Fregnir - 01.03.2007, Side 9
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða
Auglýsing eftir umsóknum í
Ferðasjóð Upplýsingar 2007
Auglýst er eftir umsóknum í Ferðasjóð
Upplýsingar - Félags bókasafns- og upp-
lýsingafræða.
Hlutverk sjóðsins er að styrkja
fullgilda félaga til náms- og kynnisferða.
Úthlutunarreglur sjóðsins eru m.a.:
• Upphæð sem úthlutað er til hvers styrk-
þega er að jafnaði kr. 20.000. Fjöldi út-
hlutana fer eftir fjárhagsstöðu sjóðsins
hverju sinni.
• Styrkþegi skal hafa verið skuldlaus félagi
í Upplýsingu a.m.k. fimm ár og a.m.k.
fimm ár þurfa að líða á milli úthlutana til
sama einstaklings.
• Umsækjandi sem ekki hefur hlotið styrk
úr sjóðnum áður skal að öðm jöfhu sitja
fyrir um styrkveitingu.
• í umsókn skal tilgreind ástæða ferðar-
innar, hvert ferðinni er heitið, kostnaðar-
áætlun og annar hugsanlegur ijárstuðn-
ingur.
• Umsóknarfrestur er til 1. maí næstkom-
andi. Því miður er ekki hægt að taka til
greina umsóknir sem berast eftir þann
tima (miðað er við dagsetningu tölvupósts
eða póststimpils).
• Styrkþegar skulu skila skýrslu til stjómar
sjóðsins að lokinni ferð og skal skýrslan
að öðra jöfnu birt í Fregnum - Fréttabréfi
Upplýsingar.
í sjóðsstjórn eru gjaldkeri Upplýsingar,
sem er formaður sjóðsstjómar, auk hans
formaður og varaformaður félagsins sem
em meðstjómendur.
Umsóknir um styrki skal senda til Upp-
lýsingar - Félags bókasafns- og upplýs-
ingafrœða, Lágmúla 7,108 Reykjavík. -
Netfang: upplysing@bokis.is.
Stjórn Ferðasjóðs Upplýsingar
Fundur EBLIDA í Reykjavík
EEBLIDA, samtök evrópskra bókavarða-
félaga, heldur 15. ársþing sitt í Reykjavík
dagana 11.-12. maí 2007. Nánari upplýs-
ingar á vef samtakanna www.eblida.org.
Ritstjórar
Mæling á vef Upplýsingar
Nú hefur notkunin á vefsíðu félagsins ver-
ið mæld í þrjú ár. Það er sem fyrr fyrir-
tækið Modemus sem sér um mælingamar.
Þessar mælingar þýða að það er hægt að
sjá fjölda þeirra sem skoða vefinn á hverj-
um klukkutíma, degi, viku og mánuði.
Þetta em einkvæmar talningar svo að
heimsókn frá hverri IP tölu telst einungis
einu sinni innan þess tímabils sem skoðað
er. Þegar vikan er skoðuð getur sami aðili
því farið oft inn á síðuna á tímabilinu, til
dæmis frá miðnætti á mánudegi til mið-
nættis á mánudegi viku seinna, en telst
einungis sem einn notandi ef urn sömu
tölvu (IP tölu) er að ræða.
Þegar notkunin á vef Upplýsingar und-
anfama mánuði er skoðuð má sjá að um
100 að meðaltali fara inn á vefínn í viku
hverri. Eins og sjá má á meðfylgjandi
súluriti fara sumar vikur upp fýrir 150
gesti - toppurinn er 321 í viku 38 og 318 í
viku 40 sem er í lok september og byrjun
október og má væntanlega rekja til skrán-
ingar á landsfund félagsins sem haldinn
var í byrjun október. Áhugavert er að
skoða aukningu á notkun síðunnar út frá
því sem er að gerast hjá félaginu á sama
tíma.
Það er mat mitt sem vefstjóra að þessi
vefmæling sé mjög gott tæki til að sjá
hver notkunin á vefnum er.
Vala Nönn Gautsdóttir
vefstjóri Upplýsingar
N 0 D I R N U S ,
U I I Url I | I ■ r I i Li
32. árg. - 1. tbl. 2007 - bls. 9