmiðla.
Stjórn Upplýsingar
UPPLÝSING
32. árg. - I. tbl. 2007 - bls. 6