Fregnir - 01.03.2007, Blaðsíða 10
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða
Stjómamefnd Lands-
samnings
í tengslum við nýjan þjónustusamning
menntamálaráðuneytis við Landsbókasafn
Islands - Háskólabókasafn um Lands-
samning um aðgengi að rafrænum
gagnasöfnum og tímaritum varð sú
skipulagsbreyting að í stað innkaupa-
nefndar mun fimm manna stjórnamefnd,
kosin til þriggja ára í senn, starfa með
safninu. Landsbókavörður stýrir starfi
nefndarinnar.
Að tillögu frá menntamálaráðuneytinu
óskaði landsbókavörður eftir fulltrúa frá
Upplýsingu í stjómamefndina sem starfar
með safninu að stefnumótun og fram-
kvæmd samninganna.
Fyrir fyrsta ársfund landsaðgangs 14.
mars síðastliðinn tilnefndi stjóm Upplýs-
ingar Pálínu Héðinsdóttur sem aðalmann i
stjómamefndina og Guðrúnu Pálsdóttur
sem varamann.
Aðrir í stjórnarnefndinni eru:
Sigurður Hafsteinsson fjármálastjóri Há-
skóla íslands (fulltrúi stærsta greið-
andans)
Sólveig Þorsteinsdóttir frá Landspítala-
Háskólasjúkrahúsi (fulltrúi heilbrigðis-
safnanna)
Guðrún Tryggvadóttir frá Háskólanum í
Reykjavík (fulltrúi sjálfstæðu háskól-
anna, næst-stærstu greiðendanna)
Anna Torfadóttir, borgarbókavörður (full-
trúi Sambands íslenskra sveitarfélaga,
almenningsbókasafna og skólasafna)
Stjórn Upplýsingar
Frá Uppstillinganefnd
Senn líður að aðalfundi Upplýsingar (21.
maí næstkomandi) og eru eftirfarandi
stöður lausar í stjórn og nefndum á vegum
félagsins. Uppstillingamefnd óskar fyrir
7. maí næstkomandi eftir tilnefningum og
ábendingum um félagsmenn til neðan-
greindra starfa:
Stjórn Upplýsingar (2)
I stjóm félagsins eru tvö embætti laus:
*formaður
*stjómarmaður
í stjóminni gerast hlutimir. Stjómin er
skipuð fimm mönnum. Kosið er til
tveggja ára í senn. Hér er unnið mikilvægt
starf fyrir félagið, þ.e. okkur félagsmenn.
Meðal þess sem kemur fyrir stjórn em
innri skipulagsmál félagsins, norrænt og
alþjóðlegt samstarf, samskipti við opin-
bera aðila og bókasafns- og upplýsinga-
miðstöðvar innanlands sem erlendis.
Virkilega skemmtilegt og gefandi. Maður
lærir heilmikið af því að starfa í stjóminni
og síðast en ekki síst kynnast stjómar-
menn mikið af skemmtilegu og fræðandi
fólki (formaður uppstillingamefndar talar
hér af reynslu!). Greidd er þóknun fyrir
störf stjómarmanna.
Lagabreytinganefnd (2)
Nefndin er skipuð þremur mönnum. Voða
gaman á fundum hjá þessari nefnd og lög
félagsins rökrædd.
Fræðslu- og skemmtinefnd (3)
Nefndin er skipuð þremur mönnum.
Skemmtileg nefnd og áhugaverð. Nefndin
sér um skipulagningu fræðslufunda fyrir
félagsmenn Upplýsingar auk þess sem að
hún kemur að skráningu á Jólagleði fél-
agsins.
Uppstillinganefnd (1)
Nefndin er skipuð þremur mönnum. Þessi
nefnd hefur mikil áhrif á virkni félagsins
með því að fá áhugasamt fólk til starfa.
Nánari upplýsingar veita:
Svava H. Friðgeirsdóttir formaður
Kaupþing banki hf. s. 856 6118
svava. fridseirsdottir(a),kaiwthins. com
Guðríður Sigurbjörnsdóttir - Borgarbókasafn
Reykjavíkur, v..v. 563 1711/ GSM 691 2946
eudridur.simrbiornsdottir&revkiavik.is
Sigurbjörg Björnsdóttir
Borgarbókasafn Reykjavíkur, v..v. 411 6230
sieurbiors. biornsdottir&revkiavík. is
Vorfundur SFA
Vorfundur Samtaka forstöðumanna al-
menningsbókasafna - SFA verður í ár
haldinn í Reykjanesbæ 9.-11. maí nk.
Dagskráin hefst að venju með aðal-
fundi samtakanna. Síðan verður fundað í
tvo daga um mál sem brenna á félags-
mönnum.
Bókasajh Reykjanesbœjar
32. árg. - 1. tbl. 2007 - bls. 10