Fregnir - 01.03.2007, Blaðsíða 12
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafræða
Lög um bókmenntasjóð
Vakin er athygli á Lögum um bók-
menntasjóð og fleira sem samþykkt voru
í þinglok, þann 17. mars síðastliðinn.
Markmiðið með lðgunum er að efla ís-
lenskar bókmenntir og bókaútgáfu og búa
íslenskri bókmenningu hagstæð skilyrði.
Hlutverk sitt rækir sjóðurinn á eftir-
farandi hátt (sbr. 2. gr. laganna)
a. Að styrkja útgáfu frumsaminna ís-
lenskra skáldverka og vandaðra rita
sem eru til þess fallin að efla íslenska
menningu.
b. Að styrkja útgáfu vandaðra erlendra
bókmennta á íslenskri tungu.
c. Að stuðla að kynningu á íslenskum
bókmenntum hér á landi og erlendis.
d. Að sinna öðmm verkefnum er falla
undir verksvið stjómar bókmennta-
sjóðs.
í III. kafla laganna (3. og 4. gr.) er fjallað
um Greiðslur fyrir afnot á bókasöfnum
á eftirfarandi hátt:
4. gr.
Höfundar sem eru ríkisborgarar eða bú-
settir í landi innan Evrópska efnahags-
svæðisins eiga rétt á greiðslum fyrir notk-
un bóka þeirra á bókasöfnum, sem eru
rekin á kostnað ríkissjóðs eða sveitar-
félaga, af árlegri fjárveitingu Alþingis
fyrir afnot á bókasöfnum. Hér er bæði átt
við útlán og afnot bóka á lestrarsölum
bókasafna.
Rétt til úthlutunar samkvæmt þessari
grein eiga rithöfundar, þýðendur, mynd-
höfundar og tónskáld, auk annarra ein-
staklinga sem átt hafa þátt í ritun bóka,
enda hafl bækur þeirra verið gefnar út á
íslensku, nema um sé að ræða þýðingu
eða endursamið verk, endursögn eða stað-
færslu á texta úr erlendu máli, og framlag
þeirra sé skráð hjá Landskerfí bókasafna
eða á annan sannanlegan hátt. Fyrir afnot
hljóðrita og stafræns útgefíns efnis er út-
hlutað á sama hátt. Þýðendur og þeir sem
enduryrkja, endursegja eða staðfæra er-
lendar bækur á íslensku eiga þó rétt til
úthlutunar samkvæmt þessari grein sem
nemur tveimur þriðju af fullri úthlutun.
Aðrir rétthafar eiga rétt á óskertri úthlut-
un. Réttur til úthlutunar samkvæmt þess-
ari grein er persónulegur réttur sem er
bundinn við framangreinda rétthafa og
fellur niður við framsal höfundaréttar,
hvort sem um er að ræða framsal að hluta
eða að öllu leyti.
Rétt til úthlutunar skv. 2. mgr. eftir
andlát rétthafa eiga eftirlifandi maki eða
eftirlifandi sambúðaraðili, enda hafi sam-
búð staðið í fimm ár hið skemmsta, eða
börn yngri en 18 ára, enda sé hitt foreldrið
látið eða njóti ekki réttar samkvæmt lög-
um þessum. Séu framangreindir vanda-
menn fleiri en einn skiptist úthlutunin
jafnt á milli þeirra. Rétthafar samkvæmt
þessari málsgrein fá aðeins helming af
þeirri greiðslu sem rétthafa skv. 2. mgr.
hefði borið.
Greiðslur fyrir útlán bóka skulu
byggðar á upplýsingum frá Landskerfi
bókasafna. Við úthlutun á greiðslum fyrir
afnot bóka á lestrarsölum bókasafna er
heimilt að meta fjölda titla og eintaka
bóka hvers höfúndar, sem eru til afnota á
lestrarsölum bókasafna, sem jafngildi til-
tekins fjölda útlána á grundvelli stiga-
gjafar þar sem tekið er tillit til tegundar,
umfjöllunarefnis eða lengdar bóka.
5. gr.
Úthlutunamefnd annast úthlutun skv. 4.
gr. í nefndinni eiga sæti flmm menn
skipaðir til þriggja ára af menntamálaráð-
herra. Af þeim skulu Hagþenkir - félag
höfunda fræðirita og kennslugagna, Rit-
höfúndasamband Islands og Myndstef
tilnefna einn fulltrúa hvert. Tveir nefndar-
menn skulu skipaðir án tilnefningar og
skal annar þeirra vera formaður. Vara-
menn skulu skipaðir með sama hætti.
Sömu menn skulu ekki skipaðir oftar en
tvö samfelld tímabil í úthlutunamefnd.
Menntamálaráðherra setur sérstakar
reglur um umsóknir og úthlutun skv. 4. gr.
Heimilt er í þeim reglum að setja lágmark
á greiðslur úr sjóðnum þannig að ein-
göngu þeir höfundar sem ávinna sér
greiðslur umfram tilskilið lágmark eigi
rétt til greiðslna úr sjóðnum.
Ákvarðanir um úthlutun verða ekki
kærðar til æðra stjómvalds. Heimilt er
menntamálaráðherra að fela úthlutunar-
nefnd skv. 1. mgr. að semja við til þess
bæra aðila að annast umsýslu umsókna og
greiðslur til rétthafa skv. 2. og 3. mgr. 4.
gr-
32. árg. - 1. tbl. 2007 - bls. 12